Executive MBA í Háskóla Íslands

Executive MBA í Háskóla Íslands Executive MBA námið í Háskóla Íslands er hagnýtt meistaranám fyrir stjórnendur og sérfræðinga.

MBA-námið er tveggja ára hagnýtt meistaranám fyrir stjórnendur og sérfræðinga.

Tortíming heimsins eða hvað? Hafsteinn Einarsson, dósent, og kennari námskeiðsins Gervigreind og leiðtoginn fer yfir nýj...
28/09/2026

Tortíming heimsins eða hvað? Hafsteinn Einarsson, dósent, og kennari námskeiðsins Gervigreind og leiðtoginn fer yfir nýjustu fréttir af gervigreind í viðtali á Vísi.

„Dómsdagur er í nánd,“ hafa verið skilaboð gervigreindariðnaðarins til almennings og stjórnmálamanna á undanförnum vikum. Forseti tölvunarfræðideildar HÍ ræðir við Vísi um hvort gervigreindin sé í þann veginn að tortíma mannkyninu.

Elín Sigurveig Sigurðardóttir hefur verið ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu. Elín útskrifaðist með MBA-gráð...
22/09/2026

Elín Sigurveig Sigurðardóttir hefur verið ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu.

Elín útskrifaðist með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands í júní síðastliðnum.

Við óskum Elínu til hamingju með nýtt hlutverk! ✨

Elín Sigurveig Sigurðardóttir hefur verið ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu og mun leiða teymi stofunnar á sviði ferðaþjónustu.

Nemendur á fyrsta ári hafa síðustu vikur setið við samningaborðið og æft sig í samningavinnu, sem hluti af námskeiðinu S...
14/09/2026

Nemendur á fyrsta ári hafa síðustu vikur setið við samningaborðið og æft sig í samningavinnu, sem hluti af námskeiðinu Samningatækni. Umsjónarkennari námskeiðsins er Elmar Hallgríms Hallgrímsson.

Í tengslum við námskeiðið hafa nemendur fengið til sín góða gesti úr atvinnulífinu sem hafa miðlað af reynslu sinni, deilt hagnýtum ráðum og veitt innsýn í undirbúning, framkvæmd og gerð samninga.

Lárus Welding fjallaði um helstu atriði sem varða samninga um kaup eða sölu fyrirtækja og hvaða atriði þarf að hafa í huga við slíka samningagerð.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fjallaði um kjarasamninga og hvernig ber að nálgast slík viðfangsefni. Þá fór hún einnig yfir samspil samningagerðar á milli ólíkra hagsmunahópa og svaraði fyrirspurnum frá nemendum.

Við þökkum gestafyrirlesurum kærlega fyrir þeirra framlag

Sigríður Benediktsdóttir, lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og rannsakandi við Rannsóknasetur um jafnrétti ...
11/09/2026

Sigríður Benediktsdóttir, lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og rannsakandi við Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi, hefur tekið við faglegri stjórn MPA in Economic Policy Management (MPA-EPM) námsins við Columbia háskóla í New York.

MPA-EPM er alþjóðlegt meistaranám sem leggur meðal annars sérstaka áherslu á seðlabanka og fjármálamarkaði og tengir saman hagfræði, stefnumótun og stjórnun í alþjóðlegu samhengi.

Sigríður situr í ráðgjafaráði Executive MBA-námsins og kennir jafnframt áfangann Rekstrarumhverfið, ásamt Gylfa Magnússyni.

Við óskum Sigríði til hamingju 💫

Sigríður Benediktsdóttir, lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og rannsakandi við Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi, hefur tekið við faglegri stjórn MPA in Economic Policy Management (MPA-EPM) námsins við Columbia háskóla í New York. MPA-EPM er a...

Nemendur á öðru ári fengu til sín góða gesti í áfanganum Leiðtogar og sjálfbærni. Umsjónakennari í námskeiðinu er Tinna ...
11/09/2026

Nemendur á öðru ári fengu til sín góða gesti í áfanganum Leiðtogar og sjálfbærni. Umsjónakennari í námskeiðinu er Tinna Hallgrímsdóttir.

Kristján Steinn Magnússon, sérfræðingur í útlánaáhættu hjá Landsbankanum fjallaði sjálfbærniáhættu og hversu mikilvægur sá áhættuþáttur er í hvers kyns rekstri. Þá fór hann yfir hvernig Landsbankinn og aðrir bankar í Evrópu meta og stýra áhættunni.

Heiðrún Hödd Jónsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni í eignastýringu hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins fjallaði um hvernig Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins greinir og stýrir sjálfbærniáhættu í sínu eignasafni.

Justine Vanhalst, verkefnastjóri samskipta og sjálfbærni hjá Græna iðngarðinum (IEBP) sagði frá Græna iðngarðinum (Iceland Eco-Business Park) í Helguvík. Iðngarðurinn er klasi fyrirtækja sem starfa á sameiginlegu svæði með það að markmiði að styrkja samkeppnisstöðu fyrirtækjanna í hringrásarhagkerfinu.

Haukur Logi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindafræðingur og verkefnastjóri hjá Íslenskum stöðlum, fór yfir samspil regluverks og staðla og hvernig staðlar hjálpa fyrirtækjum að byggja upp aðferðir, gögn og stjórnkerfi sem gera sjálfbærnimarkmið framkvæmanleg og sannreynanleg.

Við þökkum gestafyrirlesurum dagsins kærlega fyrir þeirra framlag 🙏

Nemendur á öðru ári sitja nú áfangann Stafræn markaðssetning í umsjón Þórunnar Ingu Ingjaldsdóttur. Á nýliðinni kennsluh...
07/09/2026

Nemendur á öðru ári sitja nú áfangann Stafræn markaðssetning í umsjón Þórunnar Ingu Ingjaldsdóttur.

Á nýliðinni kennsluhelgi var meðal annars unnið með dæmisögu (e. case study) þar sem sjónum var beint að ákvörðunum um markaðsfjárfestingar, val á viðskiptavinahópum og því hvernig meta megi raunverulegan árangur markaðsstarfs og fjárfestinga í vörumerki.

Venju samkvæmt fengu nemendur góða gesti úr atvinnulífinu í heimsókn og fengu þannig tækifæri til að tengja fræðin við raunveruleg viðfangsefni stjórnenda.

Bjarni Ármannsson, fjárfestir og athafnamaður, fjallaði um fjármál, fjárfestingar, ákvarðanatöku og uppbyggingu nýrra viðskiptatækifæra og gaf nemendum innsýn í eigin reynslu.

Jón Björnsson, forstjóri Veritas, miðlaði fjölbreyttri reynslu úr stjórnunarstörfum og ræddi meðal annars breytingastjórnun, markaðsmál, stefnumótun, fyrirtækjamenningu og leiðtogahlutverkið.

Rúnar Kristmannsson, markaðsstjóri Nóa Síríus, veitti nemendum góð ráð og hagnýta innsýn í mótun vaxtastefnu en nemendur vinna nú að raunhæfu hópaverkefni fyrir Nóa Síríus þar sem tekist er á við raunveruleg viðfangsefni fyrirtækisins.

Við þökkum gestafyrirlesurum kærlega fyrir þeirra framlag til námsins. 💡

Skemmtilegur og lærdómsríkur dagur Executive MBA-nema í áfanganum Stafræn markaðssetning í umsjón Þórunnar Ingu Ingjalds...
27/08/2026

Skemmtilegur og lærdómsríkur dagur Executive MBA-nema í áfanganum Stafræn markaðssetning í umsjón Þórunnar Ingu Ingjaldsdóttur.

Lögð var áhersla á að tengja fræðin við raunverulegar áskoranir stjórnenda og þau tækifæri sem felast í öflugu og markvissu markaðsstarfi.

Við fengum góða gesti úr atvinnulífinu, þau Önnu Regínu Björnsdóttur, forstjóra Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi og Sigurð Má Sigurðsson frá Velora.

Anna Regína deildi reynslu sinni og innsýn úr rekstri og stjórnun en hún hefur gegnt fjölbreyttum stjórnunarstöðum innan fyrirtækisins, meðal annars á sviði sölu og fjármála, áður en hún tók við starfi forstjóra árið 2023. Sérstaklega áhugavert að fá hennar sjónarhorn á vörumerki og markaðsmál en Coca-Cola er eitt þekktasta vörumerki heims og starfar á afar samkeppnishörðum neytendamarkaði.

Sigurður Már fjallaði um gervigreind og hagnýta nýtingu hennar í markaðsstarfi. Þar var sjónum beint að þeim fjölmörgu tækifærum sem tæknin skapar en jafnframt þeim áskorunum og álitaefnum sem stjórnendur þurfa að vera meðvitaðir um.

Dagurinn endurspeglaði þannig vel það sem við viljum leggja áherslu á í Executive MBA-náminu: að tengja fræðilega þekkingu, reynslu úr atvinnulífinu og ný verkfæri við raunverulegar áskoranir stjórnenda.

Við þökkum Önnu Regínu og Sigurði Má fyrir þeirra framlag.

„MBA-námið í HÍ hefur gert mig að heildstæðari og beittari stjórnanda.“
26/08/2026

„MBA-námið í HÍ hefur gert mig að heildstæðari og beittari stjórnanda.“

Fjölbreyttur og fræðandi kennsludagur í áfanganum Leiðtogar og sjálfbærni hjá nemendum á öðru ári. 🌍Sara Júlía Baldvinsd...
24/08/2026

Fjölbreyttur og fræðandi kennsludagur í áfanganum Leiðtogar og sjálfbærni hjá nemendum á öðru ári. 🌍

Sara Júlía Baldvinsdóttir, sjálfbærnisérfræðingur hjá KPMG, fór yfir sjálfbærniregluverk er snertir fyrirtæki í Evrópu og á Íslandi.

Hrafnhildur Bragadóttir, lögfræðingur, sérhæfð í loftslagsrétti, sjálfstætt starfandi ráðgjafi og doktorsnemi við Lagadeild HÍ fræddi nemendur um viðskiptakerfi Evrópusambandsins. Hún fór m.a. yfir losunarheimildir (EU ETS), tilgang þess, virkni og stöðu Íslands í því samhengi.

Ágústa Þóra Jónsdóttir aðjúnkt við Háskólann Bifröst og Aðalsteinn Leifsson ráðgjafi og fyrrverandi Ríkissáttasemjari, stýrðu svokölluðum Loftslagsleikum fyrir hópinn (En-ROADS vinnustofu) þar sem nemendur stigu inn í hlutverk ríkisstjórna og hagsmunasamtaka með það verkefni að semja um loftslagsaðgerðir sem hægja á hamfarahlýnun jarðar.

Með En-Roads hermilíkaninu geta nemendur prófað mismunandi aðgerðir og séð áhrif þeirra á loftslagsmarkmið og hagvöxt í rauntíma. Þannig fá þeir að takast á við áskoranir sem einkenna loftslagsviðræður, þar sem ólíkir hagsmunir takast á og spurningin er hvaða aðgerðir skili raunverulegum ávinningi. Vinnustofan sameinar þannig marga þætti stjórnunar eins og samningatækni, stefnumótun, kerfishugsun og sjálfbærni, og færir raunverulegar áskoranir nútímans inn í kennslustofuna.

Við þökkum Söru Júlíu, Hrafnhildi, Ágústu Þóru og Aðalsteini kærlega fyrir fræðandi og gagnlegt framlag til MBA-námsins.

Engilbert nýr framkvæmdastjóri Nice Travel, segir MBA-námið hafa nýst vel í nýju hlutverki. Í sumar bárust fréttir af þv...
24/08/2026

Engilbert nýr framkvæmdastjóri Nice Travel, segir MBA-námið hafa nýst vel í nýju hlutverki.

Í sumar bárust fréttir af því að hópur fjárfesta hefði gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Nicetravel ehf. Engilbert Hafsteinsson leiddi hóp fjárfestanna og tók jafnframt við starfi framkvæmdastjóra félagsins.

Engilbert Hafsteinsson Betti útskrifaðist með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands árið 2024.

Aðspurður um hvernig námið hefðist nýst honum í þessu ferli segir
Engilbert

„MBA-námið hefur nýst mér gríðarlega vel, ekki síst í ferlinu við fjárfestinguna í Nicetravel og við það að fá sterkan hóp fjárfesta með mér í verkefnið. Námið styrkti mig í að horfa á tækifærið frá fleiri sjónarhornum en ég hefði annars gert og taka upplýstari ákvarðanir. Ég finn líka að það hefur mótað enn frekar sýn mína á hvernig ég vil leiða Nicetravel inn í framtíðina og mun án efa nýtast mér mikið í starfi mínu sem framkvæmdastjóri.“

Lokaverkefni Engilberts í MBA-náminu nýttist vel því margir þeirra sem komu að verkefninu höfðu lesið ritgerðina og þekktu því vel sýn hans og nálgun á verkefni af þessu tagi.

Við óskum Engilberti velfarnaðar í nýju starfi 💫

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2026/07/07/hopur_fjarfesta_kaupir_nicetravel/

Address

Sæmundargata 10
Reykjavík
102

Telephone

+3545254000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Executive MBA í Háskóla Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Executive MBA í Háskóla Íslands:

Shortcuts

Share