Lestrarmiðstöð í Mjódd - Dyslexia Center

Lestrarmiðstöð í Mjódd - Dyslexia Center Mat á lestrarfærni, tillögur og ráð, aðstoð vegna lestrarvanda? Hafðu samband,
www. audur@ lestur.is
Auður B. Kristinsd. Lestrarfræðingur. Ert þú með lestrarvanda?

Kíktu á spurningalistann á heimasíðunni okkar www.lestur.is
þar má sjá helstu einkenni leshömlunar eða dyslexiu. Greining á leshömlun (dyslexiu) eða lesblindu. Lestrarkennsla og ráðgjöf. Háskólar viðurkenna greiningar frá Lestrarmiðstöð. Taktu prófið hér: www.lestur.is

Í Lestrarmiðstöð er kennsla fyrir börn og unglinga vegna lestrar- eða námserfiðleika. Ef barnið á erfitt með lestur geta foreldrar geta leitað ráðgjafar hjá okkur. Auður B. Kristinsdóttir sérkennari stýrir Lestrarmiðstöðinni. Hún hefur mikla reynslu af lestrarkennslu og ráðgjöf til foreldra. Hún er með meistarapróf í uppeldis- og kennslufræðum.

08/11/2025

Breytt afstaða til lesblindu
Þó að enn sé langt í land má segja að afstaða til lesblindu hafi tekið stórstígum breytingum síðustu áratugi, bæði innan skólakerfisins og fræðasamfélagsins. Þannig má segja að hin praktíska afstaða hafi farið frá því að líta á lesblindu sem „vandamál“ yfir í að skoða hana sem „fjölbreytileika sem þarf að styðja við“. Margir skólar og vinnustaðir eru þó enn á eftir og ekki er fullur skilningur á þeim möguleikum í tækninni sem gætu skipt mestu máli til að gera breytinguna raunverulega.
Þessi breyting er sérlega áberandi síðustu 10 til 15 árin, bæði á Íslandi og á Norðurlöndum almennt og reyndar einnig og víðar í heiminum. Þessi breyting endurspeglar vaxandi skilning á taugafjölbreytileika (neurodiversity), betri rannsóknir og aukna vitund í skólum, vinnustöðum og stefnumótun.Helstu breytingar í afstöðu:
Áður litu menn á lesblinda sem „vandamál“ eða „galla“ sem þurfi að „lækna“ en nú er hún einfaldlega talin náttúrulegur fjölbreytileiki í heilastarfsemi, alls ekki sjúkdómur eins og margir glöptust til að halda.
Því er það svo að aukin áhersla er á styrkleika lesblindra þegar kemur að skapandi hugsun, lausnaleit og að finna aðgengilegar lausnir. Þessi aukna vitundarvakning hefur opnað augu fólks fyrir því að um 10 til 15% íbúa eiga við lesblindu að stríða, jafnvel að þetta hlutfall sé hærra þegar almennir leserfiðleikar eru taldir með.

Mikilvægt að finna nemendur með lestrarvanda  sem fyrst og grípa inn í með aðstoð og stuðning
13/09/2025

Mikilvægt að finna nemendur með lestrarvanda sem fyrst og grípa inn í með aðstoð og stuðning

On Wednesday 10 September, Adam Dance, Liberal Democrat MP for Yeovil will present a ‘Ten Minute Rule Bill’ calling for universal screening in primary…

Góð grein um lesskilning, hvet alla til að lesa
07/09/2025

Góð grein um lesskilning, hvet alla til að lesa

Félag læsisfræðinga á Íslandi (FLÍS) fagnar um þessar mundir fimm ára afmæli. Félagið var stofnað með þá hugsjón að tengja saman fólk með menntun í læsisfræðum og skapa vettvang til að efla þekkingu og umræðu um læsi á Íslandi. Félagið er einnig aðili að evrópskum...

23/08/2025
23/08/2025

An overview why early intervention is so important for kids with dyslexia.

15/08/2025

Bókstafaspilin eru kennslutæki sem Lestrarmiðstöð gefur út og notar. Á bakhlið spilanna teiknar nemandinn mynd til að tengja saman hljóð og mynd og leggja á minnið. Pantaðu stokk af bókstafaspilum, tilvalin gjöf til stuðnings börnum búsettum erlendis og tvítyngdum börnum.

15/08/2025

Bjarni Örn Kristinsson, ungur maður úr Grafarvoginum, er í dag í doktorsnámi í flugvéla- og geimverkfræði við Massachusetts Institute of Technology (MIT) í Bandaríkjunum sem er einn virtasti tækniskóli heims. Hann segir í viðtali við menntablað Morgunblaðsins í dag að þrjóska og óhefðbundin hugsun hafa hjálpað sér að komast þangað þrátt fyrir lesblindu.

Þó að lesblinda hafi fylgt honum frá upphafi, lítur Bjarni á hana sem kost. Hann telur að þeir sem eiga erfitt með lestur þrói oft aðra hæfileika – og sér hann hluti auðveldlega fyrir sér í þrívídd sem hjálpar mikið við að leysa hönnunarvandamál.

„Lausnirnar sem þú finnur upp á eru mögulega frumlegri,“ segir hann. „Mér hefur alltaf gengið vel í raungreinunum og stærðfræði.
Það hefur hjálpað mér mikið að ég hef gaman af því að lesa þrátt fyrir að lesturinn hafi verið mér erfiður fyrri hluta grunnskólans vegna lesblindunnar. Með æfingu og aga hef ég náð upp sæmilegum leshraða og lesskilningi sem er lykilþáttur í velgengni framhaldsnáms.

Það tók mig mörg ár að læra að halda aðeins aftur af mér og flýta mér hægt. Að fara aftur yfir útreiknuð dæmi á prófum og þefa uppi villur,“ segir hann við Morgunblaðið.

„Ef við hefðum tímavél þá væri gaman að finna þá sem fundu upp hjólið og lærðu að kveikja eld. Ég mundi veðja á að þau væru greind með lesblindu eða ADHD – eða hvort tveggja.“

29/07/2025

Lærum og leikum með hljóðin opið fyrir öll tækiBörnin læra íslensku málhljóðin, bókstafina og undirbúa læsi frá unga aldri Spila núna Hljóðtenging Frábær verkefni sem styðja við réttan framburð íslensku málhljóðanna og undirbúa læsi Lesa nánar... Nýjasta tækni í s...

31/05/2025

Listen to the post. By the age of six, children know around 15,000 words; that’s the same number of words Shakespeare used in all of his collected works. Let’s take a moment to really appreciate th…

30/05/2025

Í heimi þar sem gervigreind getur skrifað texta og jafnvel heilar ritgerðir á nokkrum sekúndum gætu margir haldið að draga mætti úr vægi ritunarkennslu. En þrátt fyrir þessar miklu tækniframfarir, eða kannski einmitt vegna þeirra, hefur ritunarkennsla aldrei verið mikilvægari fyr...

Address

Álfabakki 12, Mjódd
Reykjavík
109

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 10:00 - 17:00
Wednesday 10:00 - 17:00
Thursday 10:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Telephone

+3548933961

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lestrarmiðstöð í Mjódd - Dyslexia Center posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share