RannUng

RannUng

Share

Markmið RannUng er að auka og efla rannsóknir á menntun og uppeldi ungra barna á aldrinum 0 - 8 ára og vera vettvangur fræðaþróunar á því sviði.

Rannsóknarstofunni er ætlað það hlutverk að eiga frumkvæði að og sinna rannsóknum, miðla þekkingu og kynna niðurstöður rannsókna á sviðinu m.a. með útgáfu fræðigreina og fræðirita og með fyrirlestrahaldi.

Photos from RannUng's post 17/03/2026

Kærar þakkir til ykkar allra sem tókuð þátt í Morgunverðarfundi RannUng þann 13. mars undir yfirskriftinni "Leikskólinn og yngstu börnin".

Fundurinn hófst á glæsilegu morgunverðarhlaðborði og síðan tóku við fróðleg og áhugaverð erindi sem hverfðust um yngstu börnin með einum eða öðrum hætti.

Dagskrá Morgunverðarfundarins má sjá í innleggi við þessa færslu.

Morgunverðarfundur RannUng – Leikskólinn og yngstu börnin 23/02/2026

Nú er skráning hafin á Morgunverðarfund RannUng: Leikskólinn og yngstu börnin

Óski kaupandi eftir kvittun fyrir miðakaupum á kennitölu er bent á að senda tölvupóst á [email protected] með eftirfarandi upplýsingum:

Netfang miðakaupanda
Miðapöntunarnúmer
Kennitala sem óskað er eftir að kvittun sé skráð á.

Morgunverðarfundur RannUng – Leikskólinn og yngstu börnin Grand Hótel

19/02/2026

Morgunverðarfundur RannUng verður 13. mars - LEIKSKÓLINN OG YNGSTU BÖRNIN - Skráning hefst eftir helgi

13/01/2026

Heil og sæl!
Morgunverðarfundur RannUng verður haldinn föstudaginn 13. mars. Takið daginn frá!

22/12/2025
Rannsóknarstofa í menntunarfræðum ungra barna (RannUng) | Menntavisindastofnun Háskóla Íslands 22/12/2025

Við Menntavísindasvið Háskóla Íslands starfa fjölmargar rannsóknastofur sem hafa það markmið að efla og styrkja rannsóknir, hver á sínu fræðasviði. RannUng hefur á undanförnum árum skapað sér sterka stöðu með öflugu starfi í þágu menntunar barna á aldrinum 0-8 ára. Nýlega voru rannsóknastofur Menntavísindasviðs flokkaðar eftir rannsóknarþemum og heyrir RannUng nú undir þemað „Fagmennska og skólar.“ Á heimasíðu RannUng má finna upplýsingar um rannsóknir og viðburði tengda starfseminni.

Rannsóknarstofa í menntunarfræðum ungra barna (RannUng) | Menntavisindastofnun Háskóla Íslands Fréttir Amanda Bateman, prófessor við Birmingham City University, og Prófessor Sally Peters frá University of Waikato á Nýja-Sjálandi komu sem gestafyrirle Föstudagur 28. nóvember klukkan 12-14 í leikstofunni S-338. Ný bók um menntun yngstu barnanna, maí 2025 Fréttasafn RannUng Mennta...

Photos from RannUng's post 19/12/2025

Hádegisverðarfundur RannUng fór fram 28. nóvember síðast liðinn í Sögu. Dagskráin samanstóð af tveimur erindum og umræðum. Á fundinum voru tveir erlendir gestafyrirlesarar, þær Amanda Bateman, prófessor við Birmingham City University, og Prófessor Sally Peters frá University of Waikato á Nýja-Sjálandi. Þær kynntu rannsóknir sínar á tilgátum barna (e. working theories), hvernig slíkar tilgátur birtast í samskiptum barna og hvernig efla megi stærðfræðilega hugsun ungra barna í leikskólastarfi. Fundurinn var vel sóttur og skapaðist lífleg og fræðandi umræða um nám og félagsleg tengsl leikskólabarna.

Photos from Menntavísindasvið HÍ's post 14/10/2025
27/05/2025

Ný bók um menntun yngstu barnanna var að koma út. "Með nesti og nýja skó" er bæði fáanleg á prenti og á netinu. Hægt er að kaupa staka kafla. Kynnið ykkur þessa.

MEÐ NESTI OG NÝJA SKÓ💡📜

Út er komin ný bók hjá Háskólaútgáfunni sem heitir Með nesti og nýja skó: Greinar um tengsl leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila. Jóhanna Einarsdóttir
Prófessor Emeritus við Menntavísindasvið og Björn Rúnar Egilsson, lektor við Menntavísindasvið ritstýra bókinni.

Bókin inniheldur 13 fræðigreinar sem greina frá niðurstöðum rannsókna sem tengjast menntun ungra barna og þáttaskilum leik- og grunnskóla frá ýmsum sjónarhornum. Fjallað er um sögulega þróun leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila á Íslandi. Þá er rannsóknum á sjónarmiðum barna, foreldra, kennara og starfsfólks fístundaheimila gerð skil. Sjónum er beint að starfsháttum og þverfaglegu samstarfi á mótum skólastiga og áhersluþáttum í menntun ungra barna eins og hugmyndum um fullgildi, lýðræði , inngildandi námsrými og skapandi stærðfræði. Þá er fjallað um leiklist og leikræna tjáningu leikskólabarna og rými barna til leiks og áhrifa í ólíku námsumhverfi.

Við óskum Jóhönnu, Birni Rúnari og greinarhöfundur til hamingju með nýja glæsilega bók!

Photos from RannUng's post 05/04/2025

Kærar þakkir til ykkar allra sem tókuð þátt í Morgunverðarfundi RannUng þann 4. apríl!
Yfirskriftin var: "Viltu koma að leika?" Morgunverðarfundur um leikmenningu leikskóla.

Dagskrá Morgunverðarfundarins má sjá í öðrum færslum á síðunni.

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Stakkahlíð
Reykjavík
105