18/05/2021
Eftir 2 ára hlé er Vinir Vors og Ylliblóma kominn brakandi ferskur á krana hjá nokkrum vinum okkar og má nálgast hann á BrewDog Reykjavík ÚPS restaurant Austri Brugghús RVK Brewing Co. Smiðjan Brugghús
Þetta brugg var gert sérstaklega til styrktar Pieta og rennur allur okkar ágóði beint til Píeta Samtökin
Pieta samtökin eru að stærstum hluta rekin af framlögum frá fólki eins og þér.
16/11/2018
Romm í Jól er kominn á stjá🎅
Við erum að tala um Imperial Stout með lakkrísrót og Havana Club nr.7 sem var gerður í samstarfi við
Núna er klárlega helgin til að detta í bullandi jólafíling því það er hægt að nálgast hann á krana, ásamt fullt af jólabjórum á eftirtöldum stöðum 💃
Askur Taproom
Micro
Bjórgarðurinn
Session
Skál
Rvk brewing
Brewdog
Mikeller-væntanlegur
Skúli-væntanlegur
16/10/2018
Viljum bara minna ykkur á að það eru 68 dagar og 20 klukkustundir til jóla 🎅🤶
Góðum collab degi með IDE Brugghúsi lokið og það verður einhver tilraunakennd jólasnilld sem kemur út úr þessu!
24/09/2018
Viljum benda öllum á að nýjasta sköpunarverk okkar Simcoe SMaSH fæst á eftirtöldum stöðum, Session, SKÁL, Micro, Bjórgarðurinn Fosshotel, RVK brewing 🤗
Svo er hægt að nálgast seinustu kútana af HALTU KAFFI á Session, Micro, Kex Brewdog og Bjórgarðinum☕
20/08/2018
Haltu Kaffi er á krana 15 Go!Go!Go! 🙌☕🙌
10/08/2018
Fengum seinast í dag fyrirspurn um hvar HALTU KJAFTI fengist á krana, hér eru góðar fréttir! Hann er til á Session Craft Bar
Bankastræti 14
Session Craft Bar
10/08/2018
Næsta öl er vel þekkt fyrirbæri innan bjórheimsins, auðdrekkanlegur og laufléttur Simcoe SMASH, skál fyrir því!
Í leiðinni viljum við benda öllum sem ekki vita af flottum nýjum Brugghúsbar sem er staðsettur í Skipholti 31
10/08/2018
Fyrir áhugsama þá erum við að gera nýjan bjór hjá RVK Brewing Co. Og þið getið fylgst með á Instagram story hjá okkur á Instagram
02/07/2018
Það gleður okkur mikið hvað HALTU KAFFI er að fá góðar viðtökur ☕🍺
Hann er kominn á krana hjá einnig og fer að koma undir á Micro og Skúla.
Endilega látið okkur vita hvað ykkur finnst á Untappd 🍻
28/06/2018
HALTU KAFFI er væntanlegur á þessa bari á næstunni.. og haltu svo kaffi
Micro
Bjórgarðurinn
KEX
Skúli
NR.2 í röðinni ber nafnið HALTU KAFFI og er cold brew coffee Imperial Stout sem var gerður í samstarfi með Reykjavík Roasters en þaðan fáum við hágæða kaffið sem er í bjórnum. Kaffið er sérstkalega valið með starfsfólki RR fyrir þennan stout og hentar frábærlega vel til kald bruggunar ,,cold brew".
Hér kemur smá lýsing á kaffinu
Tegundin er Chirinos frá Cajamarca, Peru.
tært og sætt. Áferðin mjúk sem minnir á hunang. Bragðið einkennist af þurrkuðum trönuberjum og karamellu má finna í eftirbragði.
12/02/2018
Vinir Vors og Ylliblóma vol.2 er kominn á krana hjá matar og drykkjar paradísinni SKÁL Hlemmur - Mathöll
Mælum við eindregið með því að gera sér góðan dag og fá sér eitthvað ljúffengt að borða og skola því niður með VVY 🍻👌