09/04/2026
Kennsla í forgangsakstri stendur yfir þessar vikurnar hjá okkur. Kennslan fer fram á höfuðborgarsvæðinu og einnig í nærsveitum. Við minnum á þetta myndband frá Samgöngustofu sem fjallar um hvernig á að bregðast við forgangsakstri:
Forgangsakstur
Fræðslumynd frá Samgöngustofu um hvernig ökumenn ættu að aka innan um ökutæki í forgangsakstri
09/03/2026
Öflug samvinna við eftirlit með atvinnuökutækjum
Lögreglumenn víðsvegar af landinu komu saman á dögunum til að sækja námskeið sem miðar að því að efla þekkingu og verklag við eftirlit með atvinnuökutækjum. Námskeiðið einkenndist af fagmennsku og samvinnu milli lögregluembætta, en meginmarkmiðið er að auka umferðaröryggi, verndun vegakerfisins og bæta vinnuskilyrði ökumanna sem stunda farþega- og farmflutninga á vegum.
Fjölbreytt viðfangsefni og hagnýt þekking
Á námskeiðinu var farið í þær skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist samkvæmt Evrópurétti og íslenskum lögum. Kennslan var blanda af fræðilegum fyrirlestrum, líflegum umræðum og verklegum æfingum þar sem þátttakendur fengu að spreyta sig á raunverulegum viðfangsefnum sem mæta þeim við vettvangseftirlit.
Helstu áhersluþættir námskeiðsins voru:
• Aksturs- og hvíldartími: Eftirlit með reglum sem tryggja öryggi allra vegfarenda.
• Stærð og þyngd: Vigtun ökutækja til að koma í veg fyrir ofhleðslu og verja vegi landsins fyrir óþarfa sliti.
• Frágangur farms: Reglur um hleðslu og merkingu til að tryggja að farmur valdi ekki hættu.
• Hættulegur farmur (ADR): Sérhæft eftirlit með flutningi á hættulegum efnum.
• Tæknilegt ástand: Færni til að framkvæma vegaskoðanir á atvinnuökutækjum.
Jákvæðni og fagmennska í fyrirrúmi
Þátttakendur sýndu málefninu mikinn áhuga og var lögð rík áhersla á að samræma verklag á landsvísu. Slík samvinna milli embætta er lykilatriði í því að tryggja skilvirkt eftirlit og öruggara umhverfi fyrir alla vegfarendur.
Námskeiðið var ætlað starfandi lögreglumönnum sem vilja dýpka þekkingu sína á þessu mikilvæga sviði. Kennarar á námskeiðinu voru sérfræðingar í málaflokknum frá Vesturlandi og Lögreglan á Suðurlandi . Þátttakendur voru einnig frá Lögreglan á Norðurlandi eystra , Ríkislögreglustjóri , Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu g Lögreglan á Vestfjörðum.
08/03/2026
Í lögreglunámi læra nemendur að mæla vegalengdir með mælihjóli. Það er einfalt og nákvæmt tæki sem er notað við mælingu ýmissa vettvanga. Mælihjólinu er rúllað eftir götunni og geta lögreglumenn þannig mælt fjarlægðir milli ökutækja, hluta eða annarra ummerkja sem má finna á vettvangi.
Verklega námið fer oft fram við erfiðar aðstæður utandyra. Það þýðir að nemendur æfa sig ekki aðeins á fallegum sumardögum, heldur einnig í vindi, snjó og kulda. Myndirnar voru teknar á æfingu þar sem snjókoma og kuldi urðu hluti af æfingunni.
03/03/2026
Í síðustu viku lauk sérhæfðu námskeiði fyrir þjálfara Fangelsismálastofnun ríkisins (FMS) hjá MSL. Námskeiðið er liður í virkum samstarfssamningi stofnananna og sneri að valdbeitingu, spennulækkun og iprep streitustjórnun.
Þátttakendur voru afar jákvæðir og sýndu mikla fagmennsku í sínum störfum, sem lofar góðu fyrir áframhaldandi síþjálfun innan fangelsanna. Það er dýrmætt fyrir báðar stofnanir að miðla þekkingu og reynslu á þessum vettvangi.
Við hjá MSL þökkum fyrir gott samstarf og hlökkum til frekari samvinnu í framtíðinni.
Á ljósmyndinni má sjá iprep æfingu.
02/03/2026
Myndavél MSL fylgdi nemendum á Esjuna. Myndefnið var tekið bæði frá jörðu niðri og með dróna, sem gerir áhorfendum kleift að sjá ekki aðeins nemendur taka á því á leiðinni heldur einnig hrjúft og áhrifamikið landslag Íslands úr lofti.
Um framkvæmd æfinganna fjalla kennararnir Hrafnhildur Jóna Danielsdóttir og Guðmundur Ásgeirsson, sem leggja áherslu á að þótt tími uppgöngu og hlaups hafi verið mældur, hvatning og sameiginleg upplifun verið það sem skipti mestu máli.
Slíkar æfingar fara fram reglulega og eru mikilvægur hluti af líkamlegum undirbúningi nemenda fyrir lögreglustarfið.
Myndavél MSL fylgdi nemendum á Esjuna
Myndavél MSL fylgdi nemendum á Esjuna. Myndefnið var tekið bæði frá jörðu niðri og með dróna, sem gerir áhorfendum kleift að sjá ekki aðeins nemendur taka á...
20/02/2026
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn næstkomandi skólaár við Háskólann á Akureyri. Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2026.
Sótt er um á heimasíðu Háskólans á Akureyri, https://ugla.unak.is/namsumsoknir/
Allar upplýsingar varðandi umsóknarferlið er að finna á heimasíðu Mennta- og starfsþróunarseturs https://menntaseturlogreglu.is/umsoknarferlid/.
Inntökupróf verða 7. til 14. apríl. Fyrri hluti inntökuferils er þrekpróf, skriflegt frásagnarverkefni og sálfræðipróf. Seinni hluti inntökuferilsins fer fram í byrjun maí.
Gert er ráð fyrir því að endanleg niðurstaða varðandi hverjir komast inn í námið liggi fyrir í júlí.
Vakin er athygli á að lögreglan leggur áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika bæði innan lögreglunnar og í þjónustu við almenning í samræmi við lykilgildi lögreglunnar um virðingu, heilindi og traust. Því eru öll hvött til að sækja um í lögreglufræðina.
Fyrirspurnir varðandi námið og umsóknarferlið er hægt að senda á [email protected] og [email protected].
05/02/2026
Nemendur á fyrsta ári fengu á dögunum æfingu í björgunarsundi. Þurfti að bjarga félaga, nota björgunarhring og leysa þraut í kafi. Næst verður svo tímataka og próf í þessum atriðum. 🏊🏾♂️🚓🆘📖
29/01/2026
Tveir kennarar úr lögreglufræði frá Södertörns háskólanum í Stokkhólmi í Svíþjóð sóttu í vikunni MSL heim til að kynna sér hvernig íslenska lögreglan kennir og innleiðir iPREP (integrated Performance and Resilience Efficiency Program).
iPREP er gagnreynd þjálfunaraðferð sem eflir andlega seiglu og bætir ákvörðunartöku lögreglumanna undir miklu álagi. Aðferðin hefur verið innleidd hér á landi með mjög góðum árangri. Heimsóknin undirstrikar að íslensk lögreglumenntun er meðal þeirra fremstu þegar kemur að hagnýtri nýtingu aðferðarinnar til að tryggja öryggi og andlega heilsu lögreglumanna í starfi.
22/01/2026
Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar (MSL) opnaði nýjan fræðsluvef lögreglu, Eloomi, fyrir allt starfsfólk lögreglu. Eloomi er sameiginlegt fræðslu- og starfsþróunarkerfi lögreglu, þróað og rekið af MSL, og er ætlað fyrir rafræna fræðslu, þjálfun og miðlun upplýsinga sem styðja við störf og efla hæfni starfsfólks. Spennandi tímar framundan í fræðslumálum hjá lögreglu 🤓🧠📖🚓
12/01/2026
Kennarar og þjálfarar frá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu starfa náið með öðrum viðbragðsaðilum við skipulagningu og framkvæmd sérhæfðra æfinga og þjálfunar. Myndirnar eru frá nýlegum æfingum viðbragðsaðila þar sem sameiginlegt viðbragð var æft. Markmið æfinganna er að styrkja viðbúnað og viðbragðsgetu í krefjandi aðstæðum.
23/12/2025
Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar óskar ykkur gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Takk fyrir gott samstarf á liðnu ári.
05/12/2025
Starfsfólk Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu og Háskólans á Akureyri sat fyrir stuttu góða vinnustofu þar sem unnið var að því að styrkja brúna milli bóknáms og verknáms í lögreglufræðináminu hér á landi.
Við fengum góða gesti frá háskólanum í Umeä í þá vinnu með okkur, þá Pontus Bergh og Mikael Söderström, sem deildu reynslu og góðum ráðum úr lögreglunáminu í Svíþjóð.