Fab Lab Reykjavik

Fab Lab Reykjavik Fablab Reykjavík er staðsett í FB, Austurbergi 5. Inngangurinn okkar er á beint á móti sundlauginni. Strætó númer 3, 4, 12 og 17 stoppa hjá Gerðubergi.

English:(Icelandic Below)In April, all Fab Lab staff did a training with Regnbogavottun. This training focused on q***r ...
20/08/2026

English:
(Icelandic Below)

In April, all Fab Lab staff did a training with Regnbogavottun. This training focused on q***r issues and on making our space more inclusive. While we have always strived to be an inclusive space, this experience really helped us understand specific q***r issues and gave us tools as staff to support an open space.

Since this training, we have added pronouns to our staff board, added pride flags that will stay up year-round, and added a monthly meeting about any potential issues in the space. This is just the beginning. We are all so glad to work in an inclusive space that is actively working on q***r issues and inclusivity.

Icelandic:

Í apríl fóru allir starfsmenn Fab Lab í fræðslu hjá Regnbogavottun Reykjavíkurborgar. Þessi fræðsla snéri að hinsegin málefnum og því hvernig við getum gert vinnustaðinn opnari. Þó að við höfum ávallt lagt áherslu á að vera rými þar sem öll eru velkomin, hjálpaði þessi fræðsla okkur að skilja ákveðin hinsegin málefni betur og gaf okkur verkfæri til að styðja betur við opið og öruggt rými.

Eftir fræðsluna höfum við bætt við fornöfnum við kynningu á starfsfólki, sett upp hinsegin fána sem verða uppi allt árið og komið á mánaðarlegum fundum þar sem farið er yfir möguleg mál sem kunna að koma upp í rýminu. Þetta er aðeins byrjunin. Við höfum sett okkur aðgerðaráætlun til að halda áfram að bæta okkur og gera rýmið enn opnara og aðgengilegra fyrir öll. Við erum öll afar þakklát fyrir að starfa í opnu og öruggu rými.

🚙 V rámci pracovnej cesty na Island sme navštívili vybrané FabLaby, ktoré sú súčasťou medzinárodnej siete otvorených die...
18/08/2026

🚙 V rámci pracovnej cesty na Island sme navštívili vybrané FabLaby, ktoré sú súčasťou medzinárodnej siete otvorených dielní podporujúcich inovácie, vzdelávanie, kreativitu a praktické využívanie moderných technológií. Navštívené pracoviská sú zároveň členmi asociácií Fab Lab Iceland a Nordic FabLab Network, ktoré združujú FabLaby zo severských krajín – Islandu, Nórska, Švédska, Fínska a Dánska. 🌎

Navštívili sme sedem FabLabov v rôznych regiónoch krajiny. Zamerali sa na ich fungovanie v praxi – od technického vybavenia, cez vzdelávacie aktivity až po spôsob financovania a zapojenie miestnych komunít.

Inšpiratívnym momentom bol dôraz na otvorenosť, dostupnosť technológií aj v menších mestách a prepojenie FabLabov so školami, samosprávami a lokálnymi partnermi. Zaujímavý bol aj rôznorodý model financovania, ktorý kombinuje verejné zdroje, granty aj vlastnú činnosť.

✨ Islandský model ukazuje, ako môže FabLab fungovať ako živé komunitné centrum pre inovácie, vzdelávanie a rozvoj zručností. Získané skúsenosti a nové kontakty plánujeme využiť pri ďalšom rozvoji FabLabu KKC Hviezda a pri príprave jeho smerovania v nasledujúcich rokoch.

Navštívené FabLaby:
FabLab Húsavík
FabLab Hornafjörður
Fab Lab Akureyri
Fab Lab Sauðárkrókur
Icelandic Textile Center
Fab Lab Vesturlands
Fab Lab Reykjavík

13/08/2026

Á mánudaginn verður smiðjan lokuð vegna undirbúnings nýrrar annar.

Um daginn fengum við hjá Fab Lab Reykjavík heiðurinn að taka á móti starfsfólki hjá Klak - Icelandic Startups í heimsókn...
07/07/2026

Um daginn fengum við hjá Fab Lab Reykjavík heiðurinn að taka á móti starfsfólki hjá Klak - Icelandic Startups í heimsókn til að sýna þeim hvaða þjónustu og tæki við bjóðum upp á. Við ræddum einnig hvernig við getum sameinað krafta okkar í að styðja sem best við frumkvöðla.

Fengu þau að prófa hvað hægt er að gera í leysiskerunum okkar með því að lasermerkja glös og skera út lyklakippur í plexýgler.

Þetta var ótrúlega skemmtilegt - kærar þakkir fyrir komuna og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs!

Fab Lab Reykjavík er stafræn smiðja með rausnarlega opnunartíma með starfsmanni á vakt til að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda meðal almennings, innan menntastofnana og í atvinnulífinu.

https://www.flr.is/post/klak-icelandic-startups-%C3%AD-heims%C3%B3kn-%C3%AD-fab-lab-reykjav%C3%ADk

24/06/2026

Á morgun fimmtudag þurfum við að loka kl.14, og opnum svo aftur kl.12 á föstudag.

Sumaropnun 2026 er komin! Hægt er að sjá nárar gegnum hlekkinn. Hlökkum til að sjá hvaða hugmyndir þið hafið í sumar.
04/06/2026

Sumaropnun 2026 er komin! Hægt er að sjá nárar gegnum hlekkinn. Hlökkum til að sjá hvaða hugmyndir þið hafið í sumar.

Nú er sumartíminn kominn og það verður breyttir opnunartímar hjá okkur.Hefðbundnir opnunartímar út 2. júlí og munum hafa opið eingöngu á miðvikudögum eftir 6. júlí og hér að neðan eru frekari upplýsingar um tímana. Engar breytingar verða á viðburðum.OPIÐ8. júlí 10-1515...

Fabconnecther: Að styðja stelpur og konur í nýsköpunErasmus+ verkefnið FabConnectHer hefur sameinað konur um alla Evrópu...
01/06/2026

Fabconnecther: Að styðja stelpur og konur í nýsköpun
Erasmus+ verkefnið FabConnectHer hefur sameinað konur um alla Evrópu til að læra og vaxa á sviði stafrænnar framleiðslu og frumkvöðlastarfsemi. Með vinnustofum, tengslamyndun og hagnýtri reynslu í verkefnastofum hefur verkefnið hjálpað þátttakendum að byggja upp nýja færni og sjálfstraust.
FabConnectHer lagði áherslu á að búa til stuðningsefni og sérstaka áherslu á efni fyrir leiðbenendur til að styðja stelpur og konur í STEAM. Margar skemmtilegar og fræðandi vinnustofur voru haldnar og ný reynsla á óreyndum efniviðum sem við höfðum ekki notað áður í Fab Labinu eins og t.d. laser skera út hitapressaða flöskutappa til að búa til eyrnalokka.
Þökk sé hollustu og góðs samstarfs milli samstarfsaðila, leiðbeinenda og sérstaklega þeim frábæru þátttakendum sem gerðu þessa ferð ógleymanlega, hefur FabConnectHer skapað rými fyrir konur til að tengjast, deila hugmyndum og kanna tækifæri í raunvísindum, tækni, verkfræði og nýsköpun.
Við erum stolt af því að sjá hvernig verkefnið hefur haft jákvæð áhrif, dafnað og hjálpað til við að opna dyr fyrir konur á þessum sviðum.

22/05/2026

Frábært að sjá hvað rafvirkjanemar í FB hafa skapað í Fab Lab Reykjavík 👏

Nemendur hönnuðu rafrásir í KiCAD, framleiddu rafrásaspjöld, lóðuðu íhluti og forrituðu vélarnar til að stýra mótorum. Þau notuðu einnig laserskera, þrívíddarprentuðu hluta og settu vélarnar sjálf saman frá grunni.

Útkoman eru tvö skemmtileg verkefni — djúsvél annars vegar og plinko-leikur með teningi hins vegar 🎲⚡

Sköpun, hönnun og tækni allt á einum stað 🚀

Fab Lab Reykjavík er stafræn smiðja staðsett í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er opin fyrir öll sem vilja þróa sínar hugmyndir.

Í næstu viku verður lokað vegna endurmenntunar starfsmanna
19/05/2026

Í næstu viku verður lokað vegna endurmenntunar starfsmanna

Í næstu viku (26.-29. maí) munu starfsmenn Fab Lab Reykjavíkur heimsækja Fab Lab Sauðárkrók og taka þátt í æfingabúðum Fab Lab Íslands og með því mun smiðjan vera lokuð. Einnig viljum við upplýsa ykkur að opnunin í sumar mun koma í ljós í byrjun júní og munum láta ykkur...

13/05/2026

Í dag, miðvikudaginn 13.maí lokum kl.16 vegna óviðráðanlegra aðstæðna

Address

(Fjölbrautaskólinn í Breiðholti) Austurberg 5
Reykjavík
111

Opening Hours

Monday 10:00 - 16:00
Tuesday 10:00 - 20:00
Wednesday 10:00 - 20:00
Thursday 10:00 - 16:00
Friday 10:00 - 16:00

Telephone

+3545705636

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fab Lab Reykjavik posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Fab Lab Reykjavik:

Shortcuts

Share

Category