Tilgangur Velferðalags er að breiða út boðskap jákvæðrar sálfræði með það að markmiði að auka vellíðan og hamingju einstaklinga, hópa og samfélagsins í heild. Nú í júní 2024 erum við t.d. að fara af stað með þriggja daga námskeið fyrir kennara í samvinnu við Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði :)
Hægt er að hafa samband við okkur hér eða með því að senda okkur tölvupóst á netfangið [email protected]. Nánar um okkur:
Ilmur Dögg Níelsdóttir, hjúkrunarfræðingur með sérnám í heilsugsæsluhjúkrun, diplóma í geðheilbrigði og útskriftarnemi í diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði frá EHí.
Ólína Þorleifsdóttir, kennari, skólastjóri, markþjálfi og útskriftarnemi í diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði frá EHí. Silja Þórðardóttir, lyfjafræðingur, jógakennari og útskriftarnemi í diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði frá EHí.