Iðjuþjálfun/Lesblinda

Iðjuþjálfun/Lesblinda

Share

Lífsbrunnur ehf
Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir iðjuþjálfi
www.lifsbrunnur.is
Einstaklingsnámskeið fyrir börn með lesblindu.

Hægt að panta tíma á heimasíðu lifsbrunnur.is

03/05/2026

https://www.facebook.com/share/p/1EKbbo5Mmc/

Lesblindusamtök Írlands (Dyslexia Ireland) bjóða upp á ítarlegt stuðningskerfi og úrræði sem virka sem „aðgerðaráætlun“ fyrir fullorðna með lesblindu. Hér er mynd af Nicola Beagan sem er samhæfingaraðili fyrir fullorðna með lesblindu hjá samtökunum.
Nicola styður fullorðna með lesblindu á vinnustað og í framhaldsnámi og hjálpar þeim að takast á við áskoranir sem þau stundum standa frammi fyrir.

Samtökin hafa sett á laggirnar sérstaka gátt, Adult Dyslexia Hub, sem er hönnuð til að veita fullorðnum upplýsingar, sjálfstraust og verkfæri til að takast á við áskoranir í daglegu lífi, námi og starfi.

Félag lesblindra á Íslandi (FLÍ) veitir einnig þeim sem til samtakanna leita aðstoð af hvað tagi sem það er.

Við minnum á að aðild að FLÍ er öllum opin. Félagsmenn fá aðgang að ráðgjöf, náms- og stuðningsúrræðum og aðstoð við uppsetningu á hjálpartækjum. Við höfum byggt upp rúmlega tuttugu ára reynslu á þessu sviði og erum ávallt reiðubúin að styðja við fólk leiti það til samtakanna.

21/04/2026

https://www.facebook.com/share/p/18Ktq7o7ov/

Guðmundur S. Johnsen, formaður Félags lesblindra á Íslandi skrifar í pistli á Vísi í dag:
„Þeir sem búa við lesblindu hafa þurft að upplifa hlutina talsvert öðruvísi en aðrir á skólagöngu sinni. Þrátt fyrir meiri þekkingu á því hvað felst í lesblindu þá er margt sem hefur ekki breyst hjá lesblindum. Enn er mikið verk óunnið við að fá skólakerfið til að horfast í augu við þarfir lesblindra nemenda svo að þeir geti notið þeirra stöðu sem þeim ber samkvæmt lögum um skólahald.

Ég hef í mörg ár kallað eftir því að lesblindir fái tæki sem þeir geta notað til að þess að mennta sig. Í þeim tilgangi hef ég farið á fundi ráðherra og Menntamálastofnunar og í rauninni reynt að hitta skólafólk út um allan bæ í þeirri viðleitni að fá kerfið til að bregðast við. Ég hef ekki komið tómhentur á þessa fundi heldur reynt að tala fyrir skynsamlegum lausnum. Ég hef reynt að benda á þau verkfæri sem eru nú þegar til staðar og geta auðveldað lesblindum nám. Það vita það kannski ekki allir að slík verkfæri eru til og notuð með.“
Sjá pistilinn í heild hér í fyrsta kommenti.

04/04/2026

Ný yndisleg reynslusaga sem mér var að berast🥰

Vil þakka fyrir frábært námskeið. Sonur minn 12 ára er lesblindur og með ADHD hefur átt í erfiðleikum með lestur alla sína skólagöngu og hefur lestur verið mjög neikvæð upplifun hjá honum.
Á námskeiðinu hefur hann ekki bara lært tækni til að bæta lesturinn heldur hefur hann einnig öðlast sjálfstraust til þess að geta nýtt sér aðferðirnar sjálfur og þar með gert lesturinn öruggari og liprari. Einnig frábært að læra boltaleikina sem upphitun fyrir lesturinn sem gerir lesturinn heima skemmtilegri og jákvæða byrjun á annars krefjandi verkefni.
Netnámskeið hentaði einnig mínu manni vel þar sem hann g*t verið í sínu örugga umhverfi.
Við foreldrar hafa einnig fengið verkfæri sem nýtast við frekari þjálfun heima og gert okkur betri í að styrkja og ýta undir jákvæðari upplifun af lestrarþjálfun.
Takk fyrir okkur
https://lifsbrunnur.is/course/lestur-er-idja/

04/04/2026

Næstun námskeið hefjast í byrjun september. Skráning á Abler eða á www.lifsbrunnur.is

04/04/2026

Næstun námskeið hefjast í byrjun maí. Skráning á Abler eða á www.lifsbrunnur.is

04/04/2026

Næstun námskeið hefjast í byrjun ágúst. Skráning á Abler eða á www.lifsbrunnur.is

21/11/2024
Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Reykjavík