Kennslumiðstöð Háskóla Íslands

Kennslumiðstöð Háskóla Íslands

Share

Meginmarkmið Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands er að stuðla að þróun kennsluhátta innan Háskóla Íslands.

Tímarit Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands | Setberg 13/03/2026

Tímarit Kennslumiðstöðvar HÍ er loksins komið út! Það er stútfullt af áhugaverðum greinum frá kennurum og starfsfólki og fréttum að spennandi verkefnum á sviði kennslu og kennsluþróunar. Rafræna útgáfu er hægt að nálgast á Setbergsvefnun https://setberg.hi.is/is/timarit-kennslumidstodvar-haskola-islands
Endilega skoða!

Tímarit Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands | Setberg Greinar í Tímariti Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands 2025 Grein eftir Hafstein Einarsson, Maríu Kristínu Bjarnadóttur og Rögnu Benediktu Garðarsdóttur um fyrstu gervigreindarstefnu Háskóla Íslands Grein eftir Sigurbjörgu, Ástu, Hafstein, Maríu og Bethany um viðhorf, notkun og þ...

Kennsludagar 2025 17/03/2025

Kennsludagar í HÍ og HA, eru frá 17. til 21. mars. Sjá nánar:

Kennsludagar 2025 Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Safnafræði í fjarnámi 11/03/2025

Upptaka frá fyrirlestri Guðrúnar Dröfn Whitehead, lektors, á vefstofunni um Safnafræði í fjarnámi (Safnafræði við Háskóla Íslands) -

Safnafræði í fjarnámi Á vefstofu Fjarska - samtaka um fjarnám og stafræna kennsluhætti og Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands, 6. mars 2025, var Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í Saf...

09/12/2024

Vinnustofa um virkar kennsluaðferðir sem takast á við samfélagslegar áskoranir

Vinnustofan fer fram á ensku 16.12.2024, kl. 10-11:30. í Setbergi-Suðurberg, 3ja hæð, kl.10:00-11:30

Kennslumiðstöð býður upp á vinnustofu með Dr. Juan Pablo Mora, dósent í málvísindum við Háskólann í Sevilla, sem mun kynna nýstárlegar kennslufræðilegar nálganir sem nýta virkar kennsluaðferðir til að takast á við samfélagslegar áskoranir nútímans. Kynning hans mun fjalla um nokkrar kennsluaðferðir, þar á meðal COIL (rafrænt alþjóðlegt samvinnunám), CSL (samfélagsþjónustunám), áskorunarmiðað nám og hönnunarhugsun/ECO aðferðafræði.

Dr. Mora mun fjalla um alþjóðleg verkefni sem nemendur hans hafa tekið þátt í á undanförnum árum, með sérstakri áherslu á RASDELE verkefnið. Þetta alþjóðlega þróunar- og samstarfsverkefni milli Tifariti háskólans og Háskólans í Sevilla spratt upp úr nemendaverkefni í hagnýtum málvísindum hjá Dr. Mora. Verkefnið snýst um spænskukennslu fyrir kennara og nemendur í grunn- og framhaldsskólum í flóttamannabúðum Sahrawi arabíska lýðveldisins (SADR) í Tindouf, Alsír.

Byggt á árangri verkefnisins mun nýr styrkur frá stjórnvöldum Andalúsíu styðja við 20 ný hreyfanleikastörf árið 2025. Verkefnið hefur þegar skilað mikilvægum akademískum árangri, þar á meðal fjórum fullunnum meistaraverkefnum og var eitt þeirra varið við Háskóla Íslands í september 2024.

Að auki mun Dr. Mora ræða um "Language Matters," samstarfsverkefni milli Háskólans í Sevilla og Hong Kong Polytechnic háskólans. Þetta COIL verkefni paraði saman málvísindanema frá báðum stofnunum til að þróa og innleiða verkefni sem sýna hvernig hægt er að beita málvísindalegri sérþekkingu til að takast á við samfélagslegar áskoranir.

HÍ ásamt Aurora háskólunum níu hafa lagt áherslu á samfélagsmiðað nám og eru COIL, CSL og áskorunarmiðað nám allt kennsluaðferðir sem eru hluti af kennsluhugsjón Aurora, sem gerir þessa vinnustofu sérstaklega áhugaverða.

09/12/2024

Jólakennslukaffi Kennslumiðstöðvar
Tími: 18. desember 2024, kl. 15-16
Staður: Setberg - 3.hæð í Suðurbergi, kl. 15-16.
Allir velkomnir.
HÍ starfsfólk beðið um að skrá sig til að hægt sé að áætla magn veitinga: https://ugla.hi.is/vidburdir/SkodaVidburd.php?sid=1448&vidburdur_id=10013

Hjá okkur í Kennslumiðstöð er jólakennslukaffi alltaf tilhlökkun. Við kertaljós og piparkökur fáum við handhafa viðurkenningar vegna lofsverðs framlags til kennslu til að koma til okkar og spjalla um kennslusýn sína og kennsluhætti. Og þar er sko hægt að læra eitt og annað!

Í ár hlaut Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, prófessor í Stjórnmálafræðideild viðurkenninguna. Það má sannarlega segja að þar sé á ferðinni frumkvöðull í kennslu sem brennur af áhuga fyrir því að gera vel. Hún hefur sérstaklega beitt sér fyrir því að færa námsleið í opinberri stjórnsýslu í einstaklega vel skipulagt fjar- og netnám. Jafnframt, með fjölbreyttum leiðum, tekist að skapa styðjandi námssamfélag sem er hreint ekki einfalt verkefni í fjarkennslu. Í jólakennslukaffinu mun Sigurbjörg deild með okkur reynslu sinni og sýn í kennslu.

09/12/2024

Netráðstefna Menntavísindasviða HÍ og UPEC (París) um gervigreind og nám.
Tími: Þriðjudagur, 10. desember 2024, kl. 9-12:30
Staður: Zoom: https://u-pec-fr.zoom.us/j/92013924013
Allir velkomnir: Án gjaldtöku
Dagskrá: 9.00 Opening : Martin Schwell, VP Aurora UPEC, Sophie Renaut, Dean of School of Education, University Paris-Est Créteil
9.15 Practical Perspectives on Using AI in Online Teaching: The Case of Information Science Sigurbjörg Jóhannesdóttir
9.35 Reflective Perspectives in Critical AI Education Aude Seurrat de la Boulaye, CEDITEC laboratory
9.55 Using Artificial Intelligence with Students Responsibly: Training critical thinking and deep learning. Hróbjartur Árnason
10.15 Discussion
10.30 AI as a teaching assistant: New approaches to meeting modern students' needs Tryggvi Thayer,
10.50 Use of Artificial Intelligence in the Field of Education and Training Gregory Quiquempois & Philippe Goémé
11.10 Icelandic Academic Words and Artificial Intelligence Ragnar F. Ólafsson, Ph.D. Candidate, Sigríður Ólafsdóttir, Ph.D. & Auður Pálsdóttir, Ph.D.
11.30 Use of digital tools in learning to read Xavier Aparicio, PhD & Camille Pistre, PhD candidate, CHArt Laboratory
11.50 Discussion
12.05 Synthesis and closing Kolbrún Pálsdóttir, Dean of School of Education, University of Iceland
Discussant: Skúlína Hlíf Kjartansdóttir, adjunct lecturer University of Iceland.
URL: https://www.hi.is/vidburdir/netradstefna_menntavisindasvida_upec_paris_og_hi_um_gervigreind_og_nam

16/08/2024

Hugvísindasvið Háskóla Íslands var með fræðslu- og umræðufund um kennslu 15. ágúst 2024, þar sem Sigurbjorg Johannesdottir frá Kennslumiðstöð var með klukkustunda langt erindi um gervigreind í kennslu. Hægt er að hala glærunum niður sem pdf eða pptx frá vefslóðinni: https://iris.rais.is/is/activities/gervigreind-%C3%AD-kennslu-fr%C3%A6%C3%B0slu-og-umr%C3%A6%C3%B0ufundur-%C3%A1-hugv%C3%ADsindasvi%C3%B0i . Umræður kennara voru góðar og miklar, augljóst að það er mikill áhugi á gervigreind. Kennarar voru sammála um að þeir upplifa mikið óöryggi þegar kemur að gervigreind og 75% af kennurunum hefur aldrei notað gervigreind í kennslu.

Gudrun Geirsdottir 01/08/2024

Í ár set ég mér afar metnaðarfullt markmið í söfnun. Mig langar til að aðstoða hugsjónakennara í fátækrahverfinu Mabatini í Nairobi til að reisa skóla sem sópað var í burtu í flóðum í vor. Söfnunin fer fram í gegnum góðgerðafélagið Broskalla sem eru að vinna að einstöku skólaþróunarverkefni í Kenýa og víðar. Veit að ég set markmið hátt en margt smátt gerir eitt stórt - og það er jú útborgunardagur í dag:-)

Gudrun Geirsdottir Hleypur fyrir Styrktarfélagið Broskallar

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Suðurgötu 43
Reykjavík
102

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 12:00