Vísindasmiðjan

Vísindasmiðjan Vísindasmiðja Háskóla Íslands er staðsett í vesturenda Háskólabíós, við innganginn sem snýr að Hagatorgi.

Vísindasmiðja Háskóla Íslands hefur það markmið að efla áhuga ungmenna á undrum vísindanna með gagnvirkum og lifandi hætti og styðja við framþróun náttúru- og raunvísindakennslu á öllum skólastigum. Smiðjan er opin fyrir skólahópa þriðjudag til föstudag. Heimasíða Vísindasmiðjunnar er http://visindasmidjan.hi.is/ en skráning fer fram á http://hi.lausn.is/IceUniBooking/swreg

Háskóli Íslands leggur ríka áherslu á lifandi miðlun vísinda
til ungs fólks. Auk Vísindasmiðjunnar starfrækir HÍ Háskóla unga fólksins, Vísindavefinn og Háskólalestina. Einnig höldum við utan um FIRSTLego League keppni grunnskólanema.

Í Vísindasmiðjunni eru margskonar gagnvirk tæki og tól þar
sem gestir geta kannað og upplifað ýmis undur vísindanna. Smiðjan hefur notið mikilla vinsælda frá því að hún var opnuð
í mars 2012 og hefur verið nánast fullbókað frá fyrsta degi. Vísindasmiðjan er aðallega opin fyrir skólahópa en við ýmis tækifæri er opið fyrir gesti á öllum aldri, til dæmis á Háskóladaginn og Barnamenningarhátíð.

Góðir gestir litu í heimsókn. Þetta smá þokast allt í rétta átt - hlökkum mikið til að opna og taka á móti gestum á öllu...
19/09/2026

Góðir gestir litu í heimsókn. Þetta smá þokast allt í rétta átt - hlökkum mikið til að opna og taka á móti gestum á öllum aldri í glænýjum Vísindaheimum (sem hefur reyndar ekki enn fengið endanlegt nafn😉).

Heimsókn í Vísindaheima.

Helgi Gunnarsson formaður VFÍ og Ingvar Þóroddsson alþingismaður og verkfræðingur, heimsóttu Vísindaheima sem verða til húsa í Háskólabíói.

Vísindaheimar eru nýtt tæknisafn sem byggir á starfi Vísindasmiðju Háskóla Íslands, sem Verkfræðingafélagið hefur stutt um langt árabil. Guðrún Bachmann og Guðmundur Jónsson kynntu framtíðarsýn verkefnisins og að því loknu var húsnæðið skoðað, en þar eru framkvæmdir í fullum gangi.

VFÍ hefur fullan hug á að styðja vel við þetta spennandi verkefni sem gegnir mikilvægu hlutverki í að kynna börnum – og fullorðnum – undraheim vísinda og tækni.

Starfsfólk Vísindasmiðju HÍ þakkar öllum sínum góðu gestum og samstarfsaðilum fyrir ótal góðar stundir á liðnu ári og ós...
01/01/2026

Starfsfólk Vísindasmiðju HÍ þakkar öllum sínum góðu gestum og samstarfsaðilum fyrir ótal góðar stundir á liðnu ári og óskar þeim gleðilegs vísindaárs 2026. Nýja árinu fylgja miklar breytingar í starfsemi okkar, því Vísindasmiðjan í Háskólabíói stækkar svo um munar og margvíslegar nýjungar í undirbúningi. Árið 2026 verður því sögulegur áfangi í fjölbreyttri vísindamiðlun Háskóla Íslands til samfélagsins og mikið tilhlökkunarefni. Meðan þessar umfangsmiklu breytingar standa yfir í Háskólabói liggur hefðbundið starf okkar niðri næstu mánuði. Við höldum samt áfram með farandsmiðjur, uppákomur og samstarfsverkefni af ýmsu tagi. Gleðilegt nýtt vísindaár :) !!!

24/08/2025

Við stækkum,
breytum og bætum!
Vísindasmiðjan verður því lokuð tímabundið en hlökkum til að taka á móti ykkur á nýju ári!

24/04/2025

Það losnuðu óvænt tímar
í maí!
Nú er tilvalið að taka vorferð í Vísindasmiðjuna :) :)

Vísindasmiðja HÍ hefur um árabil tekið þátt í UT messunni í Hörpu og alltaf jafn gaman :)
20/02/2025

Vísindasmiðja HÍ hefur um árabil tekið þátt í UT messunni í Hörpu og alltaf jafn gaman :)

17/12/2024
Okkar allra besta Nanna Kristjánsdóttir hlaut hvatningarverðlaunin "Framúrskarandi ungur Íslendingur" fyrir afrek á svið...
04/12/2024

Okkar allra besta Nanna Kristjánsdóttir hlaut hvatningarverðlaunin "Framúrskarandi ungur Íslendingur" fyrir afrek á sviði menntamála! Nanna er mikill frumkvöðull og stendur m.a. fyrir verkefninu "Stelpur diffra". Hún hefur starfað í Vísindasmiðjunni undanfarin ár, meðfram háskólanámi í stærðfræði, og við fáum að njóta krafta hennar þetta kennsluár líka. Til hamingju,framúrskarandi Nanna🥳 Nanna Kristjánsdóttir

Vísindasmiðjan býr yfir einstökum mannauði og við erum alveg sérstaklega stolt og glöð yfir að hún Nanna okkar hafi feng...
28/11/2024

Vísindasmiðjan býr yfir einstökum mannauði og við erum alveg sérstaklega stolt og glöð yfir að hún Nanna okkar hafi fengið mjög verðskuldaða viðurkenningu sem Framúrskarandi ungur Íslendingur fyrir afrek á sviði menntamála!
"Nanna hefur lagt mikið til stærðfræðisamfélagsins, og raunar vísindasamfélagsins alls, með frumkvæði sínu og dugnaði. Hún stofnaði og hefur séð um framkvæmd námsbúðanna Stelpur diffra þar sem stelpur og stálp á aldrinum 16-18 ára koma saman í eina viku til að vinna að verkefnum tengdum stærðfræði og hitta fjölbreyttan hóp kvenna með bakgrunn í greininni. Nanna hefur unnið ötullega að því að auka áhuga og sjálfstraust ungra nemenda, vinna gegn kynjahalla í stærðfræði og tengdum greinum og kynna stærðfræði og vísindi fyrir börnum og unglingum. Stelpur diffra hafa verið haldnar á hverju sumri frá árinu 2021 en sumarið 2024 kom hún einnig á fót námsbúðunum Kennarar diffra fyrir starfandi grunn- og framhaldsskólakennara."

https://framurskarandi.is/2024/11/top-tiu-hopurinn-2024/ #

Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar eru fyrst og fremst hvatningarverðlaun til ungs fólks sem eru að takast á við krefjandi og athyglisverð verkefni á sínu sviði og hafa verðlaunin verið haldin óslitið síðan árið 2002. Tilnefningar til framúrskarandi ungra Íslendinga vo...

Spennandi tímar framundan :)
22/11/2024

Spennandi tímar framundan :)

Address

Hagatorg
Reykjavík
107

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vísindasmiðjan posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category