Rannsóknasetur um norðurslóðir

Rannsóknasetur um norðurslóðir

Share

Rannsóknasetur um norðurslóðir er vettvangur fyrir þverfaglegt samstarf á sviði norðurslóð

[See in English below]Rannsóknasetur um norðurslóðir er vettvangur fyrir þverfaglegt samstarf á sviði norðurslóðarannsókna með áherslu á hlutverk ríkja, stofnana og óopinbera aðila í stjórnarháttum, menningu og samfélagi á norðurslóðum. Setrið starfar innan Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
[ENGLISH] The Centre for Arctic Policy Studies (CAPS) is a forum for interdisciplinary collaboration in

05/06/2026

🌍 Fulltrúar Rannsóknaseturs um norðurslóðir sóttu í síðustu viku UArctic Congress 2026 í Færeyjum, stærstu ráðstefnu sem haldin hefur verið í Færeyjum til þessa, með þátttöku yfir 1.400 gesta víðs vegar að úr heiminum.

Ráðstefnan er haldin af Háskóla norðurslóða (UArctic), sem er alþjóðlegt tengslanet háskóla, rannsóknastofnana og annarra aðila sem starfa að málefnum norðurslóða. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár var Health of People and Oceans in the Arctic.

Á ráðstefnunni kynntu fulltrúar rannsóknasetursins ásamt samstarfsaðilum verkefnið „Sterkari staða norðurslóðarannsókna á Íslandi“, sem unnið er í samstarfi við Háskólann á Akureyri, Norðurslóðanet Íslands og Rannís. Markmið verkefnisins er að efla samtal, samráð og samstarf innan íslenska rannsóknasamfélagsins um málefni norðurslóða.

Í kynningunni voru dregnar fram helstu niðurstöður þeirra þriggja vinnustofa sem haldnar hafa verið á vegum verkefnisins og fjallað um stöðu og framtíð norðurslóðarannsókna á Íslandi samanborið við önnur ríki á svæðinu.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér:
https://ams.hi.is/is/projects/adlogun-ad-loftslagsbreytingum-og-samfelagsleg-seigla-a-nordurslodum/

Háskólinn á Akureyri, Norðurslóðanet Íslands / Icelandic Arctic Cooperation Network, RANNÍS

Photos from Arctic Circle's post 22/04/2026

🏆 Við viljum minna á að kallað er eftir tilnefningum fyrir Frederik Paulsen Arctic Academic Action Award.

Opið er fyrir tilnefningar til 30. apríl 2026.

👉 Frekari upplýsingar um umsóknarferlið má finna hér:
https://www.arcticcircle.org/frederik-paulsen-arctic-academic-action-award?fbclid=IwY2xjawRVgKZleHRuA2FlbQIxMABicmlkETFTMTUya05UTTM1WklXRGdKc3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHpY823gX0BAYq7MtGoqReoNh7Zcnn8cPCvHUdTRLSC1jjuxcd_ryDnWVk14t_aem_sUvZm5T2h9ZHsl_8wR54Rg

Photos from Rannsóknasetur um norðurslóðir's post 13/03/2026

📅 Miðvikudaginn 11. mars síðastliðinn fór fram vinnustofa í Háskóla Íslands um orkuskipti og áhrif þeirra á samfélög. Rannsóknarsetur um norðurslóðir sá um skipulagningu vinnustofunnar fyrir hönd Háskóla Íslands í nánu samstarfi við Háskólann á Akureyri, Norðurslóðanet Íslands og Rannís.

🎯 Markmið vinnustofunnar var að skapa opinn vettvang fyrir samtal um helstu áskoranir og rannsóknargetu hér á landi á þessu sviði, efla vísindasamstarf og styrkja sókn íslenskra aðila í erlenda samkeppnissjóði.

❄️ Vinnustofan var sú þriðja í röð fjögurra vinnustofa verkefnisins "Sterkari staða norðurslóðarannsókna á Íslandi" sem miðar að því að efla samtal og samráð rannsóknarumhverfisins hérlendis um málefni norðurslóða. Verkefnið er fjármagnað af samstarfssjóði háskóla á vegum Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.

📸 Meðfylgjandi eru myndir frá vinnustofunni sem Kristinn Ingvarsson tók.

Vefsíðu verkefnisins má finna hér: https://ams.hi.is/is/projects/adlogun-ad-loftslagsbreytingum-vinnustofa-um-framlag-rannsoknarsamfelagsins/

Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Norðurslóðanet Íslands / Icelandic Arctic Cooperation Network, RANNÍS

Photos from Arcade 's post 04/02/2026

Í síðustu viku fór fyrsta staðnámsvika ARCADE námskeiðsins fram á Íslandi 🇮🇸

Þar komu saman hópur glæsilegra nemenda sem eiga það sameiginlegt að brenna fyrir málefnum Norðurslóða.

ARCADE leitast við að finna nýstárlegar leiðir til þess að takast á við áskoranir norðurslóða á umbrotatímum með námskeiði sem að leggur áherslu á að efla leiðtogahæfni og skapandi lausnir frá þverfræðilegu sjónarhorni.

Við þökkum öllum sem að námskeiðinu komu hér á landi og hlökkum til næsta staðnámskeiðs í Nuuk í júní! 🇬🇱

Photos from Arcade 's post 03/11/2025

❄️ Ekki missa af þessu einstaka tækufæri! Opið fyrir umsóknir í ARCADE námskeiðið til og með 6. nóvember næstkomandi.

ARCADE leitar nýrra og skapandi leiða til að takast á við áskoranir á norðurslóðum á umbreytinga tíma. Námskeiðið leggur áherslu á að efla leiðtogahæfni og þróa lausnir út frá þverfaglegu sjónarhorni. Námskeiðið samanstendur af tveimur viku­löngum lotum á Íslandi og Grænlandi.

👉 Nánari upplýsingar um ARCADE og umsóknarskilyrði:
🔗 https://ams.hi.is/en/projects/arcade/

Photos from Arctic Circle's post 30/10/2025
Photos from Rannsóknasetur um norðurslóðir's post 20/10/2025

This past week was eventful at the Centre for Arctic Studies! 🌏

In addition to hosting our open seminar, "Arctic Challenges: Navigating Shared Futures" at the University of Iceland on October 15th leading up to the Arctic Circle Assembly we organized two panel discussions at the Assembly in Harpa October 16th-18th❄️

🔹NORDIC VALUES IN AN ERA OF GREAT POWER COMPETITION IN THE ARCTIC

🔹POLITICAL SHIFTS IN THE ARCTIC: CHINA, RUSSIA AND REGIONAL SECURITY

📷📷📷

16/10/2025

Spennandi tækifæri fyrir nemendur í framhaldsnámi!

🌍 Nú er opið fyrir umsóknir í ARCADE – Arctic Resilience through Climate Action, Development, and Education.

❄️ ARCADE leitast við að finna nýstárlegar leiðir til þess að takast á við áskoranir norðurslóða á umbrotatímum með námskeiði sem að leggur áherslu á að efla leiðtogahæfni og skapandi lausnir frá þverfræðilegu sjónarhorni. Námskeiðið samanstendur af tveimur staðbundnum vikulöngum námskeiðum á Íslandi og á Grænlandi.

📍 Tvær staðbundnar námslotur:
🇮🇸: 25. janúar – 1. febrúar 2026
🇬🇱: 5. – 12. júní 2026

💻 Vefnámskeið og hópverkefni á milli lota þar sem nemendur efla hæfni sína í að kynna fræðilegar rannsóknir fyrir almenning, fjölmiðla og hagsmunaaðila í ræðu og riti.

Vilt þú taka þátt?
📧 Sendu umsókn á [email protected] fyrir 6. nóvember 2025!

👉 Frekari upplýsingar:
🔗 https://ams.hi.is/en/projects/arcade/

🌍 Applications are now open for ARCADE – Arctic Resilience through Climate Action, Development, and Education for Spring 2026!

❄️ ARCADE seeks innovative ways to address Arctic challenges in times of change through a course that emphasizes strengthening leadership skills and creative solutions from an interdisciplinary perspective. The program consists of two in-person, week-long modules in Iceland and Greenland.

📍 Two in-person modules:
🇮🇸: January 25 – February 1, 2026
🇬🇱: June 5 – 12, 2026

💻 Online seminars and group projects between the modules, where students strengthen their ability to present academic research to the general public, the media, and stakeholders—both in speech and in writing.

Would you like to participate?
📧 Send your application to [email protected] by November 6, 2025!
👉 More information:
🔗 https://ams.hi.is/en/projects/arcade/

Partners: Háskóli Íslands, Rannsóknasetur um norðurslóðir, Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands, Rannsóknasetrið á Hornafirði, Ilisimatusarfik, UiT The Arctic University of Norway, Fróðskaparsetur Føroya, The Arctic Initiative

Photos from Rannsóknasetur um norðurslóðir's post 16/10/2025

📸 Highlights from the open seminar "Arctic Challenges: Navigating Shared Futures" that took place yesterday, October 15th 2025.

❄️ The seminar brought together prominent academics and experts for a constructive dialogue on the challenges facing the Arctic. This year’s conference focused on four interconnected themes: Arctic governance and security, the cryosphere, resilience in rural communities, and academic collaboration across the Circumpolar North.

We want to thank all speakers and participants for a great discussion!

Recording from the open seminar is accessible here: https://vimeo.com/event/5438047

The seminar was co-hosted by the University of the Arctic (UArctic) and the University of iceland (Háskóli Íslands)

Photos by: Kristinn Ingvarsson

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Gimli Sæmundargata
Reykjavík
101