Virkaðu markþjálfun

Virkaðu markþjálfun Árangursmarkþjálfun - http://www.virkadu.is Markþjálfun er samstarf um að auka árangur hjá þér, leysa vandamál eða efla persónulega virkni.

Markþjálfun hjálpar til við að skilgreina og ná markmiðum hraðar og auðveldara en annars væri hægt. Virkaðu býður upp á markþjálfun, námskeið, fyrirlestra og vinnustofur fyrir fólk sem vill ná meiri árangri og efla sína stöðu í samfélaginu. Hjá Virkaðu starfa markþjálfar samkvæmt siðareglum International Coach Federation (ICF) og Félags Markþjálfa á Íslandi.
​
Við aðstoðum fólk við að nýta betur sína hæfileika og reynslu til að ná meiri árangri. Ef fólk er opið og tilbúið að deila sínum hugsunum, löngunum og takmörkunum, þá munum við aðstoða við að ná meiri árangri. Markþjálfun hjá Virkaðu snýst um fólk og er á þeirra forsendum. Markþjálfun er ákveðin aðferðarfræði í samskiptum sem ætlað er að gera fólk virkara í samstarfi, efla þeirra frumkvæði og hjálpa því að koma sínum viðfangsefnum sínum í framkvæmd.
​
Markþjálfi starfar á svipuðum forsendum og íþróttaþjálfari. Góður íþróttaþjálfari heldur þér að þínum áherslur á eigin markmið, veitir endurgjöf, hvetur þig áfram og tryggir að þú sért að ná framförum frá viku til viku. Góður markþjálfi er hvetjandi, heldur þér í fókus og gefur þér markvisst endurmat til að þú náir lengra á styttri tíma, en þú gætir á eigin spýtur. Markþjálfi fer yfir markmið í hverju verkefni og finnur út hverju á að ná fram með markþjálfun. Markþjálfi aðstoðar síðan við að forgangsraða fyrirliggjandi markmiðum til að hægt sé að einbeita sér að því sem skiptir mestu máli. Það þarf að ná fram góðu mati á stöðunni og markþjálfi notar til þess spurningalista, kannanir, verkefni og önnur verkfæri til að finna styrkleika, gildi og tilgang. Síðan þarf að þróa aðgerðaráætlun til að ná þeim árangri sem stefnt er að.

Address

Síðumúla 23
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Virkaðu markþjálfun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Virkaðu markþjálfun:

Shortcuts

Share