25/09/2026
🎬 Tvöföld tímamót!
Kvikmyndanám við Kvikmyndaskólann er nú staðfest á efsta þrepi framhaldsskólastigs. Mennta- og barnamálaráðuneytið staðfesti námskrána okkar 9. september ✅
Á miðvikudaginn vígðum við svo nýja 1.300 fm aðstöðu í Vatnagörðum 4, hannaða frá grunni fyrir kvikmyndanám: þrjú kennslustúdíó, bíósal, klippisvítur og kennslustofur.
Takk öll sem kíktuð við og fögnuðuð með okkur, og takk Stúdíó Sýrland, Rafmennt og allir samstarfsaðilar 🙏
📺 RÚV, 🎙️ Bylgjan og 📰 mbl.is fjölluðu um málið. Hlekkir í athugasemd 👇
Viltu verða hluti af næstu kynslóð íslensks kvikmyndagerðarfólks? Kynntu þér námið á kvikmyndaskolinn.is