Háskóli Íslands

Háskóli Íslands Háskóli Íslands er elsti og stærsti háskólinn á Íslandi og býður nám á fjölbreyttum fræðasviðum. Virðing og jafnrétti eru undirstaða þess að öll njóti sín.

Við skólann eru 26 deildir og á fjórða hundrað námsleiðir í boði. Betri háskóli - betra samfélag: Stefna HÍ 2021-2026

Áherslur í starfi skólans 2021-2026

Opinn og alþjóðlegur
Hlutverk Háskóla Íslands er að skapa umhverfi þar sem þekkingarsköpun nemenda og starfsfólks blómstrar. Í því felst m.a. náið samstarf við nær- og alþjóðasamfélag á sama tíma og Háskólinn skapar skjól, stuðning og svigrúm fyrir nýjar hugmyndir og hagnýtingu þeirra. Háskólinn tekur markviss skref til að styðja í hvívetna við þverfræðilega samvinnu, aukið alþjóðasamstarf í kennslu og námi og öflugt umhverfi nýsköpunar. Nám við skólann býr nemendur undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi. Sjálfbærni og fjölbreytileiki
Heimurinn stendur frammi fyrir flóknum áskorunum. Rannsóknir, sérfræðiþekking, kennsla og miðlun háskóla gegna lykilhlutverki í að stuðla að lýðheilsu og velferð, heilbrigðum hagkerfum og sjálfbærum og réttlátum samfélögum. Háskóli Íslands tekur markviss skref í átt að sjálfbærum heimi í krafti rannsókna og kennslu og í eigin starfsemi. Hann berst gegn áhrifum falsfrétta og leggur fram rannsóknir, gögn og sérfræðiþekkingu til að styðja opinbera stefnumörkun og stuðla að lýðræðislegri umræðu. Afl á grunni gæða
Rannsóknir og kennsla eru kjarninn í starfi Háskóla Íslands og sameiginlegt verkefni rannsakenda, kennara, stjórnsýslu og nemenda. Allt starf skólans er háð því að gæði rannsókna og kennslu séu tryggð og að starfið sé í sífelldri þróun í takt við þarfir nemenda og starfsfólks og þróun samfélagsins. Uppbygging námssamfélags og stafrænnar kennslu sem byggist á framsækinni kennslufræðilegri sýn stuðlar að öflugum háskóla. Aukinn stuðningur við rannsakendur, vandað framhaldsnám, skarpari umgjörð stjórnunar, auk stafrænnar umbyltingar stjórnsýslu og þjónustu styrkir Háskólann í alþjóðlegri samkeppni. Góður vinnustaður
Starfsfólk og nemendur mynda framsækið og lifandi þekkingarsamfélag. Breytingar tengdar upplýsingatækni hafa víðtæk áhrif á vinnuumhverfi framtíðarinnar. Það þarf að nýta í þágu starfsfólks, nemenda og starfseminnar allrar. Háskóli Íslands tekur vel á móti fjölbreyttum hópi nýs starfsfólks og nemenda og skapar hvetjandi umhverfi með traustum rannsóknainnviðum og góðri aðstöðu til þróunar náms og kennslu. Uppbygging háskólasvæðisins, heilsusamlegt starfsumhverfi og vistvænar samgöngur stuðla að jöfnu aðgengi og samheldnu og sjálfbæru samfélagi. Stefnan HÍ26: https://stefna.hi.is/

Háskóli Íslands áskilur sér rétt til þess að fjarlægja ummæli á samfélagsmiðlum skólans sem eru niðrandi eða ósæmileg og beinast t.d. gegn tilteknum einstaklingum, kynþáttum, trúarhópum eða kyni

Ný tækni sem nýtir köngulóarsilki í stað nælons, félagslegir töfrar, stóri söngvabankinn, stafræn tilraunahugvísindi, lí...
24/09/2026

Ný tækni sem nýtir köngulóarsilki í stað nælons, félagslegir töfrar, stóri söngvabankinn, stafræn tilraunahugvísindi, lífið í sjónum, rannsóknir á fylgjunni, framlag Íslands til geimferða og hin geysvinsæla Vísindasmiðja er meðal þessa sem gestir munu finna á sýningarsvæði Háskóla Íslands á Vísindavöku laugardaginn 26. september milli kl. 12 og 17 í Laugardalshöll.

Vakan er opin öllum og ókeypis aðgangur og við hlökkum til að taka á móti ykkur þar.

Nánar í athugasemdum.

--------------
Spider silk as an alternative to nylon, social magic, the Great Song Bank, digital experimental humanities, life in the ocean, research on the placenta, Iceland's contribution to space exploration, and the ever-popular Science Centre are among the attractions awaiting visitors at the University of Iceland exhibition area at Researchers' Night on Saturday, 26 September from 12:00 to 17:00 at Laugardalshöll.

All are welcome and the entry is free of charge and we are looking forward to seeing you there.

See more in comments.

24/09/2026
Verkefnið Medieval Heritage in Current Narratives (MECU) hefur hlotið styrk að upphæð 35 milljónir króna úr Erasmus+ áæt...
24/09/2026

Verkefnið Medieval Heritage in Current Narratives (MECU) hefur hlotið styrk að upphæð 35 milljónir króna úr Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins. Í verkefninu verða þróaðar nýjar kennsluaðferðir sem tengja menningarlæsi við miðaldaheimildir auk þess sem ætlunin er að dýpka evrópska samvinnu með sameiginlegri þróun námskrár og viðmiða og að efla viðnám gagnvart misnotkun miðalda í opinberri umræðu.

Verkefnisstjóri MECU er Jan Alexander van Nahl, dósent í íslenskum miðaldabókmenntum við Háskóla Íslands.

Til hamingju með styrkinn!

Nánar í athugasemdum.

Föstudaginn 25. september fagnar námsleið í kynjafræði því að 30 eru liðin frá því að kennsla hófst í greininni við Hásk...
23/09/2026

Föstudaginn 25. september fagnar námsleið í kynjafræði því að 30 eru liðin frá því að kennsla hófst í greininni við Háskóla Íslands.

Áður höfðu fræðikonur um árabil lagt stund á kvennarannsóknir og kennt valnámskeið í kvennafræðum en í dag er nám í kynjafræði í boði á öllum námsstigum við HÍ.

Komdu og fagnaðu með okkur í Veröld milli 14 og 16 á föstudag!

Hvenær 25. september 2026 14:00 til 16:00 Hvar Veröld - Hús VigdísarAuðarsal (VHV 023) Nánar Aðgangur ókeypis Bæta við í dagatal 30 ára afmæli kynjafræðinnar föstudaginn 25. september kl. 14-16 í Auðarsal (VHV 023) í Veröld húsi VigdísarViðburðurinn hefst á ávarpi Silju Bá...

„Við þurfum að flýta okkur ef við viljum bjarga jöklunum,“ segir Guðfinna Aðalgeirsdóttir, jöklafræðingur og prófessor í...
23/09/2026

„Við þurfum að flýta okkur ef við viljum bjarga jöklunum,“ segir Guðfinna Aðalgeirsdóttir, jöklafræðingur og prófessor í jarðeðlisfræði við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands, sem var í ítarlegu viðtali við Morgunblaðið um hraða hopun íslenskra jökla.

Stóru íslensku jöklarnir hafa síðustu 130 árin minnkað gríðarlega og litlir jöklar jafnvel horfið. Mest bráðnun átti sér stað milli 1995 og 2010, en eftir 2010 hægði örlítið á þessari miklu bráðnun, þó að hún væri enn mikil. Samkvæmt nýjum rannsóknargögnum virðist ...

Núna kl. 14 er að hefjast málþing um mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar í Veröld - húsi Vigdísar á vegum Loftskeytastöðv...
23/09/2026

Núna kl. 14 er að hefjast málþing um mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar í Veröld - húsi Vigdísar á vegum Loftskeytastöðvarinnar, Sjálfbærnistofnunar HÍ og Hvalavina – vernd hafsins. Viðburðurinn, sem er öllum opinn, er einnig í streymi og hægt er að fylgjast með honum á meðfylgjandi slóð.

Loftskeytastöðin, Sjálfbærnistofnun HÍ og Hvalavinir – vernd hafsins bjóða til málþings um mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar miðvikudaginn 23. september kl.…

„Það getur orðið mjög erfitt þegar allir hlutir verða einstakir,“ segir Þórður Örn Arnarson, doktorsnemi í sálfræði við ...
22/09/2026

„Það getur orðið mjög erfitt þegar allir hlutir verða einstakir,“ segir Þórður Örn Arnarson, doktorsnemi í sálfræði við Háskóla Íslands, sem rannsakar fólk með söfnunarröskun. Þórður, sem var í viðtali í þættinum „Þetta nútímalíf“ á RÚV, segir það mikinn misskilning að fólki með söfnunarröskun líði vel í óreiðu. „Því líður yfirleitt bara mjög illa og byrðin af því að vera með söfnunarröskun er jafn mikil og af alvarlegum geðsjúkdómum.“

Sálfræðingur sem rannsakar fólk með söfnunarröskun telur að margir séu rétt undir viðmiðunum sem þarf að uppfylla til að greinast með röskunina. Við lögðum matskvarðann fyrir mann sem á mjög erfitt með að losa sig við hluti.

Því var fagnað í Hátíðasal á föstudag að 50 ár eru síðan farið var að kenna sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands. Stór hópu...
22/09/2026

Því var fagnað í Hátíðasal á föstudag að 50 ár eru síðan farið var að kenna sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands. Stór hópur núverandi og fyrrverandi nemenda og kennara kom saman á hátíðinni þar sem m.a. var fjallað um þær miklu breytingar sem hafa orðið á náminu og í rannsóknum í sjúkraþjálfun hér á landi og þau samfélagslegu áhrif sem breytingarnar hafa haft.

Í lok hátíðardagskrárinnar var Maríu Hjálmdísi Þorsteinsdóttur, fyrrverandi dósent í sjúkraþjálfun við HÍ, veitt heiðursdoktorsnafnbót Læknadeildar en þetta er í fyrsta skipti Námsbraut í sjúkraþjálfun veitir slíka nafnbót. María var ein af fyrstu kennurunum í sjúkraþjálfun við HÍ en hún hlaut heiðursdoktorsnafnbótina fyrir farsæl störf í þágu háskólans, frumkvöðlastarf og mikilvægt framlag til menntunar sjúkraþjálfara og þróunar fagsins, sem íslenskt samfélag hefur notið góðs af.

Kristinn Ingvarsson ljósmyndari var á athöfninni og tók meðfylgjandi myndir en nánari upplýsingar um hátíðina má sjá í athugasemdum.

Hvaðan kemur tónlistarhæfni mannsins? Við þessa spurningu og aðrar sem tengjast erfðafræði tónlistar og tónlistarhæfilei...
21/09/2026

Hvaðan kemur tónlistarhæfni mannsins? Við þessa spurningu og aðrar sem tengjast erfðafræði tónlistar og tónlistarhæfileika manns og gervigreindar verður fengist á opnum fundi miðvikudaginn 23. september kl. 16:30-18:00 í Hátíðasal Aðalbyggingar HÍ.

Nánar í athugasemdum.

Uglan, innri vefur Háskóla Íslands og nú flestra háskóla á Íslandi, fagnar 25 ára afmæli í dag! Alltaf töff og alltaf pe...
21/09/2026

Uglan, innri vefur Háskóla Íslands og nú flestra háskóla á Íslandi, fagnar 25 ára afmæli í dag! Alltaf töff og alltaf peppandi!

ég á sko afmæl'í dag ... 25 í dag .. það er sko eitthvað ..

Address

Sæmundargötu 2
Reykjavík
101

Telephone

+3545254000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Háskóli Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Háskóli Íslands:

Shortcuts

Share