27/01/2017
Málfundafélagið var fyrst stofnað haustið 2013 og hefur það staðið fyrir fyrirlestrum, kynningum og fræðslumálum innan HR síðastliðin fjögur ár. Markmið félagsins er að miðla þekkingu innlendra og erlendra sérfræðinga til nemenda HR og allra sem hafa áhuga á að læra eitthvað nýtt.
Málfundafélag SFHR stendur fyrir fyrirlestrum, kynningum og fræðslumálum innan HR. Stefnt er að því að fá spennandi fyrirlesara til að fræða nemendur úr öllum deildum um málefni líðandi stundar.
Stjórn Málfundafélags SFHR skipa Birgitta Saga Jónsdóttir og Davíð Erik Mollberg.