01/11/2024
Scooby gang👻 frá stjórn Hvarfs🎃
Hvarf er nemendafélag efnafræði- og efnaverkfræðinema við Háskóla Íslands!
01/11/2024
Scooby gang👻 frá stjórn Hvarfs🎃
🌟 Spennandi starf fyrir áhugasama! 🌟
Efnagreining ehf á Akranesi óskar eftir að ráða starfsmann í þjálfun/vinnu við efnagreiningar. Þetta er fjölskyldufyrirtæki, rekið af okkur hjónum, Elísabeti Axelsdóttir og Arngrími Thorlacius. Elísabet rekur fyrirtækið og annast margvíslegar greiningar, en Arngrímur (Dr. Scient. með efnagreiningu sem sérsvið) er faglega ábyrgur, sér um þróunarstarf og sérhæfðar greiningar. Aðrir starfsmenn eru enn sem komið aðeins í hlutastarfi. Umsvifin hafa verið að aukast jafnt og þétt og við sjáum fram á að þurfa fastan starfsmann með okkur og í staðinn fyrir okkur þegar fram líða stundir.
Þar sem ekki er boðið upp á mastersnám í efnagreiningu hér heima, myndum við vilja ráða einstakling með BSc-próf í efnafræði eða efnaverkfræði, sem fengi í framhaldinu sérhæfingu hjá okkur. Það kemur jafnframt vel til greina að viðkomandi tæki MSc-gráðu á sviði efnagreininga samhliða þessari vinnu, með rannsóknarverkefni hjá okkur á Akranesi.
"Starfslýsingin" hér að ofan er heldur óljós, en ef einhver nemandi við H.Í., sem hefur lokið, er að ljúka eða er langt kominn með B.Sc. nám í efnafræði/efnaverkfræði og sem hefur áhuga á að fræðast um þennan möguleika þá værum við þakklát fyrir að viðkomandi hefði beint samband við okkur:
Elísabet Axelsdóttur s. 6612629 eða [email protected]
Góðan daginn,
Nemendafélagið er með nemendur innan sinna raða sem bjóða upp á einkatíma í almennri efnafræði, lífrænni efnafræði og fleiri tengdum fögum.
Endilega hafið samband í einkaskilaboðum eða sendið tölvupóst á [email protected] ef þetta er þjónusta sem þið viljið nýta ykkur! 😊
Bestu kveðjur,
Stjórn Hvarfs
18/11/2022
Er framtíð þín í líftækni?
Skapaðu þína eigin framtíð - starfsþjálfun fyrir framtíðarstarf í gæðarannsóknardeild Alvotech
Spennandi starfstækifæri fyrir áhugasama, endilega sækið um! Umsóknarfrestur er 21. nóvember 🤩🥳
Jobs at Alvotech Be part of Alvotech's mission to setting a new standard in biosimilars. Explore exciting new career opportunities at Alvotech locations worldwide.
Góðan daginn 😀
Hvarf nemendafélag hefur nemendur innan sinna raða sem bjóða upp á einkatíma í almennri efnafræði, lífrænni efnafræði og fleiri tengdum fögum.
Vinsamlegast hafið samband í einkaskilaboðum ef þetta er þjónusta sem þið viljið nýta ykkur.
Bestu kveðjur,
Stjórn Hvarfs
🤩 Spennandi starf fyrir áhugasama! 🤩
Mjólkursamsalan leitar að starfsmanni til starfa á rannsóknarstofu fyrirtækisins að Bitruhálsi 1. Um er að ræða 100% framtíðarstarf við efna- og gæðamælingar á mjólk ásamt PCR örverugreiningum á mjólkursýnum. Rannsóknastofa MS er í nýrri aðstöðu með nýjum fullkomnum tækjabúnaði ásamt góðri starfmannaaðstöðu. Áhugasamir geta haft samband við [email protected] fyrir nánari upplýsingar.
🌟 Spennandi starfstækifæri hjá Lýsi! 🌟
Lýsi leitar að starfsmanni í mælingar á rannsóknastofu gæðaeftirlits í eins árs afleysingar.
Tilvalið fyrir nýútskrifaða raungreinanema.
Áhugasamir hafi samband við Láru Björgvinsdóttur, yfirmann gæðaeftirlits, [email protected].
✨ 🧑🔬 Spennandi sumarstarf fyrir áhugasama! 👩🔬 ✨
Summer job in protein design and engineering
The research group led by Dr. Pétur O. Heiðarsson (heidarsson.hi.is) seeks a summer employee to work on a project to design a supercharged transcription factor for use in cell reprogramming. The project is funded by the Rannís Student Innovation Fund (Nýsköpunarsjóður Námsmanna) from June-August 2022, and the candidate therefore has to be enrolled in studies or recently graduated.
We seek a motivated and creative student with a background in biochemistry, molecular biology, cell biology, or chemistry. Experience with biochemical labwork and protein science is an advantage.
To apply or for more information, please contact Dr. Pétur O. Heiðarsson, [email protected].
👩🔬Spennandi tækifærir hjá Kerecis!👨🔬