29/05/2026
Spennandi tímar framundan!
Höfum verið að máta hugmyndina í nokkurn tíma en nú er blekið komið á blað. Það verður mjög gaman að stilla saman strengi í sterkum sameinuðum skóla
Tónlistarskólar FÍH og Eddu Borg sameinast í þéttum takti - Vísir
„Við sjáum bara fram á að við verðum einn öflugasti tónlistarskólinn á landinu þegar rytmísk tónlist er annars vegar,“ segir Edda Borg Ólafsdóttir um sameiningu Tónskóla hennar og Tónlistarskóla FÍH.
21/05/2026
Burtfarartónleikar Þorvaldar ( ) fara fram í hátíðarsal FÍH fimmtudaginn 21. maí kl. 20:00. Á tónleikunum verður leikin blanda af frumsamdri tónlist og djass- og sálartónlist eftir listamenn á borð við Erykah Badu, Stevie Wonder og José James. Með Þorvaldi leika:
Aðalheiður Þorsteinsdóttir á píanó
Elísabet Arna Gunnlaugsdóttir á slagverk
Jón Ingimundarson á hljómborð
Óskar Gunnarsson á gítar
Stefanía Bergljót Stefánsdóttir á bassa
Sérstakir gestir kórinn Kliður, Tumi Torfason, Una Stefánsdóttir og fleiri!
Þorvaldur Sigurbjörn Helgason er skáld, verkefnastjóri og tónlistarmaður í hjáverkum. Þorvaldur hefur komið víða við í tónlist frá barnsaldri; stundað nám í píanóleik og gítarleik, lært klassískan söng, leikið í lúðrasveit, sungið í kórum og spilað í hljómsveitum. Þorvaldur stundaði nám í djasspíanóleik við Tónlistarskóla FÍH á árunum 2006-2010 og eftir langa pásu sneri hann aftur í skólann 2021, í þetta sinn í söngdeildina, þaðan sem hann er að útskrifast með framhaldspróf í rytmískum söng vorið 2026.
📸
07/05/2026
Framhaldsprófstónleikar Bríetar Vögnu, föstudaginn 8. maí í hátíðarsal FÍH kl. 20:00
Bríet Vagna kemur fram ásamt stórkostlegri hljómsveit þar sem þau munu flytja lög eftir flytjendur á borð við Sam Smith, Beyonce og Stevie Wonder. Flutt verða lög í bland við ballöður, djass, rokk og popp. Áhorfendur mega búast við að heyra bæði tilfinningarík lög ásamt stuði og fjöri.
Ekki láta þessa tónleika framhjá ykkur fara!
Bríet Vagna hefur stundað rythmískt söngnám við tónlistarskóla FÍH síðastliðinn 4 ár. Tónlist hefur ávallt skipað stóran sess í lífi hennar og nýtur hún sín best á sviði, syngjandi með gítarinn í hönd. Hún hefur komið fram á fjölbreyttum viðburðum, þar á meðal bæjarhátíðum, árshátíðum, jólahlaðborðum og í einkasamkvæmum.
🎙
📸
29/04/2026
Framhaldsprófstónleikar Ragnheiðar Silju, fimmtudaginn 30.apríl í Hátíðarsal FÍH kl. 20:00
Útskriftartónleikar Ragnheiðar Silju bera undirheitið: Barnalæti og dívustælar.
Á tónleikunum verða flutt barnalög fyrir fullorðna af plötum eins og Hrekkjusvín, Berrössuð á tánum og úr smiðju Disney. Einnig verður flutt blanda af djass-, rokki-, poppi- og söngleikjatónlist í bland við hennar eigið frumsamda efni.
Það verður öllu tjaldað þegar Ragnheiður Silja og hljómsveit munu stíga á svið þann 30. annaðkvöld klukkan 20:00.
Ekki láta ykkur vanta!
Ragnheiður Silja útskrifast úr tónlistarskóla FÍH vorið 2026 úr rythmísku söngnámi eftir 6 ár í skólanum. Þegar hún var yngri þá lagði hún stund á klassískt fiðlunám og söng með kórum m.a. Barna- og unglingakórum Bústaðakirkju, kór Menntaskólans við Hamrahlíð og síðast með Gospelkór Jóns Vídalíns. Hún hefur síðustu misseri lagt áherslu á að flytja tónlist fyrir yngstu kynslóðina með kvöldvökuhaldi í skátastarfi og söngstundum m.a. í samvinnu við Bókasöfnin í Kópavogi.
Einnig hefur hún tekið virkan þátt í skipulagningu á viðburðum á vegum nemendafélags FÍH og tekið þátt í skipulagi vorsýninganna sem söngdeildin hefur sett á svið síðustu þrjú árin.
29/04/2026
Framhaldsprófstónleikar Ragnheiðar Silju, fimmtudaginn 30.apríl í Hátíðarsal FÍH kl. 20:00
Ragnheiður Silja útskrifast úr tónlistarskóla FÍH vorið 2026 úr rythmísku söngnámi eftir 6 ár í skólanum. Þegar hún var yngri þá lagði hún stund á klassískt fiðlunám og söng með kórum m.a. Barna- og unglingakórum Bústaðakirkju, kór Menntaskólans við Hamrahlíð og síðast með Gospelkór Jóns Vídalíns. Hún hefur síðustu misseri lagt áherslu á að flytja tónlist fyrir yngstu kynslóðina með kvöldvökuhaldi í skátastarfi og söngstundum m.a. í samvinnu við Bókasöfnin í Kópavogi.
Einnig hefur hún tekið virkan þátt í skipulagningu á viðburðum á vegum nemendafélags FÍH og tekið þátt í skipulagi vorsýninganna sem söngdeildin hefur sett á svið síðustu þrjú árin.
Útskriftartónleikar Ragnheiðar Silju bera undirheitið: Barnalæti og dívustælar.
Á tónleikunum verða flutt barnalög fyrir fullorðna af plötum eins og Hrekkjusvín, Berrössuð á tánum og úr smiðju Disney. Einnig verður flutt blanda af djass-, rokki-, poppi- og söngleikjatónlist í bland við hennar eigið frumsamda efni.
Það verður öllu tjaldað þegar Ragnheiður Silja og hljómsveit munu stíga á svið þann 30. annaðkvöld klukkan 20:00.
Ekki láta ykkur vanta!
21/04/2026
Framhaldsprófsveislan hefst annaðkvöld miðvikudaginn 22.apríl á tónleikum Hreiðars Páls.
Hreiðar segir:
"Ég hóf tónlistarnám ungur og lærði fyrst á trompet og franskt horn. Á unglingsárum færði ég mig yfir á saxófón, sem síðan hefur orðið mitt aðalhljóðfæri. Ég hef stundað nám við Tónlistarskóla FÍH, bæði í klassísku trompetnámi og á saxófón í rytmískri deild, þó með hléum á köflum.
Eftir annasöm ár tók ég þráðinn upp á ný í saxófónnámi og er nú að ljúka þessum áfanga sem hefur verið afar ánægjulegur og gefandi.
Á tónleikunum verður boðið upp á fjölbreytta efnisskrá, allt frá ljúfum ballöðum yfir í kraftmikla stórsveitartónlist. Með mér á sviðinu verða framúrskarandi félagar og tónlistarmenn úr Stórsveit Íslands.
Að lokum vil ég nota tækifærið til að þakka þeim kennurum sem hafa miðlað þekkingu sinni og reynslu og veitt mér dýrmæt verkfæri sem munu nýtast mér áfram á tónlistarferðalaginu."
Tónleikarnir eru í Hátíðarsal skólans og hefjast stundvíslega kl 20:00, allir velkomnir og hlökkum til að sjá ykkur!
21/04/2026
Söngdeildin og skólinn settu upp rétt fyrir páska sýninguna Glamúr og Geimferðir þar sem tónlist Elton John var heiðruð.
Ótrúlega vel heppnuð uppfærsla sem áhorfendur áttu ekki til orð yfir. Eins og einn ákveðinn tónlistarmaður sem var staddur á annarri sýningunni sagði "Ég hef farið á professional sýningar sem voru ekki nærri jafn góðar og þessi!"
Þið sem tókuð þátt og að þessu stóðu, innilega til hamingju með ykkur. Ég fékk margoft tár í augun og get ekki lýst því hvað ég var stoltur og orðlaus yfir frammistöðu ykkar. Þetta var svo þétt og flott og í raun fagmennska í sinni hreinustu mynd.
Framtíðin er björt með ykkur í framlínunni!
Við fögnum svo komu sumars á sumardaginn fyrsta með frídegi, fyrir utan tónfræðiprófið :)
17/04/2026
Kæru nemendur, minni ykkur á Nótuna, viðburð á vegum allra tónlistarskóla í Reykjavík, í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun laugardag 18.apríl.
Viðburðurinn hefst kl 11 en okkar atriði fer á svið kl 13:00. Þar verða flutt tvö númer úr Elton John showi skólans.
Hvet ykkur öll til að mæta og styðja skólann okkar í að sýna hvers vegna nemendur ættu að velja okkur!
09/12/2025
Jólatónleikar Söngdeildar FÍH í Bústaðakirkju þann 10. desember.
Öll velkomin!
29/10/2025
Söngdeild FÍH heiðrar hljómsveitina NÝDÖNSK þriðjudaginn 4. nóvember kl 20 með vel völdum lögum úr þeirra yfirgripsmikla lagasafni.
Hljómsveitin Nýdönsk var stofnuð árið 1987 af nokkrum félögum í Menntaskólanum við Hamrahlíð og hefur starfað óslitið síðan. Sveitin er skipuð þeim stofnendum Daníel Ágústi Haraldssyni, Birni Jörundi Friðbjörnssyni og Ólafi Hólm, og Stefáni Hjörleifssyni og Jóni Ólafssyni sem gengu til liðs við sveitina í upphafi árs 1991. Nýdönsk hefur gefið út vel á annan tug hljómplatna með eigin efni og allir þekkja slagara eins og Fram á nótt, Hjálpaðu mér upp, Alelda, Frelsið, Flugvélar og Horfðu til himins og þannig væri hægt að telja áfram.
Tónleikarnir fara fram í hátíðarsal skólans og er miðasala við inngang og kostar 2000 kr inn (ATH. Frítt fyrir nemendur).
Fram koma:
Bríet Vagna Birgisdóttir
Brynjólfur Skúlason
Dýrleif Flókadóttir
Dögun Óðinsdóttir
Móheiður Ylfa Káradóttir
Sóley Arngrímsdóttir
Hildur Jónsdóttir
Edilon Edward Kristjánsson
Ástrún Friðbjörnsdóttir
Guðrún Gígja Vilhjálmsdóttir
Guðrún Ösp Sigurmundardóttir
Þórunn Freyja Brynjarsdóttir
Hallfríður Helga
Steinunn Jónsdóttir
Þorvaldur Sigurbjörn Helgason
Ragnheiður Silja Kristjánsdóttir
Guðmundur Daníel Erlendsson
Helga Sóley Ásgeirsdóttir
Sóley Júka Magnúsdóttir Kuwahara
Birgitta Sveinsdóttir
Hekla Óskarsdóttir
Móheiður Guðmunds
Iðunn Helgadóttir
Elín María Þórarinsdóttir
Hulda Eir Sævarsdóttir
Rökkvi Guðnason
Sigríður Tinna Bjarnadóttir
Sylvía Þórðardóttir
Matthildur Sóley Eggertsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir
Jóna Svandís Þorvaldsdóttir
Urður Oliversdóttir
Agnes Sólmundsdóttir
Ingibjörg Elín Jónsdóttir
Þórdís Huld Atladóttir
Hljómsveit:
Píanó: Jökull Jónsson
Bassi: Kári Kolbeinn Jónsson
Trommur: Elísabet Arna Gunnlaugsdóttir
Gítar: Hjörtur Stephensen
Gítar: Gunnar Hilmarsson