Fengist hefur leyfi hjá rétthöfum myndanna til að birta þær hér. Ef þið óskið eftir kópíum af myndunum endilega hafið samband og við bendum ykkur á hvar hægt er að nálgast þær.
____________________________________________
Hagaskóli tók til starfa í hluta núverandi húsnæðis 1. Skólinn er beint framhald skóla þess er nefndist Gagnfræðaskól
inn við Hringbraut, og var í leiguhúsnæði að Hringbraut 121. Hagaskóli var byggður í áföngum 1956 - 1963. Byggingaframkvæmdir hófust að nýju veturinn 1988 - 1989. Byggð var ný álma meðfram Dunhaga með 7 kennslustofum.
Þröngt hefur verið í skólanum alla tíð. Vesturbærinn byggðist hratt á 6. og 7. áratug aldarinnar og 240 nemenda árgangar gengu í gegn ár eftir ár. Miðbæjarskólinn var lagður niður og skólahverfið stækkaði. Skólinn var tvísetinn og kennt fram undir kvöld. Nemendafjöldi fór yfir 850. Mikið útfall varð úr hverfinu þegar byggðin teygðist austur á bóginn. Tvísetningu lauk 1976 og varð þá kleift að vinna við eðlilegar aðstæður í Hagaskóla. Skólahverfi Hagaskóla er allur Vesturbærinn, frá flugvelli og Lækjargötu út að Seltjarnarnesi. Auk heimafólks hafa jafnan verið allmargir nemendur utan hverfis í skólanum en verulega hefur verið þrengt að möguleikum nemenda utan Reykjavíkur að sækja skóla hér eftir að grunnskólarnir færðust yfir til sveitarfélaga. Nemendum fækkaði nokkuð undir aldarlok og komu 170 manns inn í hverjum árgangi. Þeim fjölgar aftur nokkur næstu árin og má vænta þess að um það bil tvö hundruð nýnemar komi í Hagaskóla á hverju ári. Fjórir skólastjórar hafa leitt starfið í skólanum á þessum árum: Árni Þórðarson 1958 - 1967, Björn Jónsson 1967 - 1994, Einar Magnússon 1994 - 2007 og S. Ingibjörg Jósefsdóttir frá árinu 2007.