Auðun Gunnarsson lék með glæsibrag stef úr klarinettukonsert Mozarts á vortónleikunum 23. maí.
❤️❤️❤️
Tónstofa Valgerðar
www.tonstofan.is Nemandi í Tónstofunni getur lagt stund á hefðbundið tónlistarnám. Kennsla fer fram í einstaklingstímum og fámennum hópum.
Tónstofa Valgerðar var stofnuð árið 1987. Í Tónstofunni fer fram tónlistarkennsla fyrir nemendur sem geta ekki tileinkað sér hefðbundna tónlistarkennslu. Tónstofan er eini tónlistarkólinn á landinu þar sem nemendur með sérþarfir njóta forgangs. Öll kennslan tekur mið af forsendum og þörfum hvers einstaks nemanda. Hann getur einnig notið fjölþættrar tónlistarkennslu og þjálfunar sem beinist að því
15/06/2026
Síðustu tónleikar skólaársins voru laugardaginn 23. maí. Þá stigu á svið nokkrir af nemendum Ara og Valgerðar. Við erum alltaf jafn stolt af þessum snillingum sem njóta þess að koma fram og að gleðja aðra. Framfaraskrefin stór og smá eru ófá á liðnum árum. Til hamingju snillingar!
❤️❤️❤️
12/06/2026
Við þökkum nemendum Ásbjargar kærlega fyrir gleðina og dugnaðinn á tónleikunum 17. maí.
❤️❤️❤️
Við þökkum líka Ásbjörgu kærlega fyrir að taka að sér nemendahóp Ásu Dóru í vetur sem var í barneignarleyfi. Við kveðjum þær báðar með þakklæti og söknuðu og óskum þeim velfarnaðar í lífi og starfi. 💐💐
11/06/2026
Gleðin hélt áfram í Tónstofunni og nemendur Marie sem vildu koma fram á tónleikum létu ljós sitt skína. Við þökkum þeim kærlega fyrir að deila með okkur ljúfri stund og fallegum tónum.
❤️❤️❤️
08/06/2026
Ljósmyndir frá tónleikum í Tónstofunni sunnudaginn 10. maí.
Valgeir Daði Einarsson hélt sína fyrstu nemendatónleika í Tónstofunni. Við bjóðum Valgeir Daða hjartanlega velkominn til starfa. Nemendahópur hans skein skært á tónleikunum og gladdi alla viðstadda.
Það verður spennandi að fylgjast með hópnum vaxa á komandi skólaári.
Á þessum tónleikum kom einnig Hljómsveitin Okkar fram í annað sinn.
Þið eruð snillingar!
03/06/2026
Mínerva M. Haraldsdóttir hélt síðustu vortónleikana í Tónstofunni með hluta af nemendahópnum sínum sunnudaginn 10. maí.
Mínerva hefur starfað í Tónstofunni fyrst sem afleysingakennari skólaárið 2015–2016 og síðan samfleytt frá haustinu 2018 eða samtals í 9 ár. Við þökkum henni hjartanlega fyrir úthaldið, dugnaðinn og allt sem hún hefur gefið nemendahópnum og Tónstofunni. Mínervu verður sárt saknað!
Um leið og við þökkum henni hjartanlega fyrir samstarfið og framúrskarandi störf á liðnum árum óskum við henni góðra stunda og nýrra ævintýra um ókomin ár.
Hjartans þakkir fyrir allt elsku Mínerva! ❤️💚🧡💜
Kæru nemendur og forráðamenn.
Samkvæmt skóladagatali Tónstofunnar sem finna má á heimasíðu hennar þá lauk kennslu í Tónstofunni föstudaginn 29. maí.
Ég vek athygli á því að ef kennari hefur ákveðið annað, vegna forfalla eða tilfærslu á frídögum, þá mun hann hafa samband við nemendahópinn sinn.
Undirrituð þakkar frábærum kennurum, skólanefndinni, velunnurum, nemendunum öllum og forráðamönnum hjartanlega fyrir gjöfult samstarf, gleði og lærdóm á skólaárinu.
Við hlökkum til að eiga með ykkur fleiri skemmtileg tónlistarævintýra næsta vetur ef velvilji skóla- og frístundasviðs, skóla- og frístundaráðs og borgarráðs er fyrir því að Tónstofan lifi áfram.
Á næstu dögum munum við birta myndir frá vortónleikunum okkar sem urðu samtals 7 að þessu sinni.
Cristina-Elena Furdui leikur og syngur fyrir okkur Við gengum tvö, lag Friðrik Jónsson, texti Valdimar Hólm Hallstað.
Gleðilegt sumar!
18/05/2026
Kærar þakkir Margrét!
Mikilvægi Tónstofunnar felst m.a. í því að standa vörð um réttindi fatlaðs fólks til að nýta og þróa hæfileika sína og til að stuðla að virkri þátttöku þeirra í menningarlífi og listum. Síðastliðin 39 ár og í farsælu og margverðlaunuð starfi höfum við í Tónstofunni hlúð að hundruðum nemenda og séð þá blómstra og eflast sem manneskjur í listnámi sínu.
Á tónleikum sýna þeir oft ótrúlegar framfarir og tjá einlæga leikgleði sem stoltir forráðamenn og aðrir áheyrendur njóta. Það er enginn annars eðlis og öll höfum við þörf fyrir að láta ljós okkar skína. Það hefur nemendahópurinn Í Tónstofunni sannarlega fengið, því þar er aðgengi þeirra tryggt, þar blómstrar inngildingin og þar ríkir jafnréttið.
Við spyrjum: Er viðhorfsbreytinga þörf? Vill Reykjavíkurborg ekki að fatlaðir fái að stunda tónlistarnám líkt og ófatlaðir jafnaldrar þeirra? Verður Tónstofan lögð niður á ykkar vakt? Er stefna Reykjavíkurborgar um framtíðarskipan tónlistarnáms í Reykjavík til ársins 2030 ómerkt plagg?
Rauða borðið 13. maí - Einhverfa Margrét Valdimarsdóttir, foreldri drengs með fötlun, segir að gera þurfi betur gagnvart fötluðum börnum hér á landi. Hún lýsir lífi sonar síns og kallar efti...
16/05/2026
Vortónleikaröð Tónstofunnar hófst sunnudaginn 10. maí og verða vortónleikarnir 7 að þessu sinni. Ekki stígur allur nemendahópurinn á svið. Sumir láta ljós sitt skína fyrir foreldra í kennslustundum í lok annar eða fyrir minningabanka myndavélarinnar sem fangar afrakstur og gleði skólaársins. Þrotlausar æfingar, áfangasigrar og gleði öllum stundum!
Gísli Björnsson æfir Air on a G string eftir J. S. Bach með Sinfóníuhljómsveit Lundúna.
02/03/2026
Listasmiðja nr. 9 • Tón-leikur 🎵🥁🪇
Við þökkum góðum gestum hjartanlega fyrir komuna og Valgeiri Daða Einarssyni fyrir að stjórna hljómsveitinni. ❤️
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the school
Telephone
Website
Address
Stórhöfði 23
Reykjavík
110