Listaháskóli Íslands

Listaháskóli Íslands Hönnunar-, arkitektúr-,
sviðslistar-, myndlistar-, listkennslu-,
tónlistar- og kvikmyndalistardeild

Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands þakkar innilega öllum gestum og þátttakendum fyrir komuna á Praxis sviðslistaþing s...
25/09/2026

Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands þakkar innilega öllum gestum og þátttakendum fyrir komuna á Praxis sviðslistaþing síðastliðinn laugardag.
Þema Praxis í ár var, Leikarinn og hlutverkið, þar sem áhersla var á ólíkar leiktúlkunaraðferðir og starf leikarans innan sviðslista.

Fagvettvangurinn og háskólasamfélagið fyllti húsið og úr varð frábær dagur fullur af innblásandi samtölum, hugmyndum og erindum.

Leikkonan og dósent við RESAD, Sol Garre, flutti erindið "What does an actor actually “know” when he acts?".
Þar fjallaði hún um öflun listrænnar þekkingar og það hvernig þjálfun leikara mótar líkama, ímyndunarafl, skynjun og skapandi vinnubrögð flytjandans.
Einnig tók til máls Björn Thors leikari sem fjallaði um reynslu sína af vinnu við einleiki og Halldóra Geirharðsdóttir leikkona og fyrrverandi prófessor við Sviðslistadeild en hún fjallaði um hvernig leikari tekst á við endurtekninguna á sviði.

Deginum lauk með málstofu um leiktúlkunaraðferðir þar sem þátttakendur fjölluðu um þær aðferðir, verkfæri, vinnu- og verkferla sem þau nota í sinni vinnu. Þá var einnig tekið fyrir hvaða faglega samtal á sér stað innan fagsamfélagsins og hvort leikarar eiga með sér sameiginlegt tungumál. Þátttakendur voru leikararnir Ilmur Kristjánsdóttir, Oddur Júlíusson, Sólveig Arnarsdóttir og Stefán Jónsson. Umræðunum stjórnaði Agnar Jón Egilsson leikari, dósent og fagstjóri leikaranáms við LHÍ.

Hlökkum strax til næsta sviðslistaþings deildarinnar!

Ljósmyndir: Eygló Gísladóttir.

Hugarflug 2026 fór fram dagana 9.-11. september. Metumsóknarfjöldi barst Hugarflugsnefndinni í ár en um 40 erlendir þátt...
23/09/2026

Hugarflug 2026 fór fram dagana 9.-11. september. Metumsóknarfjöldi barst Hugarflugsnefndinni í ár en um 40 erlendir þáttakendur víðsvegar að úr heiminum héldu erindi á ráðstefnunni. Þáttaka hefur aldrei verið jafn mikil og í ár voru um 280 gestir sem sóttu Hugarflug, fjölmennasta ráðstefnan til þessa.

Við þökkum þátttakendum og gestum kærlega fyrir komuna.

Grunn- og meistaranám í arkitektúr, hönnun, kvikmyndalist, listkennslu, myndlist, sviðslistum og tónlist — auk opins náms fyrir almenning.

Adam Flint Taylor, fagstjóri grafískrar hönnunar við LHÍ, ræddi gervigreindarslor og notkun gervigreindarmynda í pólitís...
22/09/2026

Adam Flint Taylor, fagstjóri grafískrar hönnunar við LHÍ, ræddi gervigreindarslor og notkun gervigreindarmynda í pólitískum tilgangi í Lestinni í síðustu viku. Við hvetjum öll til að hlusta á þetta áhugaverða viðtal.

Nú á dögum fer fram pólsk menningar- og listahátíð víða um borgina. Hátíðin ber nafnið Ulga, eða fró, og er markmiðið að skapa rými fyrir fólk til að koma saman, nærast og njóta menningar á afslappaðan hátt. Á meðal þess sem er um að vera er hljóðganga um Sorpu og mat...

Listaháskóli Íslands stendur ásamt Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista, Intent Lab og Listasafni Íslands að fjögurra d...
16/09/2026

Listaháskóli Íslands stendur ásamt Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista, Intent Lab og Listasafni Íslands að fjögurra daga alþjóðlegu námskeiði sem fer fram dagana 27.–30. október. Námskeiðið beinir sjónum að samspili stafrænna hugvísinda, lista og gervigreindar og býður upp á einstakt tækifæri fyrir doktorsnema, nýdoktora og sérfræðinga í menningararfi til að kanna nýjar leiðir í rannsóknum og skapandi starfi.

Í gegnum fyrirlestra, vinnustofur og samvinnu fá þátttakendur innsýn í hvernig hægt er að vinna með gögn, stafræna miðla og gervigreind á skapandi og gagnrýninn hátt. Engin reynsla af forritun er nauðsynleg.

Umsóknarfrestur er til og með 25. september. Nánari upplýsingar má nálgast hér að neðan.

A four-day winter school on artistic and digital humanities research methods and curation for digital data 27-30 October – Reykjavík, Iceland. Applications close 25 September. APPLY HERE When artists and researchers use AI, they face a twofold question: which model to run, and what data goes into...

14/09/2026
María Vignir útskriftarnemi í grafískri hönnun ræddi við Sunnudags Moggan um útskriftarverkefnið sitt, sem að er ljósmyn...
07/06/2026

María Vignir útskriftarnemi í grafískri hönnun ræddi við Sunnudags Moggan um útskriftarverkefnið sitt, sem að er ljósmyndabók með myndum langaafa hennar.

María Vignir er nýútskrifaður grafískur hönnuður. Lokaverkefni hennar var ljósmyndabók með verkum eftir langafa hennar, ­ljósmyndarann Sigurhans Vignir.

Address

Stakkahlíð 1
Reykjavík
105

Telephone

+3545452200

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Listaháskóli Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category