30/09/2026
Fúgur og kórlög Atla verða flutt á tónleikum í Langholtskirkju þann 22. nóvember. Af þessu tilefni býður Atli til samveru þar sem hann fer ofan í saumana á fúguforminu. Hann veltir fyrir sér eðli og tilgangi þess og rekur upp eitthvað af þeim verkum sem hann hefur sett saman undir þessum merkjum, meðal annars Fúgu um þig og mig, sem samin er kring um lagið Þú og ég eftir Gunnar Þórðarson.
Fyrirlesturinn verður fimmtudaginn 19. nóvember kl. 16:00 og innifalinn í greiðslunni er miði á tónleikana þremur dögum síðar þar sem Eyþór Ingi Jónsson og kammerkórinn Hymnódía koma fram.
Staðnám LEYNDARDÓMAR FÚGUNNAR Dagsetning 19.nóvember Verð 11.500 kr. Fyrirkomulag Staðnám Sækja um → LEYNDARDÓMAR FÚGUNNAR Hátindur tónsköpunar og Sísí fríkar út Atli Ingólfsson hefur öðru hverju tekið þekkt íslensk lög og byggt í kring um þau hljómborðsverk í þessu ...