Vinnuskóli Reykjavíkur

Vinnuskóli Reykjavíkur Vinnuskóli Reykjavíkur Vinnuskóli Reykjavíkur starfar sumar og vetur og er starfræktur á Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar.

Vinnuskólinn er skóli á grænni grein með Grænfána og vinnur eftir Umhverfisstefnu Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar.


Það er stefna skólans að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum í starfi og fræðslu á vettvangi. Sem Grænfánaskóli hefur skólinn Umhverfissáttmála sem starfað er eftir og umhverfisráð skólans tók þátt í að móta. Starfsemi Vinnuskólans á að stuðla að vistvænni hugsun og hegðun starfsfólks og nemenda og miðla fræðslu um umhverfismál, verkkunnáttu og þekkingu á garðyrkjustörfum á greinilegan hátt. Vinnuskólinn tekur þátt í að bæta starfsumhverfi Umhverfis- og samgöngusviðs þannig að það verði heilnæmara og öruggara. Starfsfólk Vinnuskólans kynnir Grænfánaáherslur og umhverfissáttmála sumarstarfsmönnum, nemendum og foreldrum. Verkefnalistar vinnuskólahópa skulu vera í stöðugri endurskoðun með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Starfsmenn Vinnuskólans skulu vera vakandi yfir líðan nemenda og veita þeim öruggt skjól í sumar- og vetrarstarfi skólans.

🚶‍♀️‍➡️Vinnuskólinn þakkar fyrir afbragðsgott starf nemenda í sumar. 🎺Hópur sem tilheyrir Lúðrasveitum Reykjavíkur þakka...
26/08/2026

🚶‍♀️‍➡️Vinnuskólinn þakkar fyrir afbragðsgott starf nemenda í sumar. 🎺Hópur sem tilheyrir Lúðrasveitum Reykjavíkur þakkaði fyrir sig með því að spila nokkur vel valin lög fyrir starfsfólk borgarinnar ásamt gestum og gangandi vegfarendum í blíðskapaveðri. 🕺
👉 https://reykjavik.is/frettir/2026/gott-sumar-vinnuskolans-ad-baki

Vinnuskólinn gerir það gott í sumar.
02/07/2026

Vinnuskólinn gerir það gott í sumar.

Vinnuskólinn er hafinn! Unglingar eru í beðum út um alla borg ☀️🪏🌸
16/06/2026

Vinnuskólinn er hafinn!
Unglingar eru í beðum út um alla borg ☀️🪏🌸

21/05/2026

Í dag fá fyrstu nemendur póst um niðurröðun í hópa. Starfsfólk vinnuskólans vinnur hörðum höndum að því að svara umsóknum fljótt og vandlega.
Vegna anna biðjum við foreldra eða aðra sem hafa spurningar um stöðu skráninga að senda póst á [email protected] frekar en að hringja. Öllum póstum verður svarað.
Gleðilegt vinnuskólasumar ☀️

12/05/2026

Vinnuskólinn byrjar eftir 30 daga - starfsfólk borgarinnar er farið að brýna skóflur og klórur

Skráningar í Vinnuskóla Reykjavíkur eru þegar orðnar 3300, núna 8. maí, en það er met á þessum tíma. Nemendum 8., 9. og ...
08/05/2026

Skráningar í Vinnuskóla Reykjavíkur eru þegar orðnar 3300, núna 8. maí, en það er met á þessum tíma. Nemendum 8., 9. og 10. bekkja býðst að koma til starfa við fjölbreytt verkefni sem flest snúa að garðyrkju og umhirðu í borginni. Frétt í fyrstu athugasemd. 😀

28/04/2026

Í næstu viku byrjum við að raða í hópa fyrir sumarið.
Það verður samt opið fyrir skráningar í allt sumar.

Vala vinnuskóli - Umsóknarvefur

21/04/2026

Hitinn fór yfir 10°C annan daginn í röð í dag. Það þýðir bara eitt...
Vinnuskólinn byrjar bráðum!

14/04/2026

Skráning í vinnuskólann hófst fyrir viku. Í dag hafa tæplega 2300 unglingar skráð sig til vinnu.

07/04/2026

Nú hefur verið opnað fyrir skráningu í Vinnuskólann fyrir sumarið 2026!

Address

Borgartún 12-14
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vinnuskóli Reykjavíkur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Vinnuskóli Reykjavíkur:

Shortcuts

Share