Mannfræði við Háskóla Íslands

Mannfræði við Háskóla Íslands

Share

Mannfræði við Háskóla Íslands. Félags- og mannvísindadeild býður upp á BA og framhaldsnám í mannfræði.

Viðfangsefni mannfræðinnar eru fjölbreytt, í rauninni allt sem viðkemur tegundinni Homo sapiens fyrr og síðar. Spurningar mannfræðinga snúast þó einkum um hin mörgu og ólíku samfélög manna, hvað þau eigi sameiginlegt og hvað greini þau að.

Áhersla er lögð á að skilja hugmyndir og athafnir fólks og hvaða merkingu þær hafa fyrir það og aðra. Mannfræðin leitast einnig við að svara því hvar og hvenær

Photos from Mannfræði við Háskóla Íslands's post 30/10/2025

Hamadou Boiro varði doktorsritgerð sína „Mansal er þungt orð“: Kóranmenntun til þekkingar, frelsis og valda í Gíneu-Bissá mánudaginn 27. október sl. Vörninni var stýrt af Unni Dísi Skaptadóttur, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild og fór fram í Hátíðasal Háskóla Íslands.

Andmælendur voru dr. Mirjam de Bruijn, prófessor í mannfræði við Háskólann í Leiden í Hollandi, og dr. Anneke Newman, mannfræðingur við deild átaka og þróunarfræða við Háskólann í Ghent í Belgíu. Leiðbeinandi ritgerðarinnar var Jónína Einarsdóttir, prófessor emerita frá Háskóla Íslands. Aðrir doktorsnefndarmenn voru dr. Kristín Loftsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, og dr. Neil Howard, Reader við Háskólann í Bath, Bretlandi.

17/10/2025

Við vekjum athygli á ráðstefnu Þjóðarspegilsins sem verður haldin 30. og 31. október nk. Gestir geta valið úr 126 fyrirlestrum um það sem er efst á baugi í rannsóknum á sviði félagsvísinda. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis.

Dagskráin er afar fjölbreytt og er komin á heimasíðu Þjóðarspegilsins. Þar má einnig skoða ágripabók Þjóðarspegilsins: https://thjodarspegillinn.hi.is

19/09/2025

The Department of Anthropology at the Faculty of Sociology, Anthropology and Folkloristics, University of Iceland, declares its support for the Palestinian people and their struggle for their right to exist against Israeli colonialism and genocide. With this statement, we join academic institutions around the world that support the Palestinian liberation struggle and condemn the genocide, which includes, among other things, the destruction of all universities in Gaza and the persecution of university teachers and students in the West Bank and Jerusalem.
Academic institutions in Israel are active participants in, and therefore complicit with, colonialism, land theft, ethnic cleansing, and apartheid policies of the Israeli state. This includes development of weapons and technology for military purposes, as well as the development of military operations and doctrines, methods for maintaining the occupation, efforts to whitewash and justify war crimes of the Israeli government and repression of critical voices within Israeli society. Additionally, academic institutions restrict freedom of expression for students and university staff and systematically discriminate against Palestinian students.
Therefore, we are initiating an academic boycott against Israel. This boycott involves:
A. Severing all ties with Israeli universities and other educational institutions.
B. Not establishing any new ties with Israeli universities and other educational institutions.
By "ties," we refer to all forms of collaboration, such as research and teaching, conferences, workshops, and seminars.
Boycott is a peaceful way to express disapproval of the conduct of the Israeli government and to support the Palestinian people. The anthropology department will boycott academic institutions in Israel and decline cooperation with Israeli institutes and academic staff working for institutions complicit in genocide, until the Israeli government ceases war crimes and apartheid policies and ends the ethnic cleansing in Gaza and the West Bank.

Reykjavik, Iceland, September 11th, 2025.

16/09/2025

Yfirlýsing námsbrautar í mannfræði um sniðgöngu á háskólum og rannsóknastofnunum í Ísrael.
Yfirlýsingin var samþykkt á námsbrautarfundi 11. sept. 2025.

Námsbraut í mannfræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands lýsir yfir stuðningi við Palestínufólk og baráttu þeirra fyrir tilvistarrétti sínum gegn ísraelskri nýlendustefnu og þjóðarmorði. Með þessari yfirlýsingu göngum við til liðs við akademískar stofnanir um allan heim sem styðja frelsisbaráttu Palestínu og fordæma þjóðarmorð sem felur meðal annars í sér gjöreyðingu allra háskóla á Gaza og ofsóknir á hendur háskólakennurum og -nemendum á Vesturbakkanum og Jerúsalem. Við fetum hér í fótspor Deildar faggreinakennslu og fleiri námsbrauta og deilda við Mennta- og Hugvísindasvið HÍ sem hafa þegar samþykkt slíka sniðgöngu.

Akademískar stofnanir í Ísrael eru virkir þátttakendur og þar af leiðandi samsekar í nýlendustefnu, landráni, þjóðernishreinsunum og aðskilnaðarstefnu Ísraelsríkis. Þær taka meðal annars þátt í þróun vopna og tækni í hernaðarlegum tilgangi, sem og þróun á hernaðaraðgerðum og -kenningum, aðferða til að viðhalda hernámi og til að hvítþvo og réttlæta stríðsglæpi stjórnvalda og kúgun gagnvart þeim sem gagnrýna Ísraelsríki, auk þess sem þær skerða tjáningarfrelsi nemenda og háskólakennara og beita kerfisbundinni mismunun í garð palestínskra nemenda.

Þess vegna hefjum við akademíska sniðgöngu gegn Ísrael. Í þessari sniðgöngu felst að:
A. Slíta öll tengsl við ísraelska háskóla og aðrar rannsókna- og menntastofnanir.
B. Stofna ekki til frekari tengsla við ísraelska háskóla og aðrar menntastofnanir.
Með tengslum er átt við hvers konar samstarf, svo sem rannsóknir og kennslu, ráðstefnur, vinnustofur og málstofur.

Sniðganga er friðsamleg leið til þess að lýsa yfir vanþóknun á framferði ísraelskra stjórnvalda og styðja palestínsku þjóðina. Námsbraut í mannfræði mun sniðganga akademískar stofnanir í Ísrael og afþakka samstarf við ísraelskar menntastofnanir og akademískt starfsfólk sem starfar fyrir stofnanir sem eru samsekar í þjóðarmorði þar til stjórnvöld þar í landi láta af stríðsglæpum og aðskilnaðarstefnu og hætta þjóðernishreinsunum á Gaza og Vesturbakkanum.

Kennarar við námsbraut í mannfræði, HÍ.

ENGLISH TRANSLATION NOW HERE ON THIS SITE.

Opið fyrir umsóknir í mannfræði 26/05/2025

Nám í mannfræðin er mjög fjölbreytt og fjallar á gagnrýninn hátt um menningu og samfélag með áherslu á skilning á hugmyndum fólks, athöfnum og merkingu þeirra. Hún ber saman ólíka menningarheima og rannsakar margvísleg málefni, eins og þjóðerni, fólksflutninga, ættartengsl, efnismenningu, tengsl við umhverfi, þéttbýlismyndun, áhrifahátt miðla sem og þróun mannsins sem tegundar. Mögulegt er að ljúka námsleiðinni alfarið eða að mestu leyti í fjarnámi.

Opið fyrir umsóknir í mannfræði Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Geir og Jónína heiðruð fyrir rannsóknasamstarf í Gíneu-Bissá 29/01/2025

Jónína Einarsdóttir og Geir Gunnlaugsson voru heiðruð fyrir rannsóknasamstarf sitt við Jean Piaget háskólann í Gíneu-Bissá.

Geir og Jónína heiðruð fyrir rannsóknasamstarf í Gíneu-Bissá Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Photos from Jón Atli Benediktsson's post 24/05/2024

Sýningin verður opin til 20 september 2024. Sýningarhöfundar eru Kristín Loftsdóttir og Anna Lísa Rúnarsdóttir, sem eru báðar mannfræðingar en sýningin gefur innsýn í bók Kristínar Loftsdóttur Andlit til Sýnis: Íslendingar og Aðrir í Kanarísafninu, gefin út hjá Sögufélaginu 2023.

14/09/2022

Open event at the University of Iceland

Margbreytilegar raddir í nýju hlaðvarpi mannfræðinnar | Háskóli Íslands 12/08/2021

„Markmiðið er að kynna og koma mannfræði, mannfræðingum og rannsóknum íslenskra mannfræðinga á framfæri – og reyna líka að góma erlenda mannfræðinga sem sækja okkur heim,“ segir Kristján Þór Sigurðsson, aðjunkt í mannfræði og einn umsjónarmanna nýs hlaðvarps sem ber heitir Raddir margbreytileikans og er unnið í samstarfi við námsbraut í mannfræði við Háskóla Íslands.

Margbreytilegar raddir í nýju hlaðvarpi mannfræðinnar | Háskóli Íslands „Markmiðið er að kynna og koma mannfræði, mannfræðingum ogrannsóknum íslenskra mannfræðinga á framfæri – og reyna líka að góma erlenda mannfræðinga sem sækja okkur heim,“ segir Kristján Þór Sigurðsson, aðjunkt í mannfræði og einn umsjónarmanna nýs hlaðvarps sem be...

Nordic Journal of Migration Research 27/03/2021

Eyrún Eyþórsdóttir, doktorsnemi í mannfræði og Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði fjalla um hvítleika og afkomendur íslensku Brasilíufarana í grein í Nordic Journal of Migration Research . Greinin byggir á doktorsverkefni Eyrúnar í Brasilíu.

Nordic Journal of Migration Research Article: Becoming Nordic in Brazil: Whiteness and Icelandic Heritage in Brazilian Identity Making

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Saemundargata
Reykjavík
101