11/10/2025
Gott sjálfstraust getur bjargað deginum.
Sjálfstraustið okkar byggir á ótal mörgum þáttum og stundum getur það sveiflast til og frá á ógnarhraða eftir því í hvernig aðstæðum við erum í.
Hvernig er sjálfstraustið þitt svona dags daglega?
Fer það eftir því hvað þú ert að fást við eða fer það frekar eftir því hverja þú ert að umgangast hverju sinni?
Það er mjög svo eðlilegt að við verðum óörugg með okkur, þegar við erum að gera eitthvað sem við teljum að við höfum ekki nógu góð tök á til að gera hlutina vel. Það er engin ástæða til að láta sér líða eitthvað illa út af því til lengdar. Það eina og í raun langbesta í stöðunni er jú að kynna sér betur það sem til þarf og æfa sig svo í því, þar til við erum sátt við hvernig við getum leyst verkefnið vel af hendi og allra helst framúrskarandi vel.
Síðan er það samferðafólkið okkar. Hverjum líður þér vel í kringum? Hverjum líður þér hálf ónotalega með og finnur helst fyrir minnimáttarkennd og sjálfsöryggi? Hvers vegna er það?
Við erum öll einstök með okkar einstöku hæfileika. Setningin „allir geta eitthvað og enginn getur allt“ á ekki aðeins við þegar verið er að tala til yngri kynslóðarinnar, þessi orð eiga við okkur öll, óháð aldursskeiði og hverju sem við erum að fást við.
Orkusugur eru víða og það geta verið margar ástæður fyrir því að viðmót einstaklings gagnvart þér eða jafnvel bara nærvera, verði til þess að sjálfstraustið þitt snarminnki og krumpist saman í hnút í maganum. Ef það hefur gerst nýlega, gefðu þér þá smá tíma núna til að rifja það upp. Hvað gerðist? Var eitthvað sagt sem olli þessu? Sástu eitthvað? Þetta gæti jú líka hafa gerst við það að þú sást texta, mynd eða skilaboð á símanum þínum – og þá er það ekki vegna nærveru annars einstakling rétt hjá þér,
heldur hrynur sjálfstraustið af völdum þess sem þú sérð í gegnum dauðan hlut, símann.
Þú átt betra skilið. Er nokkuð réttlæti í því að annar aðili geti hróflað við sjálfstrausti þínu með svo afgerandi hætti að þú upplifir minnimáttarkennd, mikið óöryggi og jafnvel hræðslu? Leyfðu ekki öðrum að draga þannig úr þér kjark, þor og vellíðan.
Næst þegar þú veist að þú ert að nálgast erfiðar aðstæður, undirbúðu þig þá fyrir að hafa innri styrk til að láta ekki neikvæða nærveru, tal eða framkomu annars aðila, rífa þig niður og ræna þig sjálfstraustinu sem hefur hugsanlega tekið þig mörg ár að byggja upp. Andaðu þá djúpt og rólega og hugsaðu um einhver góð augnablik í lífi þínu, eitthvað sem veitir þér kraft, eitthvað sem getur fyllt þig stolti og gleði – eða getur að minnsta kosti tendrað smá gleði glæður. Það væri snjallt hjá þér að rifja upp núna einhverjar svona gleðistundir sem þú gætir gripið í að hugsa til þegar aðstæður reynast erfiðar.
Það er svo margt hægt að gera til að efla og styrkja sjálfstraustið þannig að okkur haldist betur á því – líka þegar t.d. einstaklingar í nærveru þinni ætla sér að ráðskast með þig eða gera lítið úr þér með einhverjum hætti. Er ekki nóg komið af slíku? Settu STOPP á það, stattu með þér, þú veist að þú átt skilið að fá að njóta þín.
Í markþjálfunartíma er tilvalið að skoða svona dæmi því þegar ég aðstoða þig við að hugsa dýpra um þessar erfiðu aðstæður sérðu að öllum líkindum skýrar hvernig þú getur hrist af þér ónotin og blómstrað.
Við getum tekið markþjálfunartíma á netinu í gegnum zoom þannig að vegalengdir og þar hvar við erum stödd skiptir engu máli svo framarlega sem við komumst á netið.
Bestu kveðjur
Jóna Björg Sætran.
[email protected]
namstaekni.is. (sjá "pakkatilboð" á markþjálfunartímum)