22/09/2026
Við kynnum með stolti Vilhelmínu Þ. Einarsdóttur sem í dag varði M.Phil. ritgerð sína til 120 eininga í hjúkrunarfræði.
Ritgerðin ber heitið: Complicated interaction in home care: From the perspectives of users, relatives and staff.
Leiðbeinandi var Kristín Björnsdóttir, prófessor og sérfræðingur í M.Phil. nefnd var Ásta Snorradóttir, dósent.
Prófdómari var Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor emeritus.
Prófstjóri var Rúnar Vilhjálmsson, prófessor.
Við óskum Vilhelmínu innilega til hamingju með áfangann!
Hér fyrir neðan fylgir ágrip ritgerðar.
Heimaþjónusta er veitt á heimili þjónustuþegans, þar sem starfsfólk þarf að samræma faglega ábyrgð og öryggi við sjálfræði, óskir og daglegt líf hans. Samskipti starfsfólks, þjónustuþega og aðstandenda geta orðið flókin þegar ólíkar þarfir, væntingar og hugmyndir um hvað telst viðeigandi umönnun fara ekki saman. Markmið rannsóknarinnar var að auka skilning á eðli flókinna samskipta í heimaþjónustu, hvernig þátttakendur upplifa þau og hvernig þróa megi starfshætti heimaþjónustu til að bregðast betur við þegar samskipti verða flókin.
Notuð var eigindleg tilviksrannsókn. Gögnum var safnað frá janúar 2021 til febrúar 2022 með vettvangsathugunum á umönnun á s*x heimilum og viðtölum við s*x þjónustuþega, fimm aðstandendur og 24 starfsmenn í heimahjúkrun og félagslegri heimaþjónustu. Gögnin voru greind innan og þvert á tilvik með kerfisbundinni þéttingu texta og þemagreiningu.
Niðurstöðurnar sýndu að ekki væri hægt að skýra flókin samskipti með fullnægjandi hætti út frá hegðun eins einstaklings, heldur mynduðust þau þegar erfitt reyndist að samræma ólíkar þarfir, væntingar, ábyrgð og áhyggjur þátttakenda. Starfsfólk upplifði tilfinningalegar, siðferðilegar og hagnýtar áskoranir sem tengdust meðal annars ágreiningi, höfnun umönnunar, faglegum mörkum, óöruggum aðstæðum á heimilum og vímuefnanotkun. Þjónustuþegar og aðstandendur upplifðu flókin samskipti þegar þörfum þeirra fyrir að vera séð, heyrð og höfð með í ráðum, sem og fyrir samfellu, aðgengi, öryggi og stjórn, var ekki nægilega mætt. Ósjálfstæði, félagsleg einangrun, óskýr ábyrgð aðstandenda og fagfólks, mótstaða gegn breytingum á heimilinu og annmarkar í samskiptum og miðlun upplýsinga mótuðu jafnframt þessi samskipti.
Niðurstaða rannsóknarinnar er að skilja beri flókin samskipti sem tengsla- og skipulagslegar áskoranir fremur en vandamál sem orsakast af einstökum þjónustuþegum, aðstandendum eða starfsmönnum. Styrkja má starfshætti heimaþjónustu með aukinni samfellu í starfsmannahaldi, skýrum samskiptum og samráði um ábyrgð, öruggri upplýsingamiðlun, faglegri ígrundun, stuðningi stjórnenda og bættri þverfaglegri samvinnu. Slíkar aðgerðir geta stuðlað að öruggari, virðingarfyllri og einstaklingsmiðaðri heimaþjónustu.