Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands

Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands

Share

Skemmtilegt og hagnýtt nám sem nýtist á flestum sviðum atvinnulífsins.

Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands (University of Iceland School of Business) er elsti og stærsti viðskiptaháskóli á Íslandi. Viðskiptafræðideildin hefur gegnt forystuhlutverki í menntun stjórnenda og sérfræðinga á sviði viðskiptafræði í rúma átta áratugi. Á sama tíma hefur deildin lagt metnað sinn í að auka og miðla framúrskarandi og alþjóðlega viðurkenndri þekkingu á þessu sviði með því að vera

10/08/2026

Ertu að fara að byrja í viðskiptafræði?

Komdu á móttöku nýnema föstudaginn 21. ágúst kl. 13 í Stóra sal Háskólabíós.

Við hlökkum til að taka á móti þér!

04/08/2026

Kjartan Örn Styrkársson, nemandi í hagfræði við Háskóla Íslands, er einn af fjölmörgum nemendum sem hafa fengið tækifæri til starfsþjálfunar á vegum Viðskiptafræðideildar. Hann fór í starfsþjálfun hjá fjármálaráðuneytinu, þar sem hann fékk góða innsýn í opinber fjármál, reynslu af gagnagreiningu og aukinn skilning á því hvernig verkefni eru unnin innan stjórnsýslunnar.

„Starfsþjálfunin sýndi mér hvernig fræðileg þekking nýtist í framkvæmd og staðfesti áhuga minn á þessu sviði. Ég myndi hiklaust mæla með starfsþjálfun við aðra nemendur.“

Kjartan segir starfsþjálfunina jafnframt hafa hjálpað sér að átta sig betur á eigin styrkleikum og áhugasviði og undirbúa sig fyrir framtíðarstarf.

Langar þig að öðlast dýrmæta starfsreynslu samhliða náminu? Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um nokkrar nýjar starfsþjálfunarstöður. Kynntu þér tækifærin og sæktu um!
https://hi.is/felagsvisindasvid_vidskiptafraedideild/starfsthjalfunarstodur_i_bodi_fyrir_haustid_2026

Velkomin í nám á Félagsvísindasviði 04/08/2026

Velkomin í nám á Félagsvísindasviði Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Sigraði í alþjóðlegri leikjasenukeppni með hugmynd úr Aurora-námskeiði 02/07/2026

Til hamingju, Khair Un Nisa!

Khair, nemandi í meistaranámi í alþjóðaviðskiptum og verkefnastjórnun við Viðskiptafræðideild HÍ, sigraði í alþjóðlegri leikjasenukeppni með teymi sínu.

Hugmyndin varð til í Aurora-námskeiði þar sem borðspilaleikjaspuni var nýttur til að þjálfa sköpunargáfu, samvinnu, ákvarðanatöku og stjórnunarhæfni.

Frábær árangur og skemmtilegt dæmi um nýsköpun í námi við Viðskiptafræðideild.

Lesa má meira á vef HÍ.

Sigraði í alþjóðlegri leikjasenukeppni með hugmynd úr Aurora-námskeiði Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

24/06/2026

Hvað einkennir meistaranám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands?

Kennarar í Viðskiptafræðideild segja frá fjölbreyttum námsleiðum, miklu framboði valáfanga og tækifærinu til að sérsníða námið að eigin markmiðum.

Í náminu fá nemendur sterkan fræðilegan grunn, skýra kjarnaþekkingu og persónulegri nálgun þar sem kennarar geta sinnt hverjum og einum nemanda.

23/06/2026

Hvernig breytist hlutverk stjórnenda á næstu árum?

Kennarar í viðskiptafræði við Háskóla Íslands fjalla um mikilvægi þess að stjórnendur geti brugðist við breytingum, greint ólíka valkosti, hlustað eftir ólíkum sjónarmiðum og nýtt ný tæki og tól þar á meðal gervigreind.

Þau minna jafnframt á að gagnrýnin hugsun verður áfram lykilfærni í stjórnun framtíðarinnar.

22/06/2026

Hvernig er að stunda nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og hvað tekur við að námi loknu?

Fyrrverandi nemendur segja frá sinni reynslu, náminu og hvernig viðskiptafræðin hefur nýst þeim á ólíkum vettvangi.

Hilda Amoako-Arhin útskrifaðist með ágætiseinkunn í International Business and Project Management 18/06/2026

Hilda Amoako-Arhin útskrifaðist með ágætiseinkunn í International Business and Project Management frá Háskóla Íslands.

Í viðtalinu segir hún frá leiðinni frá Gana til Íslands, fjölbreyttu námi og því hvernig skipulag, agi og stuðningur hjálpuðu henni að ná markmiðum sínum.

Innilega til hamingju, Hilda

Hilda Amoako-Arhin útskrifaðist með ágætiseinkunn í International Business and Project Management Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Júlía Birgisdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í verkefnastjórnun 18/06/2026

Júlía Birgisdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands.

Í viðtalinu segir hún frá fjölbreyttum tækifærum í náminu, skiptinámi í Danmörku, starfsþjálfun hjá Eimskip og mikilvægi þess að nýta styrkleika sína.

Innilega til hamingju, Júlía!

Júlía Birgisdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í verkefnastjórnun Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Sæmundargötu 2
Reykjavík
102