15/05/2026
Viðtal var tekið við nokkra skipuleggjendur vegna viðburðarins Menning og ferðaþjónusta á Akureyri fyrir þáttinn Víðsvegar.
Víðsvegar - Spilari RÚV
Í dag lítum við inn á opna vinnustofu sem var haldin á Akureyri í byrjun maí og bar titilinn „Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi“. Markmiðið með viðburðinum var að styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónstuaðila á svæðinu.Vinnustofan var á vegum Saf...
09/05/2026
Við þökkum þátttakendum kærlega fyrir líflegar og upplýsandi umræður og fyrir að gefa sér tíma til að mæta. Glærur frá Hjalta og PDF af viðburði verða settar inn eftir helgi. Í millitíðinni koma hér myndir frá deginum.
07/05/2026
Viðburðurinn Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi var haldinn í dag á Akureyri. Safnafræði við Háskóla Íslands, Síldarminjasafn Íslands, RMF, SAF og FÍSOS þakka þeim sem mættu kærlega fyrir þátttökuna og fyrir líflegar og mikilvægar umræður. Næsti viðburður verður á morgun á Egilsstöðum, og tveir viðburðir verða svo í haust, í Reykjavík og á Stykkishólmi. Loks verður stafræn kynning í byrjun næsta árs þegar niðurstöður liggja fyrir.