16/06/2025
Key Habits Námskeið – Persónuleg Stefnumótun
Þetta einstaka námskeið, sem stendur í 5 daga (3 klst. hvert skipti), er vinsælasta vinnustofan af átta sem Key Habits býður upp á. Það sérstaka við þessa vinnustofu er að hún stendur sjálfstætt og veitir þátttakendum skýra og persónulega stefnu í öllum mikilvægum lífsþáttum. Í skoðanakönnun meðal fyrrverandi þátttakenda kom fram að þetta væri sú vinnustofa sem fólk vildi helst mæla með fyrir vini og vandamenn sem eru ekki tilbúnir í lengri þjálfun. Þátttökugjaldið fer óskert í að styrkja barna- og ungmennastarf Aþenu í Efra-Breiðholti (111 Reykjavík).
Upplýsingar um námskeiðið:
Dagsetningar: 30. júní – 3. júlí 2025 (mánudagur–fimmtudagur)
Tími: 18:00–21:00
Staður: Skeifan 19, 4. hæð
Þjálfari: Brynjar Karl
Verð: 149.000 kr.
Vefsíða: www.keyhabits.is/kynning
Takmarkaður fjöldi, fyrstir til að skrá sig tryggja sæti.
Námskeiðsyfirlit:
Dagur 1 (30.júní 18:00–21:00): Kynning á Key Habits Hugmyndafræði – „Two Dimensions of Personal Development“
Kynnt er hvernig Key Habits þjálfun er uppbyggð. Þátttakendur fá innsýn í mikilvægi jafnvægis í lífinu, hvernig blindir blettir myndast, hvers vegna góð ráðgjöf skortir oft hjá fólki sem hefur náð tökum á starfi sínu, og hvernig komast má yfir tregðu til frekari þróunar. Rætt verður um hvernig færni okkar getur þróast úr því að vera góð í starfi í að verða ógleymanlegur þjónandi leiðtogi.
Dagur 2 (1.júlí 18:00–21:00): Viðmið sem grunnur að gildismati – „Gleraugun fjögur“
Kynnt eru fjögur „gleraugu“ sem móta hvernig við sjáum heiminn og hvernig það hefur áhrif á okkur. Þátttakendur læra mikilvægi þess að draga ekki ályktanir eða dæma aðra áður en hlutir eru skoðaðir hlutlaust. Æfingar verða gerðar til að þjálfa þessa færni.
Dagur 3: (2.júlí 18:00–21:00): Gildismat sem undirbúningur fyrir persónulega stefnuyfirlýsingu
Viðmiðin frá fyrri dögum eru sett undir smásjá til að kanna hvað er raunverulega rétt og æskilegt fyrir hvern einstakling. Gildismats vinna einstaklinga, hópa og samfélags eru skoðuð með tilliti til hegðunar, og þátttakendur læra að vera eigin bestu ráðgjafar og gagnrýnendur. Kenndar verða leiðir til þess að finna, skerpa, sannreyna, breyta og skilgreina gildi hvers og eins.
Dagur 4: (3.júlí 18:00–21:00): Gerð Persónulegrar Stefnuyfirlýsingar
Persónuleg stefnuyfirlýsing er sá heiðarlegi samningur sem einstaklingurinn gerir við sjálfan sig. Þetta er að margra mati lykiluppgötvun námskeiðsins, enda oft fyrsti slíki samningur sem fólk gerir við sjálft sig. Rætt verður um hvernig vinna við stefnuyfirlýsingu getur stutt fólk og sparað mikla orku í framtíðarsamskiptum og samningagerð.
Dagur 5: (Nokkrar dagsetningar eftir miðjan ágúst): Gagntími
Þegar s*x vikur eru liðnar verður þátttakendum boðið að koma aftur og hitta leiðbeinendur til að ræða hvernig vinnan hefur þróast og hvernig almennt hefur gengið. Nokkrar dagsetningar verða í boði sem kynntar verða á síðasta degi námskeiðsins og þátttakendur geta valið úr.
Fyrir hvern er námskeiðið?
Þó að Key Habits sé vinsælt meðal stjórnenda og leiðtoga er námskeiðið opið öllum sem vilja efla sig í starfi, undirbúa sig fyrir leiðtogahlutverk eða styrkja persónulegt líf. Sérstaklega hefur komið fram í könnunum að námskeiðið hefur reynst vel foreldrum (85% telja þjálfunina hafa aukið valdeflingu í uppeldishlutverkinu).
Skráning í gegnum e-mailið [email protected] eða í síma 511-4488 nánari upplýsingar gefur Brynjar Karl í síma 862-4714. Hægt er að greiða með geiðslukorti eða leggja inn á reikning 0301-26-011950 kt.620508-1950.foreldrum (85% telja þjálfunina hafa aukið valdeflingu í uppeldishlutverkinu).
Skráning í gegnum e-mailið [email protected] eða í síma 511-4488 nánari upplýsingar gefur Brynjar Karl í síma 862-4714. Hægt er að greiða með geiðslukorti eða leggja inn á reikning 0301-26-011950 kt.620508-1950.