Nýsköpunarkeppni grunnskólanna

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG), fyrir nemendur í 5. 6. og 7. bekk. Farvegur fyrir hugmynd aðila. Keppnin hefur verið haldin árlega frá upphafi.

Eigandi NKG er Mennta- og menningarmálaráðuneytið en Menntavísindasvið Háskóla Íslands sér um rekstur keppninnar í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands, Menntamálastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Arion banka, Samtök Iðnaðarins, ELKO, IKEA, grunnskóla o.fl. Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda (NKG) er haldin í fyrsta sinn árið 1992. Paul Jóhannsson fluttist búferlum heim frá Svíþjóð og stofnar NKG. Heildarfjöldi innsendra hugmynda frá upphafi eru 36.150 þúsund umsóknir. NKG er að fyrirmynd sænsku uppfinningarkeppninnar www.finnupp.se. Aðferðafræði og uppbygging hefur verið staðfærð þar sem á við. Frá árinu 2006 hefur NKG verið í umsjón Mennta- og menningarmálaráðuneytisins og rekstur og framkvæmd á vegum NKG verkefnalausna. NKG var fyrstu 15 árin að mestu leiti starfrækt í sjálfboðavinnu einstaklinga með ríka hugsjón og ástríðu fyrir eflingu nýsköpunarmenntar á Íslandi.

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2026 lauk með glæsilegu lokahófiLaugardaginn 30. maí fór fram lokahóf Nýsköpunarkeppni gr...
03/06/2026

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2026 lauk með glæsilegu lokahófi

Laugardaginn 30. maí fór fram lokahóf Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) 2026 á Sögutorgi í Sögu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Þar lauk enn einu eftirminnilegu keppnisári þar sem sköpunargáfa, forvitni og lausnaleit barna úr grunnskólum landsins var í forgrunni.

Alls bárust rúmlega 500 hugmyndir hvaðanæva af landinu frá nemendum í 5. – 7. bekk. Af þeim voru 25 hugmyndir valdar til úrslita og tóku alls 38 nemendur þátt í vinnustofum og lokaviðburðum NKG 2026.

Dagana fyrir lokahófið tóku úrslitanemendur þátt í skapandi vinnustofum í Sögu þar sem þau þróuðu hugmyndir sínar áfram, fengu leiðsögn sérfræðinga og undirbjuggu kynningar á verkefnum sínum. Lokahófið sjálft var hátíð nýsköpunar þar sem tónlist, dans, kynningar og verðlaunaafhending fléttuðust saman.

Dagskráin hófst með ávarpi Kolbrúnar Pálsdóttur, forseta Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, sem lagði áherslu á mikilvægi þess að skapa börnum vettvang þar sem hugmyndir þeirra fá að vaxa og verða sýnilegar.

Við sama tækifæri voru afhent hvatningarverðlaunin VILJI – Nýsköpunarkennari grunnskólanna 2026.

VILJI – Nýsköpunarkennari grunnskólanna 2026
Verðlaunin hlaut Drífa Hjördís Thorstensen, grunnskólakennari við Háaleitisskóla á Ásbrú, fyrir framúrskarandi framlag sitt til nýsköpunar í skólastarfi og fyrir að skapa nemendum sínum vettvang til að hugsa stórt, prófa sig áfram og láta hugmyndir sínar verða að veruleika.

Fyrir hönd Mennta- og barnamálaráðuneytisins flutti Linda Heiðarsdóttir, skrifstofustjóri Skrifstofu skóla- og íþróttamála, ávarp og lagði áherslu á mikilvægi þess að hlúa að nýsköpun, frumkvæði og skapandi hugsun í íslensku skólastarfi.

Nemendur fluttu tónlistar- og skemmtiatriði, kynntu verkefni sín og deildu hugmyndum sínum með gestum. Á dagskránni voru meðal annars píanóleikur, trompetleikur, dansatriði og stuttar kynningar á verðlaunahugmyndum ársins.

Lokahófið náði hápunkti þegar Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og verndari Nýsköpunarkeppni grunnskólanna, flutti lokaávarp og afhenti aðalverðlaun keppninnar.

Verðlaunahafar NKG 2026
Forritunarbikar NKG
Elma Georgsdóttir og Maya Teresa Kamallakharan
5. bekkur – Fossvogsskóli
Maturinn minn
Leikjavætt app sem hjálpar börnum að velja hollan mat, skipuleggja nesti og draga úr matarsóun með umbunarkerfi og betri yfirsýn fyrir fjölskyldur.

Hönnunarbikar NKG og Hugverkastofu
Diðrik Nói Sigurjónsson
6. bekkur – Djúpavogsskóli
Chip picker
3D-prentað verkfæri sem tekur upp snakk, núðlur og annan mat án þess að notandinn fái krydd eða fitu á fingurna.

Mannréttindabikar NKG og ÖBÍ
Hjördís Lilja Egilsdóttir og Stefania Szymanowska
5. bekkur – Njarðvíkurskóli
Bókin ykkar
Lífleg og aðgengileg bók fyrir blinda þar sem efni er bæði áþreifanlegt og hljóðrænt og blindaletur verður hluti af upplifuninni.

Samfélagsbikar NKG
Guðlaug Sóley Jokumsen Bergman og Elvar Ólafsson
6. bekkur – Víðistaðaskóli
Saltblásari
Blástursvél sem getur einnig tekið við salti og dreift því yfir götur og stíga þegar hálka myndast.

Tæknibikar NKG
Trausti Viðar Fjólmundsson og Jón Greipur Þorgilsson
7. bekkur – Grunnskólinn austan Vatna
Léttingarkefli
Kefli með rótor sem auðveldar bændum að taka niður girðingar með minni fyrirhöfn.

Ræðubikar JCI
Kristín Kata Sigurbjörnsdóttir
7. bekkur – Snælandsskóli
Bdýnan
Dýna sem er í laginu eins og B, með holur fyrir brjóst og bumbu, líka hentug fyrir óléttar konur.

Umhverfisbikar NKG og ELKO
Fannar Tindur Jónsson
5. bekkur – Brúarárskóli
Plasthitarinn
Lausn sem hitar upp plastrusl og minnkar umfang þess fyrir heimili.

Aðalverðlaun NKG 2026
Katrín Svala Ólafsdóttir og María Lilja Davíðsdóttir
6. bekkur – Víðistaðaskóli
Hjálmur á hlaupahjól
Öryggiskerfi fyrir leiguhlaupahjól þar sem hjálmur er tengdur hjólinu og hjólið fer ekki af stað nema hjálmurinn sé notaður.

Viðurkenningar og verðlaun
Öllum verðlaunahöfum í flokkum NKG 2026 voru afhent viðurkenning og 20.000 króna gjafakort frá ELKO sem styrkti keppnina með rausnarlegum hætti.

Sigurvegarar aðalverðlauna NKG 2026 hlutu auk þess 40.000 króna aðalverðlaun.

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna leggur jafnframt ríka áherslu á að fagna þátttöku og framlagi allra barna. Því fengu allir nemendur sem komust í úrslit og tóku þátt í vinnustofum NKG sérstaka viðurkenningu og 15.000 króna hvatningarverðlaun frá NKG sem þakkarvott fyrir árangur þeirra, vinnu og hugrekki.



Nýsköpunarkeppni grunnskólanna hefur nú verið haldin í 35 ár og sýnir ár eftir ár hvað gerist þegar börn fá tækifæri til að spyrja spurninga, finna lausnir og skapa eitthvað nýtt.

Við óskum öllum verðlaunahöfum, úrslitanemendum, kennurum, foreldrum, samstarfsaðilum, dómnefnd og styrktaraðilum innilega til hamingju og þökkum fyrir að gera NKG 2026 að sannkallaðri hátíð hugmynda, hugrekkis og framtíðarsýnar.

Við hlökkum til að sjá hvaða hugmyndir verða til næst.

VILJI – Hvatningarverðlaun kennara 2026-Umsóknarfrestur er 22. maí
19/05/2026

VILJI – Hvatningarverðlaun kennara 2026
-
Umsóknarfrestur er 22. maí

Share this...FacebookPinterestTwitterLinkedin VILJI – Hvatningarverðlaun kennara 2026 Á hverju ári hlýtur kennari/kennarateymi nafnbótina „ Nýsköpunarkennari/ar grunnskólanna árið 20xx“ ásamt verðlaunum að fjárhæð 150.000kr   Tilgangur Vilja Hvetja kennara til dáða, með vi....

19/05/2026

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) 2026 stendur nú sem hæst en alls bárust rúmlega 500 hugmyndir hvaðanæva af landinu frá nemendum í 5.–7. bekk. Af þeim voru 25 hugmyndir valdar til úrslita og standa alls 38 nemendur á bak við þær lausnir sem kynntar verða á lokahófi keppninnar.

Hugmyndirnar voru valdar af sérfræðingum frá Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, IKEA á Íslandi og Hugverkastofunni. Við valið var horft til sköpunargleði, frumleika, hagnýts gildis og þess hvernig hugmyndirnar takast á við raunverulegar áskoranir í samfélaginu.

28. maí og 29. maí taka úrslitanemendur þátt í skapandi vinnustofum í Sögu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands þar sem þau vinna áfram með hugmyndir sínar í samstarfi við sérfræðinga, kennara og háskólanema. Þar fá nemendur meðal annars tækifæri til að þróa frumgerðir, æfa framsetningu hugmynda og kynnast því hvernig hugmynd verður að lausn.

Lokahóf NKG 2026 fer fram á Sögutorgi í Sögu laugardaginn 30. maí kl.14:00 þar sem hugmyndir nemenda verða kynntar og viðurkenningar afhentar. Að lokinni dagskrá verður sýning á verkefnunum formlega opnuð.

Markmið Nýsköpunarkeppni grunnskólanna er að efla skapandi og gagnrýna hugsun barna og ungmenna, styrkja sjálfstraust þeirra og hvetja þau til að sjá tækifæri til umbóta í eigin samfélagi. Með þátttöku í nýsköpunarvinnu læra nemendur að þróa hugmyndir, vinna saman, takast á við áskoranir og finna lausnir sem geta bætt líf annarra.

Á tímum hraðra tæknibreytinga og sífellt flóknari samfélagslegra áskorana hefur nýsköpun og frumkvæði ungs fólks sjaldan verið mikilvægara. NKG er því ekki aðeins keppni heldur vettvangur þar sem hugmyndaflug, samkennd og framtíðarsýn barna fá að njóta sín.

NKG+ haldið í fyrsta sinn – nemendur kynna hugmyndir í LjónagryfjunniNýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) hefur um árabi...
04/05/2026

NKG+ haldið í fyrsta sinn
– nemendur kynna hugmyndir í Ljónagryfjunni

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) hefur um árabil gefið yngri nemendum tækifæri til að vinna með eigin hugmyndir. Í vor var stigið nýtt skref með tilraunaverkefninu NKG+, sem er ætlað nemendum á unglingastigi þar sem hugmyndir eru þróaðar áfram í frumgerðir og kynntar í svokallaðri Ljónagryfju.

Nemendur frá nokkrum skólum komu saman í Háskóla Íslands – en þeir komu ekki tómhentir. Í sínum heimaskólum höfðu þeir þegar unnið í gegnum ferli hönnunarhugsunar (Design Thinking), þróað hugmyndir og smíðað fyrstu frumgerðir.

Í vinnusmiðjunum var fókusinn því skýr: að umbreyta góðri hugmynd í sannfærandi kynningu. Nemendur unnu markvisst að því að kjarna gildi hugmyndarinnar, skilgreina markhóp, bæta myndræna framsetningu og styrkja framkomu og framsögn. Markmiðið var að geta stigið fram með skýra og öfluga lyfturæðu, svarað spurningum af öryggi og sýnt að þau hefðu bæði trú á hugmyndinni og vilja til að fylgja henni eftir.

Kynningarnar í Ljónagryfjunni voru hápunktur verkefnisins. Þar stigu nemendur fram, kynntu hugmyndir sínar á skýran og sannfærandi hátt og svöruðu spurningum dómara. Margir komu á óvart með faglegri framkomu, hugrekki og skýra sýn á eigin verkefni.

Að verkefninu komu öflugir leiðbeinendur. Leiklistarkennararnir Jóna Guðrún og Rannveig Björk unnu með nemendum að framkomu og framsögn, á meðan grafíski hönnuðurinn Björgvin Ívar studdi þau í uppsetningu kynninga, myndefni og sjónrænnar framsetningar. Þá hélt Jóhann lögfræðingur frá Hugverkastofu fróðlegt erindi um hugverkarétt á hádegisverðarfundi þar sem nemendur nutu pizzu og góðra samræðna.

Það var ekki síður hugsað um félagslega þáttinn. Ísbíllinn kom í heimsókn og að lokinni Ljónagryfjunni var öllum boðið í Minigarðinn þar sem nemendur spiluðu minigolf og nutu hamborgaraveislu saman.

NKG+ byggir á hugmyndafræði hönnunarhugsunar þar sem nemendur læra að greina vandamál, þróa lausnir og prófa sig áfram. Slík verkefni efla sköpunargáfu, sjálfstraust og lausnamiðaða hugsun – færni sem er lykilatriði í nútímasamfélagi. Markmiðið er ekki að finna „fullkomna“ hugmynd heldur að byggja upp hugrakka hugsuði sem þora að prófa, mistakast og læra.

Reynslan af NKG+ sýnir að þörfin er til staðar. Nemendur vilja fá tækifæri til að vinna með hugmyndir sínar á dýpri hátt, skapa eitthvað raunverulegt og fá að kynna það fyrir öðrum. Verkefnið opnar jafnframt á mikilvægt samstarf skóla, háskóla og atvinnulífs.

Við hvetjum skóla á unglingastigi til að taka þátt á næsta skólaári. NKG+ er ekki aðeins keppni – heldur vettvangur þar sem hugmyndir fá að vaxa, nemendur styrkjast og nýsköpun fær að blómstra.

Að lokum er vert að þakka nemendum sérstaklega fyrir þeirra framlag. Þau sýndu metnað, hugrekki og ótrúlega vinnusemi – og það var augljóst að þau stóðu með sínum hugmyndum af stolti. Þátttökuskólarnir og kennarar þeirra eiga einnig miklar þakkir skildar fyrir sitt framlag og stuðning. Þar liggur grunnurinn að því að verkefni sem þetta geti orðið að veruleika.

Síðasta tækifærið fyrir helgi!Munið að senda inn hugmyndir í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna fyrir helgi – skilafrestur e...
07/04/2026

Síðasta tækifærið fyrir helgi!

Munið að senda inn hugmyndir í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna fyrir helgi – skilafrestur er 10. apríl.

Kannski er hugmyndin þegar til:
• í stílabók
• á post-it miða
• í teikningu
• eða í samtali í skólastofunni

Ekki bíða eftir að hugmyndin verði „fullkomin“. Bestu hugmyndirnar byrja oft smátt.

Við viljum sjá hugmyndir sem:
• hjálpa fólki
• bæta umhverfið
• leysa vandamál
• eða gera daglegt líf skemmtilegra og auðveldara

Nú er rétti tíminn til að velja hugmyndina, fylla út umsóknina og senda inn.

Allar upplýsingar eru á nkg.is

Áttu hugmynd sem gæti breytt einhverju til hins betra?Við hvetjum alla nemendur í 5.–7. bekk að taka þátt í Nýsköpunarke...
07/04/2026

Áttu hugmynd sem gæti breytt einhverju til hins betra?

Við hvetjum alla nemendur í 5.–7. bekk að taka þátt í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna og senda inn hugmyndir sínar fyrir 10. apríl.

Það þarf ekki fullkomna lausn – góð hugmynd er nóg. Hugmyndin getur verið:
• eitthvað sem hjálpar fólki
• lausn á vandamáli í skólanum, heima eða í samfélaginu
• eitthvað sem er gott fyrir umhverfið
• ný og skemmtileg uppfinning

Í NKG skiptir mestu máli að leyfa hugmyndafluginu að njóta sín og þora að hugsa út fyrir boxið.

Kennarar og foreldrar: hvetjið börnin til að taka þátt – margar bestu hugmyndirnar byrja sem lítil hugmynd á blaði.

Skilafrestur er 10. apríl.

Nánari upplýsingar og eyðublöð má finna á nkg.is

Address

Reykjavík

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Nýsköpunarkeppni grunnskólanna posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share