Félagsvísindasvið Háskóla Íslands

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands

Share

Félagsvísindasvið er eitt fimm fræðasviða við Háskóla Íslands.

Félagsvísindasvið er stærsta fræðasvið Háskóla Íslands og býður upp á fjölda námsleiða í sex deildum: Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild, Félagsráðgjafardeild, Hagfræðideild, Lagadeild, Stjórnmálafræðideild og Viðskiptafræðideild. Námið er fjölbreytt og mikill sveigjanleiki gefur nemendum kost á að taka aðal- og aukagrein eða sérhæfa sig innan þeirrar greinar sem þeir kjósa að innrita sig

Guðbjörg Alma Sigurðardóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í félagsfræði 18/06/2026

Guðbjörg Alma Sigurðardóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í félagsfræði frá Háskóla Íslands.

Í viðtalinu segir hún frá áhuganum á fólki, samskiptum og mannlegum samfélögum og góðu andrúmslofti í félagsfræðinni.

Innilega til hamingju, Guðbjörg Alma!

Guðbjörg Alma Sigurðardóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í félagsfræði Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Kristín Jóhannsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í náms- og starfsráðgjöf 18/06/2026

Kristín Jóhannsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands.

Í viðtalinu segir hún frá því hvernig hún lét drauminn rætast eftir rúmlega 20 ára hlé frá háskólanámi og mikilvægi skipulags, þrautseigju og stuðnings.

Innilega til hamingju, Kristín!

Kristín Jóhannsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í náms- og starfsráðgjöf Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Ásta Björk Björnsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í upplýsingafræði 18/06/2026

Ásta Björk Björnsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í upplýsingafræði frá Háskóla Íslands.

Í viðtalinu segir hún frá náminu, starfi sínu á skólasafni og rannsókn sinni á því hvernig skólabókasöfn geta stutt við vellíðan nemenda.

Innilega til hamingju, Ásta Björk!

Ásta Björk Björnsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í upplýsingafræði Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Hilma Ösp Áskelsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í afbrotafræði 18/06/2026

Hilma Ösp Askelsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í afbrotafræði frá Háskóla Íslands.

Í viðtalinu segir hún frá áhuganum á afbrotafræði, fjölbreyttu námi og mikilvægi góðs skipulags og seiglu á námsárunum.

Innilega til hamingju, Hilma Ösp!

Hilma Ösp Áskelsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í afbrotafræði Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Jiaxin Zhao útskrifaðist með ágætiseinkunn í afbrotafræði 18/06/2026

Jiaxin Zhao útskrifaðist með ágætiseinkunn í afbrotafræði frá Háskóla Íslands.

Í viðtalinu segir hún frá náminu, Erasmus+ skiptinámi og starfsnámi hjá Sameinuðu þjóðunum, þar sem hún fékk að nýta þekkingu sína á alþjóðlegum vettvangi.

Innilega til hamingju, Jiaxin!

Jiaxin Zhao útskrifaðist með ágætiseinkunn í afbrotafræði Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

15/06/2026

Innilega til hamingju með útskriftina!

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands óskar öllum nemendum sem útskrifuðust laugardaginn 13. júní innilega til hamingju með þennan stóra áfanga.

Útskrift markar lok mikilvægs kafla og upphaf nýrra tækifæra. Við erum stolt af ykkur og hlökkum til að fylgjast með því sem tekur við.

💙Þekkir þú einhvern sem útskrifaðist? Taggaðu hann/hana/þau í kommenti og sendu þeim hamingjuóskir! 🎉💙

05/06/2026

Háskóli Íslands auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra en hann gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri skólans og samhæfingu sameiginlegrar stjórnsýslu í samræmi við stefnu og lögbundið hlutverk skólans.

Framkvæmdastjóri er hluti af stjórnendateymi Háskóla Íslands og starfar náið með rektor, aðstoðarrektorum og öðrum stjórnendum skólans að þróun og samþættingu starfseminnar. Starfið heyrir undir rektor.

Umsóknarfrestur er til og með 22. júní.

04/06/2026

Umsóknarfrestur til að sækja um nám við Háskóla Íslands rennur út á morgun!

Ekki missa af tækifærinu til að taka næsta skref í námi.

Sæktu um á hi.is
Umsóknarfrestur er til 5. júní.

04/06/2026

Hefur þú áhuga á alþjóðamálum, öryggis- og varnarmálum eða diplómatíu?

Opnað hefur verið fyrir skráningu á Model NATO Reykjavík og nýtt 4 eininga námskeið við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands sem tengist verkefninu.

Model NATO er ætlað ungu fólki á aldrinum 18–35 ára og háskólanemum úr öllum fræðigreinum. Þátttakendur fá tækifæri til að setja sig í spor fulltrúa aðildarríkja NATO og takast á við raunhæf verkefni tengd alþjóðlegu öryggi, samningaviðræðum og ákvarðanatöku.

Skráningarfrestur er til 20. ágúst. Hægt er að skrá sig í Model NATO án þess að skrá sig í námskeiðið.

Nánari upplýsingar um Model NATO má finna á vef Stjórnarráðsins og upplýsingar um námskeiðið í kennsluskrá HÍ.

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/06/01/Model-NATO-radstefna-haldin-a-Althingi-i-haust/

Rekstrarstjóri Félagsvísindasviðs | Félagsvísindasvið Háskóla Íslands 16/02/2026

Laust er til umsóknar fullt starf rekstrarstjóra við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Rekstrarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun á miðlægri skrifstofu sviðsins og stoðþjónustu í nánu samráði við forseta sviðs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Smellið á auglýsinguna fyrir nánari upplýsingar um starfið.

Rekstrarstjóri Félagsvísindasviðs | Félagsvísindasvið Háskóla Íslands Laust er til umsóknar fullt starf rekstrarstjóra við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Starfið heyrir undir forseta Félagsvísindasviðs. Rekstrarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun á miðlægri skrifstofu sviðsins og stoðþjónustu í nánu samráði við forseta sv...

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Gimli V/Sæmundargötu Reykjavík
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00