Úlfljótur, tímarit laganema

Úlfljótur, tímarit laganema

Share

Úlfljótur, tímarit laganema, var fyrst gefið út árið 1947. Síðan þá hefur tímaritið verið leiðandi við útgáfu á fræðigreinum á sviði lögfræðinnar.

Framkvæmdastjórar Úlfljóts eru Anna Einarsdóttir og Ásgrímur Agnarsson

[email protected]
Bóksala: 6181283

Er draugur í vélinni? Hugleiðingar um aðkomu gervigreindar að mannlegri ákvarðanatöku* 15/01/2026

Ný grein hefur verið birt í vefrit Úlfljóts. Höfundur hennar er Oddur Þorri Viðarsson, héraðsdómari.

Ber hún titilinn: Er draugur í vélinni? Hugleiðingar um aðkomu gervigreindar að mannlegri ákvarðanatöku.

Er draugur í vélinni? Hugleiðingar um aðkomu gervigreindar að mannlegri ákvarðanatöku* Eftir Odd Þorra Viðarsson, héraðsdómara. Sækja pdf-útgáfuDownload * Grein þessi hefur verið ritrýnd og staðist þær fræðilegu kröfur sem gerðar eru samkvæmt reglum Vefrits Úlfljóts. Efnisyfirlit 1…

19/09/2025

Stjórnspeki Snorra Sturlusonar

Úlfljótur vekur athygli á útgáfu Hins íslenska bókmenntafélags á riti prófessors Sigurðar Líndal, Stjórnspeki Snorra Sturlusonar eins og hún birtist í Heimskringlu, og kemur hún út á dánardægri Snorra, 23. september. Davíð Oddsson, fyrrv. forsætisráðherra, skrifar formála. Af því tilefni halda RSE, Hið íslenska bókmenntafélag, Miðaldastofa og Lagastofnun Háskóla Íslands fund þriðjudaginn 23. september kl. 16.30 í fundarsal Eddu, þar sem þeir prófessor Ditlev Tamm, Kaupmannahafnarháskóla, og dr. Tom G. Palmer, Atlas Network, hafa framsögu, en að því loknu verða umræður. Garðar Gíslason, fyrrv. hæstaréttardómari er fundarstjóri. Bókin, sem er 134 bls. og birtist fyrst sem ritgerð í Úlfljóti 2007, verður til sölu á afsláttarverði.

08/08/2025

Bókasending frá Fons og Codex er væntanleg í hús á mánudaginn. Búið er að uppfæra lagerstöðu í vefverslun á Fons bókum og hægt að tryggja sér eintak.

Þýðing verðtryggingar í verksamningum: Ályktanir af dómi Hæstaréttar í máli nr. 7/2025* 06/08/2025

Þýðing verðtryggingar í verksamningum: Ályktanir af dómi Hæstaréttar í máli nr. 7/2025 er ný grein eftir Gunnar Atla Gunnarsson, lögmann og aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands, og Víði Smára Petersen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands.

Þýðing verðtryggingar í verksamningum: Ályktanir af dómi Hæstaréttar í máli nr. 7/2025* Eftir Gunnar Atla Gunnarsson, lögmann og aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands, og Víði Smára Petersen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Sækja pdf-útgáfuDownload *Grein þessi hefur verið ri…

30/06/2025

Viltu taka með þér bók í fríið? Sendingar fara úr húsi í kvöld 📚📚📚

30/05/2025

Í næsta tölublaði mun birtast grein eftir Karol Walejko. Grein þessi fjallar um mat á orsakatengslum á milli líkamstjóns og umferðar- eða vinnuslysa. Farið er yfir helstu sjónarmið og viðmið sem koma til greina við slíkt mat, miðað við gildandi rétt og nýlega úrskurða- og dómaframkvæmd.

Ekki öll þau sjónarmið og viðmið sem skipta máli í framkvæmd eru endilega
mjög áberandi nema litið sé heildstætt á fjölda mála þar sem deilt hefur verið
um orsakatengsl á milli líkamstjóns og umferðar- eða vinnuslyss. Í mörgum
málum er þannig vísað til einhverra þessara sjónarmiða án þess að fara nánar út í þýðingu hvers fyrir sig. Aðferðafræðin er fremur sú að vísa til þeirra og komast að niðurstöðu út frá atviksbundnu og heildstæðu mati.

Af úrskurða- og dómaframkvæmd má hins vegar með ítarlegri rannsókn ráða að sum þessara sjónarmiða og viðmiða vegi þyngra heldur en önnur, þó að það sé ekki tekið fram berum orðum. Þannig má t.d. sjá að tjónþoli styrkir sönnunarstöðu sína verulega ef hann leitar til læknis fljótlega eftir slys, lýsir þeim einkennum sem hann telur að rekja megi til viðkomandi slyss og tengir þau við slysið. Tjónþoli sem ekki gætir að þessu og öðrum þeim atriðum sem rakin eru í grein þessari gerir sönnunarstöðu sína töluvert erfiðari en hún annars væri.

Hægt er að skrá sig í áskrift með því að senda tölvupóst á [email protected]

27/05/2025

“Þann 31. maí n.k. fer fram úrslitaleikur í Meistaradeild karla í knattspyrnu, en þar mætast Inter Milanog Paris Saint-Germain. Þá fer líka fram EM kvenna í sumar þar sem stelpurnar okkar taka þátt.
Ef fólk vill koma sér í knattspyrnu gírinn, eða ef það hefur ekki áhuga á fótbolta en dýrkar samt lögfræði þá verður að benda á áhugaverða grein Birgis Ólafs Helgasonar um reglur FIFA um félagaskipti leikmanna yngri en 18 ára, sem birt er í 2. tbl.-76. árg. Úlfljóts. En hana er hægt að lesa á vef okkar https://fj.pulse.ly/gpzqsffzoi”

Þann 31. maí n.k. fer fram úrslitaleikur í Meistaradeild karla í knattspyrnu, en þar mætast Inter Milanog Paris Saint-Germain. Þá fer líka fram EM kvenna í sumar þar sem stelpurnar okkar taka þátt.
Ef fólk vill koma sér í knattspyrnu gírinn, eða ef það hefur ekki áhuga á fótbolta en dýrkar samt lögfræði þá verður að benda á áhugaverða grein Birgis Ólafs Helgasonar um reglur FIFA um félagaskipti leikmanna yngri en 18 ára, sem birt er í 2. tbl.-76. árg. Úlfljóts. En hana er hægt að lesa á vef okkar https://fj.pulse.ly/gpzqsffzoi

16/05/2025

Langar þig að birta grein í Úlfljóti – tímariti laganema?

Ritstjórn Úlfljóts óskar eftir vönduðum og áhugaverðum greinum fyrir næstu tölublöð. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur handbókina með verklagsreglum en þar er allt ferlið útskýrt skref fyrir skref. "Linkur í fyrsta kommenti"

27/03/2025

Við sendum með Dropp hvert á land.

27/03/2025

Endurgjaldslaus lögfræðiráðgjöf

Úlfljótur 22/01/2025

Vissir þú að Úlfljótur er ekki bara tímarit heldur líka vefrit?

Vefrit Úlfljóts er vettvangur fyrir lögfræðitengda umræðu á netinu. Á síðunni eru birtar stuttar greinar sem skulu vera 1.500-3.500 orð.

Ritstjóri Úlfljóts, Elísa Eyvindsdóttir, velur greinar til birtingar í samráði við fræðilega ritstjórn vefritsins, sem samanstendur af þremur ritrýnendum ásamt fræðilegum ritstjóra. Ritstjóri áskilur sér rétt til að hafna grein, standist hún ekki ritrýni.

Vefrit Úlfljóts var stofnað í tilefni 70 ára afmælis Úlfljóts árið 2017. Því er ætlað að stuðla að aukinni þátttöku lagadeildar Háskóla Íslands í opinberri umræðu og að styrkja stöðu deildarinnar sem virks þátttakanda í lýðræðislegu samfélagi.

Vefritið skapar auðvelt aðgengi almennings og fjölmiðla að skýrri og hnitmiðaðri umfjöllun um lögfræði. Það opnar að auki leið fyrir lögfræðinga, sem ekki hafa tíma til rannsóknarstarfa og skrifa á löngum fræðigreinum, til að koma fræðilegu áliti, greiningu eða hugmyndum sínum á framfæri.

Í vefritinu mætti t.a.m. birta fræðilega umfjöllun um lögfræði, gagnrýni á nýfallna dóma eða frumvörp og athugasemdir um framkvæmd laga.

Greinar skulu berast með tölvupósti á [email protected].

Úlfljótur vefrit

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Sæmundargata 2
Reykjavík
101REYKJAVÍK

Opening Hours

Monday 12:00 - 15:00
Wednesday 12:00 - 15:00
Thursday 10:30 - 13:00