Tækniskólinn

Tækniskólinn Tækniskólinn skóli atvinnulífsins.

Einbeiting, atorka og samviskusemi einkenna fyrstu vikur haustannarinnar. Nemendur eru komnir á fullt í námi og verklegr...
23/09/2026

Einbeiting, atorka og samviskusemi einkenna fyrstu vikur haustannarinnar. Nemendur eru komnir á fullt í námi og verklegri kennslu og líf og fjör er í skólastarfinu 💙

Guðjón Ívar Gränz, Íslandsmeistari í málaraiðn, er nýkominn heim frá Svíþjóð eftir þátttöku í Norðurlandameistaramóti í ...
07/09/2026

Guðjón Ívar Gränz, Íslandsmeistari í málaraiðn, er nýkominn heim frá Svíþjóð eftir þátttöku í Norðurlandameistaramóti í faginu 🇸🇪

Keppnin fór fram dagana 31. ágúst til 4. september. Þar glímdu keppendur við tvö verkefni, annars vegar fyrir fram ákveðið verkefni sem fólst í að lakka, mála og veggfóðra og hins vegar frjálst verkefni 🎨🖌

„Heilt yfir gekk vel. Það var mjög gaman að taka þátt, verkefnin voru spennandi og maður lærði mikið. Ég kem reynslunni ríkari heim,“ segir Guðjón ✨

Guðjón stundar nú nám í fjármálaverkfræði við Háskóla Íslands en stefnir á að starfa áfram við málun samhliða náminu. Í framtíðinni gæti hann vel hugsað sér að sameina reynslu sína úr málaraiðn og þekkingu á viðskiptum í rekstri eigin fyrirtækis 🎓

Við óskum Guðjóni innilega til hamingju með frábæra frammistöðu 👏✨

03/09/2026

Sjáumst öll í treyjum á morgun, 4.september, til stuðnings börnum með krabbamein🌟👕

🎓 Til hamingju Stefan!Við óskum Stefani Erlendi Ívarssyni, fyrrverandi nemanda Tækniskólans, innilega til hamingju með s...
01/09/2026

🎓 Til hamingju Stefan!

Við óskum Stefani Erlendi Ívarssyni, fyrrverandi nemanda Tækniskólans, innilega til hamingju með styrk úr afreks- og hvatningarsjóði stúdenta við Háskóla Íslands 👏👏👏

Styrkirnir eru veittir nýnemum sem hafa náð framúrskarandi árangri til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum.

Við erum stolt af því að sjá fyrrverandi nemendur Tækniskólans halda áfram að láta að sér kveða og óskum Stefani velfarnaðar í náminu við Háskóla Íslands 🫶

Ljósmyndir: Kristinn Ingvarsson / Háskóli Íslands 📸

Miðviku­daginn 2. sept­ember verður sér­stakt nýnem­a­klúbba­kvöld haldið á Háteigs­vegi frá kl. 17:00-19:00. Boðið verð...
01/09/2026

Miðviku­daginn 2. sept­ember verður sér­stakt nýnem­a­klúbba­kvöld haldið á Háteigs­vegi frá kl. 17:00-19:00. Boðið verður upp á nammi, snakk og gos 🍭

Við hvetjum nýnema til að mæta, kynna sér starfið og eiga skemmti­lega kvöld­stund með sam­nem­endum 👏

Hlekkur á nánari upplýsingar í fyrstu athugasemd 🔗

01/09/2026

Takk kærlega fyrir frábæra nýnemaferð 🎉
Myndir úr ferðinni má finna á Flickr síðu Tækniskólans 📸

Guðjón Ívar Gränz á Norðurlandameistaramótið í málaraiðn 🎨Guðjón Ívar Gränz, Íslandsmeistari í málaraiðn, keppir fyrir Í...
31/08/2026

Guðjón Ívar Gränz á Norðurlandameistaramótið í málaraiðn 🎨

Guðjón Ívar Gränz, Íslandsmeistari í málaraiðn, keppir fyrir Íslands hönd á Norðurlandameistaramótinu í málaraiðn í Stokkhólmi dagana 31. ágúst til 4. september 🖌️🇸🇪

Málarameistarafélagið sendir jafnan Íslandsmeistarann til keppni og er þátttakan mikilvæg til að vekja athygli á málaraiðninni og kynna fagið. Keppnin er haldin annað hvert ár og árið 2024 var hún haldin á Íslandi 🥇

Við óskum Guðjóni góðs gengis í keppninni og hlökkum til að fylgjast með honum takast á við þetta spennandi verkefni! 👏✨🇮🇸

Fyrsti skóladagur Tækniskólans er í dag og NST bauð öllum nemendum upp á ís í tilefni dagsins 🍦Take it ís-í og velkomin ...
18/08/2026

Fyrsti skóladagur Tækniskólans er í dag og NST bauð öllum nemendum upp á ís í tilefni dagsins 🍦Take it ís-í og velkomin í skólann 😎

P.s. á morgun - miðvikudag - verður BINGÓ í hádeginu 🫶

Þeir voru innmúraðir og sælir, félagarnir sem luku sveinsprófi í múraraiðn, síðastliðinn föstudag 👏👏👏Slegið var til veis...
15/06/2026

Þeir voru innmúraðir og sælir, félagarnir sem luku sveinsprófi í múraraiðn, síðastliðinn föstudag 👏👏👏

Slegið var til veislu í múraradeild Tækniskólans og sveinsprófsnefnd, kennarar og fyrrum nemendur skólans fögnuðu þessum merka áfanga saman😎

Til hamingju með að hafa lokið sveinsprófinu ⚒️ Næst er það Meistaraskólinn 👌

Address

Skólavörðuholti
Reykjavík
IS-101

Opening Hours

Monday 08:00 - 15:00
Tuesday 08:00 - 15:00
Wednesday 08:00 - 15:00
Thursday 08:00 - 15:00
Friday 08:00 - 15:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tækniskólinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category