Íþróttafræðingar vinna fjölbreytt störf, hér eru bara nokkur dæmi!
Umsóknarfrestur er til 5. júní.
Íþróttafræði HR
Upplýsinga- og samskiptasíða íþróttafræðideildar HR Íþróttafræði til BSc gráðu
MSc í íþróttavísindum og heilsuþjálfun
MEd í heilsuþjálfun og kennslu
03/06/2026
Íþróttakennarar úr Engjaskóla, Sjálandsskóla og Rimaskóla hlutu viðurkenningu íþróttafræðideildar HR fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Viðurkenningin fór fram í Háskólanum í Reykjavík 28. maí sl. í annað sinn og mun verða endurtekið að ári.
03/06/2026
Hér er nýjasta hlaðvarpsútspilið okkar. Það er þáttur um nálgun Tryggva Jóhanns Heimissonar íþróttakennara í Hrafnagilsskóla við námsmat í skólaíþróttum. Tryggvi fékk viðurkenningu íþróttafræðideildar fyrir umsóknina sína í fyrra. Í þættinum er komið inn á margt fleira er við kemur íþróttakennslu og áskorunum í þeim efnum. Endilega leggið við hlustir :)
26/05/2026
Við megum til með að hvetja íþróttafræðinga til mætingar á þennan fund hér sem fer fram kl. 17-19 í Borgartúni 27 - Visku. https://www.viska.is/um-visku/i-frettir/opinn-fundur-fyrir-ithrottafraedinga
Opinn fundur fyrir íþróttafræðinga - Viska - stéttarfélag Opinn fundur félagsnets íþróttafræðinga í fundarsölum Visku – stéttarfélags, Borgartúni 27, þriðjudaginn 26. maí frá kl. 17:00 til 19:00.
21/05/2026
Hér er áhugaverð umfjöllun um Jessicu Bartley, en hún kom og kenndi hjá okkur í námskeiðinu Klínísk íþróttasálfræði en það námskeið tilheyrir meistaranáminu og örnáminu í íþróttasálfræði.
08/05/2026
Í meistaranámsáfanganum (M.Ed.) Námsefnisgerð I og II vinna nemendur að stóru lokaverkefni allan veturinn. Verkefnin eru fjölbreytt og það verður spennandi að draga frá tjöldin á opnum kynningardegi þann 28. maí nk.
Hér má sjá Kjartan Stefánsson taka upp kynningarmyndskeið fyrir verkefnið sitt í myndveri. Skemmtileg og krefjandi reynsla að lesa handrit í myndavélina.
07/05/2026
KKÍ og íþróttafræði HR auglýsa kostaða meistaranámsstöðu
KOSTUÐ MEISTARANÁMSSTAÐA
Umsóknarfrestur er til 22. maí 2026
Laus er til umsóknar námsstaða í meistaranámi í íþróttavísindum og þjálfun (MSc) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík.
Staðan eru kostuð af Háskólanum í Reykjavík (HR) og Körfuknattleikssambandi Íslands (KKÍ) og mun nemandi ekki greiða skólagjöld meðan á námstíma stendur. Umsóknarfrestur er til 22. maí og mun nemandi hefja nám strax á haustönn, samkæmt skóladagatali.
Skuldbindingar nemanda eru eftirfarandi:
- Nemandi skuldbindur sig til að gera meistaraverkefni sem tengist landsliðum Íslands í körfuknattleik. Nemandi skrifar lokaritgerð í nánu samstarfi við leiðbeinanda (akademískan starfsmann HR), þjálfarateymi landsliða og KKÍ. Nemandi skuldbindur sig jafnframt til þess að kynna niðurstöður meistaraverkefnisins samkvæmt óskum KKÍ.
- Nemandi skuldbindur sig til þess að sjá um mælingar á yngri landsliðum í körfuknattleik undir handleiðslu þjálfarateymis landsliðanna og kennara íþróttafræðisviðs HR á meðan námstíma stendur.
- KKÍ og þjálfarateymi þeirra geta óskað eftir því að nemandi sjái um ráðgjöf er varðar líkamlega þjálfun fyrir leikmenn landsliða Íslands. Slík ráðgjöf yrði alltaf í nánu samstarfi við þjálfarateymi og undir handleiðslu kennara íþróttafræðideildar HR.
- Nemandi leitast eftir því að vinna eins mörg verkefni á námstíma og mögulegt er í tengslum við landsliðin og veita þjálfarateymi aðgang að verkefnum sínum. Dæmi um slíkt væri að gera frammistöðugreiningu á A-landsliðið kvenna í námskeiðinu Frammistöðugreining í íþróttum. Þá er nemandi skuldbundinn til að ljúka 10 ECTS eininga verknámi hjá KKÍ sem hluta af námi sínu.
- Nemandi skuldbindur sig til að halda eðlilegri námsframvindu og mæta samviskusamlega í kennslustundir ásamt því að taka þátt í kynningarstarfi á vegum HR sé þess óskað. Dæmi um slíkt væri viðvera á Háskóladeginum.
Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast á tölvupósti til:
[email protected] og [email protected].
05/05/2026
Opið til 8. maí fyrir tilnefningar!
Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík auglýsir enn eftir umsóknum og tilnefningum fyrir úfærslu námsmats í skólaíþróttum. (sjá póst fyrir neðan). Við höfum framlengt frest til 8. maí.
Þetta er tilvalinn vettgangur fyrir skólana og íþróttakennara að draga fram það jákvæða og góða sem á sér stað í íþróttakennslu í grunnskólum og virkja fyrirmyndir innan starfsins.
Allar frekari upplýsingar má sjá í pósti hér að neðan og ef það eru einhverjar vangaveltur ekki hika við að spurja hér í pósti eða á [email protected].
með bestu kveðju
SÞ
ps. í athugasemd er hlekkur á þáttinn með Sillu sem fékk viðurkenningu í fyrra
19/01/2026
Daði okkar með frábæra grein! Minnum líka á RIG ráðstefnuna sem verður á miðvikudaginn. Þar vera heimsklassa fyrirlesarar.
Vöruvæðing íþróttanna og RIG ráðstefnan um snemmbundna afreksvæðingu - Vísir Það er ekki ofsögum sagt að íslenskt íþróttalíf stendur á tímamótum. Sama hvort litið er til stjórnunnar, sjálfboðaliðastarfs, yngri flokka eða afreksstarfs þá eru íslensku íþróttafélögin eins og við þekkjum þau í núverandi mynd undir pressu úr mörgum áttum.
Ísland spilar sinn fyrsta leik í EM í handbolta á morgun, föstudag og Peter O‘Donoghue, prófessors við íþróttafræðideild er auðvitað búinn að spá í spilin. Vísir tók stöðuna á Peter. Sjá hlekk í athugasemd.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Telephone
Website
Address
Menntavegi 1
Reykjavík
101