25/09/2026
🖌️ Langar þig að prófa kínverska skrautskrift og hefðbundna kínverska blekmálun?
Nú gefst tækifæri til að kynnast þessum fallegu og ævafornu listformum á 4 kvölda námskeiði á Akureyri.
📅 12.,13.,15. og 16. október
★ 4 kvöld (alls 8 klst) - ekki kennt miðv.kvöldið 14. okt.
★ Kennt frá kl.19:00-21:00
★ Verð: 30.000 kr. - öll námsgögn innifalin.
★ Staður: AkureyrarAkademían, í verslunarkjarnanum Sunnuhlíð
🌸 Einnig verður ókeypis prufutími fyrir 10–18 ára á Amtsbókasafninu miðvikudaginn 14. október kl. 16–17:30.
Kennari er Li Zhiling, útskrifuð sem myndmenntakennari frá kínverskum kennaraháskóla. Hún hefur búið á Íslandi í rúm 20 ár og hefur mikla reynslu af kennslu í kínverskri skrautskrift og kynningu á kínverskri menningu.
Ling er ástríðufullur kennari sem hefur mikla ánægju af því að miðla þekkingu sinni.
✨ Engin fyrri reynsla nauðsynleg – bara áhugi á að læra og skapa!
👉 Skráning: [email protected]
Aðeins 10–12 sæti í boði!