30/01/2026
"Í umræðunni um loftslagsmál er von oft sett í andstöðu við raunsæi. Sumir líta á von sem barnalega bjartsýni eða jafnvel afneitun á alvarleika vandans. Aðrir óttast að hún dragi úr aðkallandi þörf fyrir aðgerðir. En von í loftslagsmálum er hvorki afneitun né leti. Hún er virk afstaða."
- Ingrid Kuhlman
Von hafnar bæði örvæntingu og kæruleysi. Hún viðurkennir að við getum ekki stjórnað öllu, en að við berum engu að síður ábyrgð á því sem við gerum – og gerum ekki.