Stækkaðu framtíðina

Stækkaðu framtíðina Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Stækkaðu framtíðina, Education, Saga/Hagatorg, Reykjavík.

Stækkaðu framtíðina tengir fólk af vinnumarkaði við skólastofur landsins til að segja nemendum frá starfi sínu og menntun. Þannig víkkar sjóndeildarhringur nemenda og öll ungmenni á Íslandi fá tækifæri til að eiga fyrirmynd.

10/02/2026
🎄🎁🔔 Kæru sjálfboðaliðar, starfsfólk skólanna og allir sem stutt hafa Stækkaðu framtíðina með einum eða öðrum hætti, inni...
19/12/2025

🎄🎁🔔 Kæru sjálfboðaliðar, starfsfólk skólanna og allir sem stutt hafa Stækkaðu framtíðina með einum eða öðrum hætti, innilegar þakkir fyrir samstarfið á árinu! Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári ❤️

Við fórum yfir það helsta sem gerðist hjá Stækkaðu framtíðina á árinu, hlekkur á grein í athugasemd 👇

🎅✨ Gætir þú hugsað þér að verða jólasveinn í framtíðinni?Hverjar eru eiginlega hæfniskröfurnar og hvaða fleiri frábær st...
10/12/2025

🎅✨ Gætir þú hugsað þér að verða jólasveinn í framtíðinni?
Hverjar eru eiginlega hæfniskröfurnar og hvaða fleiri frábær störf bíða þín?

Kynntu þér tækifæri framtíðarinnar á naestaskref.is og sjáðu hvaða störf passa við þín áhugamál ⭐

👉 naestaskref.is

Gleðileg jól!

Listamaður, fornleifafræðingur, naglafræðingur... já draumastörfin eru fjölbreytt!Teikningar nemenda í 1.-7. bekk halda ...
09/12/2025

Listamaður, fornleifafræðingur, naglafræðingur... já draumastörfin eru fjölbreytt!

Teikningar nemenda í 1.-7. bekk halda áfram að berast til okkar og þær eru hver annarri flottari 👏

Það er dásamlegt að sjá hvað nemendur leggja mikið í teikningarnar og virðast hafa gaman af því að spá í draumastörfunum sínum!

Þessar teikningar koma frá nemendum í 3. bekk í skóla á höfuðborgarsvæðinu.

Vilt þú leggja könnuna Okkar framtíð fyrir í þínum skóla? Allar upplýsingar um könnunina í athugasemd 👇

Takk fyrir vel heppnaða og skemmtilega heimsókn Vesturbæjarskóli!
05/12/2025

Takk fyrir vel heppnaða og skemmtilega heimsókn Vesturbæjarskóli!

16/11/2025

Í tilefni af degi íslenskrar tungu!

Svona finnur þú sjálfboðaliða sem nýta íslensku í sínu daglega starfi 🇮🇸

Við hvetjum kennara, náms- og starfsráðgjafa og annað starfsfólk skólanna til að sýna nemendum öll þau fjölbreyttu störf sem krefjast góðrar íslenskukunnáttu!

Kæru kennarar og starfsfólk skólanna!Könnunin Okkar framtíð er tilvalin til að veita grunnskólanemendum tækifæri til að ...
14/11/2025

Kæru kennarar og starfsfólk skólanna!

Könnunin Okkar framtíð er tilvalin til að veita grunnskólanemendum tækifæri til að sjá fyrir sér draumastarf sitt og framtíð og segja frá væntingum sínum 🌍

Okkar framtíð er tvískipt til að ná sem best til ólíkra aldurshópa - Teiknaðu framtíðina er ætluð nemendum í 1.-7. bekk og Þín rödd er rafræn og sérsniðin að nemendum í 8.-10. bekk.

Allt um könnunina og fyrirkomulag hennar í fyrstu athugasemd 👇

Í dag er dagur náms- og starfsráðgjafar haldinn í 19. sinn!✨ Með náms- og starfsráðgjöf eiga börn og ungmenni auðveldara...
20/10/2025

Í dag er dagur náms- og starfsráðgjafar haldinn í 19. sinn!

✨ Með náms- og starfsráðgjöf eiga börn og ungmenni auðveldara með að átta sig á áhugasviðum sínum, þekkja styrkleika sína og veikleika, efla sjálfstraust og sjá möguleikana framundan.

☀️ Náms- og starfsráðgjöf er ekki aðeins fyrir nemendur sem eru að ljúka grunn- eða framhaldsskóla – hún skiptir máli á öllum skólastigum og á öllum aldri en með réttri leiðsögn geta börn og ungmenni ratað gegnum nær óteljandi möguleika í námi og starfi.

Við hjá Stækkaðu framtíðina erum ótrúlega þakklát öllum þeim náms- og starfsráðgjöfum um land allt sem hjálpa okkur að stækka framtíð barna og ungmenna – og vísa þeim veginn!

Vilt þú taka þátt í að stækka framtíð barna og ungmenna á landsbyggðinni? ✨Við viljum bæta við sjálfboðaliðum í hóp þeir...
17/10/2025

Vilt þú taka þátt í að stækka framtíð barna og ungmenna á landsbyggðinni? ✨

Við viljum bæta við sjálfboðaliðum í hóp þeirra sem fara í skólaheimsóknir á landsbyggðinni. Við erum að leita að sjálfboðaliðum í öllum landshlutum en þó sérstaklega á Norðurlandi vestra 👋👋👋

Skráning fer fram á vefnum okkar - hlekkur í fyrstu athugasemd 👇

Kæru kennarar, til hamingju með alþjóðadag kennara! 👨🏼‍🏫👩‍🏫👩🏽‍🏫👩🏼‍🏫👨🏽‍🏫Kennarar gegna lykilhlutverki í að móta framtíðin...
05/10/2025

Kæru kennarar, til hamingju með alþjóðadag kennara! 👨🏼‍🏫👩‍🏫👩🏽‍🏫👩🏼‍🏫👨🏽‍🏫

Kennarar gegna lykilhlutverki í að móta framtíðina með því að miðla þekkingu, kveikja forvitni og veita næstu kynslóð innblástur 🌱

Við hjá Stækkaðu framtíðina erum afar þakklát fyrir gott samstarf og ykkar þátt í að stækka framtíðina alls staðar á landinu ✨

02/10/2025

Við buðum ungu kynslóðinni á Vísindavöku Rannís að teikna draumatörfin sín ✏️

Viðbrögðin létu ekki á sér standa og við fengum fjölmargar æðislegar myndir af draumastörfum krakkanna ✨❤️

Takk innilega fyrir okkur!

📣 Fyrstu niðurstöður úr Teiknaðu framtíðina 📣Niðurstöður könnunarinnar Teiknaðu framtíðina sem borist hafa hingað til sý...
29/09/2025

📣 Fyrstu niðurstöður úr Teiknaðu framtíðina 📣

Niðurstöður könnunarinnar Teiknaðu framtíðina sem borist hafa hingað til sýna að nemendur á yngsta stigi og miðstigi eiga sér einsleita drauma um framtíðarstörf. Þrjú vinsælustu störfin eru tæplega einn fjórði af öllum störfum sem nemendur nefndu.

⚽🏀🚓 Nemendur áttu sér oftast draum um að verða atvinnufólk í fótbolta (um 13%), atvinnufólk í körfubolta (um 6%) og lögregluþjónar (um 5%). Niðurstöðurnar sýna jafnframt að skýr munur er milli kynjanna - strákar leita frekar í störf sem þykja dæmigerð fyrir karlmenn og stelpur velja sér störf þar sem konur eru í meirihluta.

Lestu meira á vefnum okkar - hlekkur í athugasemd 👇

Address

Saga/Hagatorg
Reykjavík
107

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Stækkaðu framtíðina posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Stækkaðu framtíðina:

Shortcuts

Share

Category