Evolytes Ísland

Evolytes Ísland Evolytes námskerfið kennir 5-12 ára stærðfræði með skemmtilegri og árangursríkari hætti 💥✨💥

Nú hafa nýir vinir bæst við í stafrófið! Vissir þú að Evolytes býður upp á fjölbreytt ókeypis aukaefni sem hægt er að pr...
25/09/2026

Nú hafa nýir vinir bæst við í stafrófið!

Vissir þú að Evolytes býður upp á fjölbreytt ókeypis aukaefni sem hægt er að prenta út og nota heima eða í skólastofunni? 🎨✏️

Þar má meðal annars finna:
🔤 Stafrófið og skriftaræfingar með evolýtunum
🔢 Stærðfræðiverkefni og margföldunarhjólið
🎨 Litamyndir af persónunum og evolýtunum
🗺️ Ratleiki og önnur skemmtileg verkefni úr ævintýraheiminum

Allt efnið er frítt og tilvalið fyrir litlar hendur sem vilja læra, lita og leika sér með uppáhaldspersónunum sínum!

👉 Skoðaðu safnið og sæktu þér aukaefni hér:
https://linktr.ee/evolytesisland

Alltaf jafn gaman að koma í heimsókn í skóla!
18/09/2026

Alltaf jafn gaman að koma í heimsókn í skóla!

14/09/2026

Þegar Evolytes maðurinn, eins og krakkar kalla hann gjarnan, mætir í heimsókn rifnar þakið af húsinu 🥳

Krakkarnir upplifa að þau séu að fá rokkstjörnu í heimsókn en Sigurður hefur aðeins eitt markmið. Að gera krakka spennt fyrir því að læra stærðfræði!

Krakkakynning býðst öllum skólum sem taka þátt í Þjóðarverkefninu í stærðfræði endurgjaldslaust, sem eru allir grunnskólar á landinu þökk sé Andvara farsældarhraðal.

Pantaðu þína kynningu með því að senda línu á [email protected] ef Siggi hefur ekki kynnt fyrir þínum skóla í haust.

08/09/2026

Steini hefur lifnað við 🥰 fyrsti evolýtinn úr fjölskyldunni sem vann Hönnunarsamkeppnina í vor kemur brátt í Evolytes námsleikinn.

Hönnunarsamkeppnin verður aftur hluti af Þjóðarverkefninu í stærðfræði í ár. Rúmlega hundrað skólar fóru af stað í síðustu viku og enn fleiri fara af stað í þessari viku. Er þinn skóli ekki með?

Fylgist með uppfærslum til að tryggja að Steini komi strax í leikinn þinn!

Forsvarsmenn Andvara og Evolytes handsöluðu formlega endurtekningu á Þjóðarverkefninu í stærðfræði 🤝 Andvara farsældarhr...
21/08/2026

Forsvarsmenn Andvara og Evolytes handsöluðu formlega endurtekningu á Þjóðarverkefninu í stærðfræði 🤝 Andvara farsældarhraðall veitir öllum grunnskólum landsins endurgjaldslausan aðgang að Evolytes námskerfinu fyrir tvo árganga.

Síðasta skólaár sýndi okkur hvað getur gerst þegar allir fá tækifæri til að vera með:
🔢 Yfir 9 milljónum stærðfræðispurninga var svarað á síðasta skólaári.
💪 97% kennara sáu jákvæð áhrif á vinnusemi nemenda.
💚 97% kennara sáu jákvæð áhrif á viðhorf nemenda til stærðfræði.
⏱️ 87% kennara segja kerfið létta undir með daglegu starfi þeirra.

Eruð þið komin af stað í ykkar skóla?

Ef ekki, endilega hafið samband við okkur. Við hlökkum til annars vetrar Þjóðarverkefnisins – og nokkurra milljóna stærðfræðidæma til viðbótar! 🚀

Takk Andvari farsældarhraðall fyrir að gera þetta mögulegt. 💚

Nýlega hélt hin æðislega Íris okkar upplestur á nýju Evolytes lestrarbókinni!Myndband af upplestrinum má finna hér fyrir...
11/08/2026

Nýlega hélt hin æðislega Íris okkar upplestur á nýju Evolytes lestrarbókinni!
Myndband af upplestrinum má finna hér fyrir neðan og bókina sjálfa er hægt að nálgast í vefverslun Evolytes 📘🤓🤩

Upptaka frá upplestri Kókoshnetukeppninnar á Borgarbókasafninu í Sp...

Gleðilegan þjóðhátíðardag! 🇮🇸 Í dag fögnum við frelsi, samstöðu og þeim tækifærum sem felast í því að byggja upp framtíð...
16/06/2026

Gleðilegan þjóðhátíðardag! 🇮🇸

Í dag fögnum við frelsi, samstöðu og þeim tækifærum sem felast í því að byggja upp framtíðina saman. Þjóð byggir framtíð sína á þekkingu, forvitni og hugrekki til að takast á við nýjar áskoranir, og menntun er einn mikilvægasti grunnurinn að þeirri vegferð.

Hjá Evolytes erum við stolt af því að leggja okkar af mörkum til að gera stærðfræði skemmtilega, aðgengilega og spennandi fyrir næstu kynslóð. Á sama tíma fögnum við þeim gildum sem hafa mótað íslenskt samfélag og þeim ungu hugum sem munu leiða það áfram inn í framtíðina.

Við óskum öllum landsmönnum gleðilegs þjóðhátíðardags og ánægjulegrar samveru með sínum nánustu

Einn af þeim frábæru hlutum við að vera íslenskt menntatæknifyrirtæki er að fá að vinna náið með íslenskum nemendum. Hug...
04/06/2026

Einn af þeim frábæru hlutum við að vera íslenskt menntatæknifyrirtæki er að fá að vinna náið með íslenskum nemendum. Hugvitið, eljan og gleðin sem býr í skólunum okkar er mögnuð

Tölvuleikurinn Evolytes er notaður við stærðfræðikennslu í ýmsum grunnskólum landsins. Á dögunum var haldin hugmyndasamkeppni og sigurvegarinn fékk sína eigin persónu inn í leikinn.

Það er ótrúlega gaman að sjá umfjöllun um Hugmyndasamkeppnina Evolytes fjölskyldan mín á mbl.is ❤️Hugmyndasamkeppnin er ...
30/05/2026

Það er ótrúlega gaman að sjá umfjöllun um Hugmyndasamkeppnina Evolytes fjölskyldan mín á mbl.is ❤️

Hugmyndasamkeppnin er hluti af Þjóðarverkefni í stærðfræði, sem er styrkt af Andvara farsældarhraðli, og markmið hennar er að gefa nemendum tækifæri til að taka þátt í þróun Evolytes heimsins og kynnast því hvernig hugmyndir verða að raunverulegum persónum og ævintýrum.

Í ár bárust fleiri hugmyndir en nokkru sinni áður og sköpunarkraftur nemenda um allt land var algjörlega magnaður. Það var virkilega erfitt fyrir dómnefndina að velja sigurvegara og því var ákveðið að verðlauna topp 10 í ár 🏆✨

Við erum ótrúlega stolt af öllum þeim nemendum sem tóku þátt og þökkum Andvara, kennurum og fjölskyldum fyrir að hjálpa okkur að gera verkefnið að veruleika.

📰 Hér má lesa umfjöllun mbl.is:

Á föstudaginn í síðustu viku voru afhent verðlaun í hugmyndasamkeppni stærðfræðileiksins Evolytes sem fór fram í Pennanum Smáralind.

Nemendur í Þjóðarverkefninu í stærðfræði hafa nú svarað ríflega 9 milljón stærðfræðispurningum! ✨📈Það er ótrúlega gaman ...
25/05/2026

Nemendur í Þjóðarverkefninu í stærðfræði hafa nú svarað ríflega 9 milljón stærðfræðispurningum! ✨📈

Það er ótrúlega gaman að fylgjast með þeim krafti, áhuga og þrautseigju sem nemendur um allt land hafa sýnt í stærðfræði á þessu skólaári ❤️

Nemendur eru nú að svara að meðaltali um 256.000 spurningum í hverri viku 🔥

Á myndinni má sjá hvernig svörun nemenda hefur þróast viku fyrir viku. Það er greinilegt að stærðfræði áhuginn er heldur betur lifandi.

Þjóðarverkefnið í stærðfræði er styrkt af Andvara farsældarhraðli og hefur það markmið að gefa öllum nemendum tækifæri til að upplifa stærðfræði á jákvæðan, skemmtilegan og hvetjandi hátt.

Risastórt hrós á alla nemendur og kennara sem hafa tekið þátt og gert verkefnið að því sem það er í dag 💫

Address

Bankastræti 5
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Evolytes Ísland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category