Vertu velkomin í djúpt nærandi 80 mínútna gusu fyrir líkama og sál 🔥💦
Við byrjum á bolla af hjartaopnandi kakói frá Guatemala sem hjálpar okkur að mæta mjúklega inn í stundina og tengjast okkur sjálfum. Að því loknu taka við þrjár kraftmiklar gusulotur þar sem lifandi möntrusöngur leiðir okkur inn á við. Hægt er að taka undir sönginn og leyfa röddinni að bera okkur í gegnum hitann, inn í kyrrð og dýpri tengingu. Á milli lotna gefst tími til að kæla sig úti í fersku lofti eða taka dýfu í sjónum fyrir þá sem vilja.
Eftir þriðju lotu endum við kvöldið í slakandi tónabaði þar sem líkaminn fær að lenda rólega og hugurinn að fá hvíld. Markmiðið er að sleppa taki, róa hugann og gleyma sér í hita, takti og tónum.
✨
Leiðbeinendur:
Eygló Scheving er tónlistarkona, jógakennari og tónheilari. Hún hefur ástríðu fyrir möntrusöng og tónlist sem styður við innri ró, tengingu og jafnvægi. Hún leiðir möntrukór sem hittist vikulega og skapar rými fyrir sameiginlega söngupplifun.
Guðmundur Már Einarsson er hot yoga kennari með mikla reynslu af vinnu með líkamann í hita. Hann þekkir vel áhrif hitans á líkama og huga og hefur lagt stund á nám í jógafræðum og shamanisma í Bandaríkjunum og Kosta Ríka.
Bæði hafa þau lokið gusumeistaranámi og sameina hér krafta sína til að skapa einstaka og nærandi upplifun.
Skráning á fjargufa.is
Karmað
Þín vellíðan í eigin hendur ✨ Umbreytandi ferðalag gæti hafist hér.
Mantra vikunnar:
Om Namah Shivaya Gurave -
Om Namah
Shivaya Gurave
Satchidananda Murtaye
Nishprapanchaya Shantaya
Niralambaya
Tejase
Om Namah - Om Namah
—
Ég hneigi mig fyrir því sem ég er í raun og veru
fyrir kyrrðinni, viskunni og ljósinu innra með mér
og ég leyfi því að leiða mig
20/04/2026
ætlar að leiða okkur inn í fallega hjartaopnandi kakó seremóníu á morgun 🤍 Hægt að kaupa stakt skipti á karmad.is fyrir þau sem eru ekki skráð í kórinn ☺️
06/04/2026
Möntrukórinn samanstendur af hópi fólks sem finnur ánægju og gleði í því að hittast einu sinni í viku og syngja saman 🤍
07/03/2026
Mánudags möntrur
Hefst 9. mars 💛
Förum mjúklega af stað, stillum okkur af og hefjum vikuna í jafnvægi og ró.
Notalega kakóstund í White Lotus salnum, Bankastræti 2 (Sama stað og Mama veitingahús) í hádeginu á mánudögum frá kl: 12 - 13. Stundin hefst á ilmandi ceremonial kakóbolla frá Guatemala, syngjum svo saman nokkrar möntrur og söngva og endum á róandi slökun. Byrjum vikuna vel og gefum okkur nærandi stund til lenda eftir helgina, hvíla taugakerfið og gefa jafnvægi og orku inn í restina af vikunni.
Skráning nauðsynleg🤎
✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨
English:
A gentle way to begin the week, tune in and find balance and calm. This cozy lunchtime gathering takes place in the White Lotus hall, Bankastræti 2 (the same location as Mama restaurant), on Mondays from 12:00 to 13:00. The hour begins with a cup of ceremonial cacao from Guatemala, followed by simple mantra singing together with a few Icelandic songs. No singing experience is needed and everyone is welcome just as they are. The gathering ends with a short, relaxing rest. It is a nourishing way to land after the weekend, give the nervous system some rest and bring balance and fresh energy into the week, while also offering a beautiful way to experience Icelandic music woven together with mantra singing.
07/01/2026
Gleðilegt nýtt söngár 🌟
Síðasta ár var viðburðaríkt hjá okkur í Möntrukórnum. Við gáfum út okkar fyrstu möntru í byrjun hausts. Lagið ferðaðist víða og þegar þetta er skrifað eru spilanir á tónlistarmyndbandinu okkar komnar yfir 53 þúsund! Við vitum að auðveld ekki alltaf blessuð sjálfsástin er, en þessi mantra hjálpar okkur og vonandi fleirum að tengjast sjálfsástinni og dýpka 💓
Þriðjudagskvöldin voru hverju öðru betri, við kynntumst mörgum nýjum möntrum og heilunar söngvum. Sköpuðum rými fyrir kraftinn innra með okkur, vöxt, leikgleði. kyrrð og ró þar sem hver rödd fékk að leika, hljóma og vera eins og hún er. Toppurinn var án efa allir gestakennararnir sem heimsóttu okkur, brutu upp formið okkar og kenndu okkur eitthvað nýtt, veittu innblástur og dýpri skilning. Takk innilega fyrir okkur .om .aevintyris og 🙏
Ný önn hefst næstkomandi þriðjudag, 13. janúar með nýjum möntrum, nýjum tónum og nýjum verkefnum í bland við það besta sem við höfum verið að leika okkur með áður og virkilega spennandi gestakennurum sem ætla að heimsækja okkur. Við bjóðum nýja meðlimi hjartanlega velkomna, engar kröfur um söngkunnáttu eða hæfileika. Hafðu samband í skilaboðum eða með tölvupósti á [email protected] ef þú hefur spurningar eða áhuga á að koma og prófa að syngja með okkur á þriðjudagskvöldum frá kl 20 - 21:30.
Tökum á móti 2026 með gleði og söng 💓 Möntrukórinn
23/08/2025
Möntrukórinn er opinn öllum sem vilja hittast einu sinni í viku, kyrja saman og syngja söngva og möntrur. Í hverjum tíma er ein mantra í sérstökum fókus, mantra vikunnar. Við rýnum í merkingu hennar, tilgang og áhrif, og ef henni fylgir mudra (sérstök líkamsstaða eða handahreyfingar) lærum við hana einnig.
🩵
Mantran er síðan kyrjuð lengi og af einlægni, þannig að hún nái djúpt inn í líkama og huga. Þátttakendur eru hvattir til að halda áfram að kyrja hana heima milli tíma, til að upplifa áhrifin betur og skapa tengingu. Næsti tími hefst svo á sömu möntrunni þannig að við tengjumst henni enn dýpra. Síðan syngjum við fleiri lög og möntrur saman, eins og tími leyfir, og kynnum inn nýja möntru vikunnar.
🤍
Haustönnin verður blanda af möntrum sem kórinn þekkir frá fyrri önnum og nýjum möntrum sem ekki hafa verið sungnar áður. Einnig verður sérstök tilbreyting í vetur þar sem gestakennarar munu bjóða upp á nýja upplifun, svo sem vinnu með röddina, trommuhring eða hljóðheilun. Síðasti tími annarinnar verður 16. desember og verður þá haldin jóla-cacao athöfn þar sem boðið verður upp á 100% hreint kakó frá Gvatemala og notalegt, slakandi andrúmsloft til að taka með inn í hátíðirnar.
❤️
Tími og staðsetning:
Þriðjudagskvöld kl. 20:00–21:30 í salnum Leiðin heim, Laugavegi 178 við Bolholt.
🩵
Komdu í prufutíma!
Fyrstu tveir tímarnir eru opnir fyrir alla sem vilja prófa.
Skráning: [email protected]
14/10/2024
Vilt þú vera með í möntrukórnum?
Möntrukórinn er opin öllum þeim sem vilja hittast einu sinni í viku, kyrja saman og syngja söngva. Kíktu í prufu 💛
Skráning á [email protected]
29/08/2024
100% Hreint og lífrænt ceremonial cacao frá Guatemala. Kröftugt kakó stútfullt af næringu og orku ✨
Kemur í fallegum handofnum taupoka 💜
23/08/2024
Til leigu✨ Karmað er fallegt lítið stúdíó í Síðumúlanum sem hentar fullkomlega fyrir einstaklingssamtöl, minni viðburði eða námskeið. Það er svigrúm hjá okkur til að leigja út rýmið á kvöldin og um helgar. Því langar okkur að sjá hvort það sé einhver hér að leita sér að aðstöðu fyrir einhverskonar einstaklingstíma, markþjálfun, litla viðburði eða námskeið á kvöldin. Mögulega eitthvað laust yfir daginn líka. Hafið samband í skilaboðum ef það er áhugi 😊 og endilega deila áfram 🙏
www.karmad.is
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Website
Address
Síðumúli 35
Reykjavík
108