01/06/2012
Kæru 8. og 9. bekkingar. Þá er loksins komið sumarfrí. Við óskum ykkur alls hins besta á næsta skólaári og vonum að þið eigið eftir að hafa gott sumarfrí. Minnum á það að útskriftin hjá 10. bekk hefst á slaginu 18:00 í ,,Hátíðar"sal skólans. Gleðilegt Sumar!!
Kv. Nemendaráð Hólabrekkuskóla 2011-2012.
27/05/2012
Jæja kæru 10.undu bekkingar. Þá er komið að því.....Þriðjudaginn næstkomandi munum við leggja af stað í útskriftarferð og eiga allir að vera mættir upp í skóla í síðasta lagi 07:45. Við minnum ykkur á að líta á gátlistann ykkar yfir það sem þið eigið að taka með. Við vonum að þið eigið eftir að skemmta ykkur vel og fer sérvalið lið kennara með okkur í ferðina sem munu halda fjörinu uppi en auðvitað er það líka undir ykkur komið.......Raftæki og aðrir verðmætir hlutir eru á ykkar eigin ábyrgð og við minnum á að öll notkun munn og neftóbaks, áfengis og orkudrykkja er með öllu óheimil. Góðar stundir.
Kv. Nemendaráð Hólabrekkuskóla 2011-2012.
8-9 bekkur mætir í skólann á venjulegum tíma.
21/05/2012
Gangi ykkur öllum vel í prófunum kæru nemendur. Verum nú dugleg að læra.....(jee right)
16/05/2012
Takk æðislega fyrir frábært ball kæru nemendur. Það var æðislegt að vera með ykkur á böllum í vetur og vonum við að þið skemmtið ykkur líka á böllunum næsta vetur.
Svo sjáumst við fersk og kát í punktaferðinni á föstudaginn.
Kær kveðja: Nemendaráð Hólabrekkuskóla 2011-2012.
16/05/2012
væri vel þegið ef að Herra Arnar Már myndi koma og smella nokkrum pics af fólkinu !!!!!
16/05/2012
Jæja börnin góð. LOKABALL Hólabrekkuskóla 2011-2012 í kvöld kl. 20:30. Ballið verður til 23:00 vegna frídags á morgun. Vonumst til að sjá sem flesta með ,,Date" með sér ;)
You ain´t got a date? Then you will have to pay.
Hlökkum til að sjá ykkur.
14/05/2012
Jæja krakka mínir, nú verður haldið síðasta ballið í unglingadeildinni LOKABALL, núna á Miðvikudaginn 16 Maí. Þeminn er PROM/DEITBALL♥, bjóddu þinni draumaást(ekki úr öðrum skóla). Það kostar þig 0kr ef þú kemur með deit en ef þú kemur ein/n kostar 250kr. Húsið opnar 20:30 og lokar 21:00, ballið lýkur á slaginu 23:00.
10.bekkur vill sjá sem flesta því þetta er seinasta grunnskólaballið hjá þeim.
Þetta verður geðveikt, erum með fullt af nammi í sjoppunni og geðveika DJ.
PS. Það er ekki 100 í hættunni ef þú kemur ekki með deit :D
14/05/2012
Jæja krakka mínir, nú verður haldið síðasta ballið í unglingadeildinni LOKABALL. Þeminn er PROM/DEITBALL♥, bjóddu þinni draumaást. Það kostar þig 0kr ef þú kemur með deit en ef þú kemur ein/n kostar 250kr. Húsið opnar 20:30 og lokar 21:00, ballið lýkur á slaginu 23:00.
10.bekkur vill sjá sem flesta því þetta er seinasta grunnskólaballið hjá þeim.
Þetta verður geðveikt, erum með fullt af nammi í sjoppunni og geðveika DJ.
PS. Það er ekki 100 í hættunni ef þú kemur ekki með deit :D
29/03/2012
Við þökkum öllum nemendum unglingadeildarinnar kærlega fyrir komuna á árshátíðina og við vonum að þið hafið skemmt ykkur vel og við þökkum einnig þeim sem komu að árshátíðinni...Takk kærlega fyrir hjálpina :)
29/03/2012
Árshátíðar kvöld!!!!!.Ef þú sért stelpa og þú sért að fara í sturtu þá getur þú gleymt því að fá þennan dýrðarinnar fordrykk sem mun bíða ykkar allra í andirinu, sættu þig við það þú ert ekki að fara meika það á tíma og hvað þá að meika þig? Ha Ha!/ Á hinn boginn ef þú sért strákur og ert að fara á þennan viðburð= Árshátíð getur þú alveg slappað af, farið í sturtu, tekið einn leik í Cod,Gelað þig upp og samt 10 mín í Árshátíðina...Bjúútíí is pein. Við hlökkum svakalega til að sjá ykkur öll þarna í Hólabrekkuskóla njótiði meðan þið getið :) Kv.Nemendaráð.HBS/.V
28/03/2012
Jæja kæru nemendur, það er komið að því....ÁRSHÁTÍÐ Hólabrekkuskóla annaðkvöld (fimmtudagskvöld) kl 18:30. Matur hefst kl 19:00. Við minnum einnig á að þeir sem eiga eftir að kaupa miða geta nálgast þá á skrifstofu skólans á morgun.
Hlökkum til að sjá ykkur í ykkar fínasta pússi.
Kv. Árshátíðarnefnd.