Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála vinnur að því að skapa vettvang umræðu og fræðslu um stjórnsýslu og stjórnmál, fyrir fagfólk jafnt sem áhugafólk.

Stofnað árið 2003. Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands er rannsóknar- og þjónustustofnun Stjórnmálafræðideildar og samstarfsaðila stofnunarinnar og starfar sem sjálfstæður aðili í tengslum við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.

Kall eftir greinumRitrýnda tímaritið Stjórnmál & stjórnsýsla kemur næst út í desember. Skilafrestur greina í tímaritið e...
17/08/2026

Kall eftir greinum
Ritrýnda tímaritið Stjórnmál & stjórnsýsla kemur næst út í desember. Skilafrestur greina í tímaritið er að vanda 1. október. Sjá nánar um tímaritið á vefsíðu þess irpa.is (https://ejournals.is/index.php/irpa).

Samráð sveitarfélaga við íbúa og hagaðila - nýtt námskeiðÞriðjudaginn 24. nóvember býður stofnunin upp á nýtt námskeið þ...
03/07/2026

Samráð sveitarfélaga við íbúa og hagaðila - nýtt námskeið

Þriðjudaginn 24. nóvember býður stofnunin upp á nýtt námskeið þar sem fjallað verður um samráð sveitarfélaga við íbúa og hagaðila. Þátttakendur munu fá innsýn í hvernig velja má réttar samráðsaðferðir fyrir ólík verkefni, hvernig ná má til fjölbreyttra hópa og hvernig vinna má úr þeirri þekkingu og sjónarmiðum sem fram koma. Kennari í námskeiðinu er Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, sem starfað hefur í sjö ár að lýðræðismálum fyrir Reykjavíkurborg auk þess að vera stundakennari við Stjórnmálafræðideild HÍ.

Sjá nánar hér á vef stofnunarinnar:
https://stjornsyslustofnun.hi.is/is/samrad-sem-skilar-arangri-ibuar-hagadilar-og-sveitarfelog-nytt-namskeid

Út er komið 1. tbl. 23. árg. TVE-Tímarits um viðskipti og efnahagsmál, í opnum aðgangi á vef tímaritsins efnahagsmal.is....
24/06/2026

Út er komið 1. tbl. 23. árg. TVE-Tímarits um viðskipti og efnahagsmál, í opnum aðgangi á vef tímaritsins efnahagsmal.is.

Að þessu sinni koma út þrjár ritrýndar fræðigreinar:

Ávöxtun og áhætta séreignarsparnaðar
Gylfi Magnússon og Kári Sigurðsson

Frá viðveru til sveigjanleika: Fjarvinna og umbreyting vinnumenningar í íslenskum fyrirtækjum
Hjördís Sigursteinsdóttir og Ólöf María Stefánsdóttir

Þekking á hreyfingu: Óbein þekkingaráhrif af opinberum nýsköpunarstyrkjum til fyrirtækja í gegnum hreyfanleika starfsfólks
Haraldur Bergvinsson, Hannes Ottósson og Rögnvaldur J. Sæmundsson

Útgefendur TVE eru Seðlabanki Íslands og viðskipta- og hagfræðideildir Háskólans á Bifröst, Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands. Formaður ritstjórnar er Þórhallur Örn Guðlaugsson, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Sjá nánar um tímaritið á vef þess efnahagsmal.is.

Breytingar á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna - upptaka af útgáfufundi Tímaritið Stjórnmál & stjórnsýsla kom út (1. t...
23/06/2026

Breytingar á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna - upptaka af útgáfufundi

Tímaritið Stjórnmál & stjórnsýsla kom út (1. tbl. 22. árg.) mánudaginn 22. júní og á opnum útgáfufundi kynnti Gylfi Magnússon, prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, grein sína um breytingar á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna. Upptöku af fundinum / erindinu má nálgast hér (og einnig á vef stofnunarinnar): https://hi.cloud.panopto.eu/Panopto/Pages/Viewer.aspx?id=17387565-2114-48d2-8366-b47101007785

Stjórnmál & stjórnsýsla komið út - sjö ritrýndar fræðigreinarÚt er komið 1. tölublað 22. árgangs ritrýnda tímaritsins St...
22/06/2026

Stjórnmál & stjórnsýsla komið út - sjö ritrýndar fræðigreinar
Út er komið 1. tölublað 22. árgangs ritrýnda tímaritsins Stjórnmál & stjórnsýsla, í opnum aðgangi á vefnum irpa.is. Að þessu sinni koma út sjö ritrýndar fræðigreinar um fjölbreytt málefni sem tengjast stjórnmálum og stjórnsýslu. Sjá nánar hér á vef tímaritsins: https://www.ejournals.is/index.php/irpa/issue/view/448

Address

Sæmundargötu 10
Reykjavík
102

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála:

Shortcuts

Share

Category