Pútter vikunnar nr.5 - TaylorMade Spider GTX
Logi Bergmann heldur áfram að fara yfir púttera í safni sínu. Núna er komið að einum nýlegum í safninu TaylorMade Spider GTX. Þetta er vinsæll pútter en þrátt fyrir það er Logi alls ekki að tengja við þennan pútter og er hann því mikið geymdur í bílskúrnum⛳📉
Seinni níu
Hlaðvarp um golf í þágu þjóðar. Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson.
12/08/2026
Gísli Hall er formaður í fjölmennasta golfklúbbi í heimi⛳🔝
Við fengum til okkar Gísla Guðna Hall, lögmann og formann Golfklúbbs Reykjavíkur. Við í Seinni níu höldum því fram að GR sé fjölmennasti golfklúbbur í heimi, en hjá klúbbnum eru nú um 3.500 félagsmenn.
Í þættinum ræðum við um nýafstaðið Íslandsmót sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli. Mótið heppnaðist með eindæmum vel. Gísli fór yfir mótið og hvaða þýðingu það hefur fyrir klúbbinn að halda Íslandsmót.
Við verjum góðum tíma í að ræða þær endurbætur sem standa yfir í Grafarholti. Þar er stefnt að því að endurbyggja allar flatir vallarins í áföngum og í sumar voru teknar í notkun nýjar flatir á fyrstu þremur brautum vallarins. Mjög spennandi verkefni.
Gísli er góður kylfingur og hefur lengi verið með lága forgjöf. Hann spilar mikið og víða um heim. Gísli á það á ferilskránni að hafa s*x sinnum farið holu í höggi, þar af á nokkrum af erfiðari par-3 brautum valla GR.
Draumahollið og kraftröðunin eru að sjálfsögðu á sínum stað í þessum mjög skemmtilega og áhugaverða þætti. Í raun skylduhlustun fyrir félagsmenn í GR.
Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/6eiAV7elgcrT09TXfjjkAW?si=ZXKqwpXUTb2z_-cL_LRQHA
Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG |
🧼 Lindin bílaþvottastöð| 🏌️ Golfsvítan
🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 💸 Arion Banki
🏠 Betri Stofan |🏌️♀️ Golfskálinn | 👷♂️ Giggo
🔨 BYKO | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol
Góðærispútterinn - Pútter vikunnar⛳🎯
Logi Bergmann heldur áfram að fara yfir þá fjölmörgu púttera sem hann á í bílskúrnum. Nú er komið að góðærispútternum svokallaða sem Logi fékk í teiggjöf á Arctic Open mótinu árið 2006 þegar mótið fagnaði 20 ára afmæli. Um er að ræða Odyssey Duel Force II Rossi sem var mjög vinsæll pútter á þeim tíma.
04/08/2026
Rúrik tvívegis misst af rástíma með Figo⛳
Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna. Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason kom í heimsókn en hann hóf að leika golf fyrir rúmum þremur árum og hefur náð ótrúlegum tökum á íþróttinni.
Rúrik er með 8,7 í forgjöf og leikur aðallega golf í Madríd, þar sem hann er nú búsettur. Hann er í sama golfklúbbi og þekktir knattspyrnumenn á borð við Luís Figo og Raúl og hefur tvívegis fengið boð um að spila með þeim. Í bæði skiptin þurfti Rúrik hins vegar að afþakka en á inni hring með þessum goðsögnum.
Í þættinum, sem er sá lengsti frá upphafi Seinni níu, er komið víða við. Rúrik fer yfir helstu mistökin sem hann gerði þegar hann var að byrja í golfi og gefur byrjendum góð ráð í skemmtilegri kraftaröð. Draumahollið var sérstaklega huggulegt en þar kemur David Beckham við sögu. Rúrik segir meðal annars sprenghlægilega sögu af því þegar hann hitti Beckham á veitingastað. Sömuleiðis gerði Rúrik upp feril sinn sem kylfusveinn sem endaði með eftirminnilegu atviki í Borgarnesi.
Þetta er meiriháttar þáttur þar sem margt áhugavert ber á góma. Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/3fmJUO1zsGrigWsuDjLapv?si=xKjGs4LmQ62ApOZiDgcOqg
Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG |
🧼 Lindin bílaþvottastöð| 🏌️ Golfsvítan
🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 💸 Arion Banki
🏠 Betri Stofan |🏌️♀️ Golfskálinn | 👷♂️ Giggo
🔨 BYKO | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol
Pútter vikunnar vol.3 - T-Line IV PGA
Logi liggur á einum safngrip í púttersafni sínu. Þennan pútter fékk Logi Bergmann á ótrúlegu verði í Goodwill, Hjálpræðisher þeirra Bandaríkjamanna. Magnað hvað pútterar hafa þróast mikið.
28/07/2026
Mikil gleði í Seinni Níu Invitational✨
Seinni Níu Invitational fór fram í Grindavík sl. föstudag og óhætt er að segja að mótið hafi heppnast vel. 96 keppendur tóku þátt í mótinu og var leikhraði aðeins 4:25 klst þrátt fyrir að allir keppendur hafi verið ræstir út samtímis.
Lið Betri stofunnar fagnaði yfirburðarsigri í mótinu. Leikinn var fjögurra manna betri bolti og mæltist leikformið vel fyrir. Veitt voru verðlaun á öllum par-3 brautum vallarins. Á 2. braut var XPENG G6 í verðlaun fyrir holu í höggi og var Oddur Pétur Ottesen aðeins 26 cm frá glænýjum XPENG!
Úrslit í mótinu má nálgast hér á glæsilegri mótasíðu hjá Golf GameBook👇👏
https://tournament-site.golfgamebook.com/tournament/89774
Við þökkum öllum keppendum kærlega fyrir þátttökuna og sömuleikið okkar frábæru styrktaraðilum sem tryggðu að allir þátttakendur mótsins fengu verðlaun í mótslok🙏
28/07/2026
Séra Hjálmar þrisvar farið holu í höggi á sömu holu🎯⛳
Við fengum séra Hjálmar Jónsson í gott spjall í Seinni níu. Hann hefur leikið golf í rúm 20 ár og er með rétt tæplega 20 í forgjöf. Hjálmar er auðvitað prestur og við veltum því fyrir okkur hvort það hjálpi að vera með Guð í liði á golfvellinum.
Í sumar náði Hjálmar þeim ótrúlega áfanga að fara í þriðja sinn holu í höggi á 8. braut á Urriðavelli. Sú umræða fór auðvitað ekkert fyrir brjóstið á Loga. Presturinn sagði okkur einnig magnaða sögu af aðdragandanum að því þegar hann fór holu í höggi á 4. braut á Urriðavelli. Æðri máttarvöld virtust þar hafa verið með í för.
Hjálmar er ennþá að bæta sig í golfinu og slær beinna með árunum. Þetta var stórmerkilegur þáttur enda er Hjálmar einstakur sögumaður. Draumahollið var á sínum stað og að lokum fórum við yfir kraftröðun þeirra atvinnukylfinga sem eru trúaðir.
Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/1h2ZApdfABKWN18J7bD2Iu?si=t_BKsQHOQ9OLHFrKR4dAXw
Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG |
🧼 Lindin bílaþvottastöð| 🏌️ Golfsvítan
🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 💸 Arion Banki
🏠 Betri Stofan |🏌️♀️ Golfskálinn | 👷♂️ Giggo
🔨 BYKO | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol
26/07/2026
Hulda Clara á yfir 200 metra ás⛳
Það var líf og fjör hjá okkur í Seinni níu að loknu Opna breska. Við tókum létta umræðu um það en fengum líka frábæran gest því Hulda Clara Gestdóttir kom í heimsókn til okkar.
Hulda Clara er atvinnukona í golfi og vann sinn fyrsta sigur sem atvinnumaður í síðasta mánuði. Hún leikur á LET Access mótaröðinni sem er næststerkasta atvinnumannamótaröð kvenna í Evrópu. Hún hefur jafnframt tvívegis orðið Íslandsmeistari.
Hulda sagði okkur aðeins frá því hvernig hún byrjaði í golfi og þegar hún fór holu í höggi á yfir 200 metra langri par-3 braut. Hún hefur tvívegis farið holu í höggi en vill síður ræða það hvernig seinni ásinn atvikaðist. Skemmtileg saga.
Hulda segir okkur frá lífi sínu sem atvinnumaður, og hvernig þekking á reglunum getur hjálpað í golfi. Hún tók dómararréttindi í vetur til að efla þekkingu sína á reglunum. Hvað á maður t.d. að gera þegar api tekur boltann þinn við keppni í Suður-Afríku?
Frábær þáttur með þar sem við fáum auðvitað draumaholl og kraftröðun.
Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/5cFgR0H1k7mY5e0mZFPXJQ?si=LRo_0nd4TK6BHBddOqFUIg
Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG |
🧼 Lindin bílaþvottastöð| 🏌️ Golfsvítan
🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 💸 Arion Banki
🏠 Betri Stofan |🏌️♀️ Golfskálinn | 👷♂️ Giggo
🔨 BYKO | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Telephone
Address
Borgartún 35
Reykjavík
105