Háskóli unga fólksins (HUF)

Háskóli unga fólksins (HUF)

Share

Háskóli unga fólksins er fyrir fróðleiksfúsa 12-14 ára krakka. Nemendur sækja stutt námskeið og þemadag í tæpa viku hjá fræði-og vísindamönnum Háskólans. bekk.

Háskóli unga fólksins 2024 verður haldinn dagana 10-14. júní á háskólasvæðinu. Skráning fer eingöngu fram rafrænt á heimasíðu skólans www.ung.hi.is og verður opnað fyrir skráningar um miðjan maí mánuð. Við skráningu velur nemandi stundatöflu og er hægt að velja milli möguleika sem bjóða námskeið af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands í félagsvísindum, hugvísindum, menntavísindum, heilbrigðisvísindum

Vísindaævintýrinu lauk með glæsilegri lokahátíð í blíðskaparveðri | Háskóli unga fólksins 12/06/2026

Í dag kvöddum við ríflega 230 frábæra nemendur Háskóla unga fólksins! Framtíðin er svo sannarlega björt með svona öflugu og áhugasömu ungu fólki. Hjartans þakkir fyrir samveruna! ❤️ Myndir fylgja fréttinni hér fyrir neðan.

Vísindaævintýrinu lauk með glæsilegri lokahátíð í blíðskaparveðri | Háskóli unga fólksins Síðasti dagurinn í Háskóla unga fólksins var einstaklega fjölbreyttur, þar sem nemendur fengu að kynnast enn fleiri námskeiðum og fræðigreinum. Nemendur sóttu meðal annars námskeið í afbrotafræði, leiklist, íslensku táknmáli og skurðlækningum. Þá spreyttu þau sig einnig ....

Líf og gleði við setningu Háskóla unga fólksins 2026 | Háskóli unga fólksins 10/06/2026

Háskóli unga fólksins 2026 hófst með glæsibrag!
Í dag mættu 230 nemendur á aldrinum 12–14 ára í Sögu þar sem Háskóli unga fólksins var formlega settur. Að setningu lokinni tóku við fjölbreytt og spennandi þemu þar sem nemendur fengu að kafa ofan í ólík fræði og kynnast háskólasamfélaginu á lifandi hátt.
Í meðfylgjandi frétt má sjá myndir frá deginum og stemninguna sem ríkti.

Háskóli unga fólksins (HUF) Háskóli Íslands

Líf og gleði við setningu Háskóla unga fólksins 2026 | Háskóli unga fólksins Háskóli unga fólksins 2026 var formlega settur í dag þegar 230 spenntir, forvitnir og glaðbeittir nemendur á aldrinum 12–14 ára mættu til leiks í Háskóla Íslands. Mikil stemning ríkti þegar nemendur komu, hittu nýja vini og fengu afhent námsgögn áður en dagskráin hófst af kra...

Á þriðja hundrað nemendur í Háskóla unga fólksins 09/06/2026

Okkar árlegi Háskóli unga fólksins við Háskóli Íslands fer að þessu sinni að mestu fram í nýjum húsakynnum Háskólans í Sögu. Áhersla er lögð á lifandi og skemmtilega fræðslu og viðfangsefni og á milli kennslustunda er boðið upp á útileiki og spil.

Á þriðja hundrað nemendur í Háskóla unga fólksins Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Yfir 230 krakkar tilbúin í vísindaævintýri. Lokað fyrir skráningar í Háskóla unga fólksins! | Háskóli unga fólksins 08/06/2026

Við erum ótrúlega spennt að taka á móti um 230 nemendum sem fylla Háskóla Íslands af lífi og fjöri 10-12. júní! Lokað hefur verið fyrir skráningar.

Yfir 230 krakkar tilbúin í vísindaævintýri. Lokað fyrir skráningar í Háskóla unga fólksins! | Háskóli unga fólksins Skráningu er nú formlega lokið í Háskóla unga fólksins 2026. Viðtökurnar hafa verið frábærar, og ríflega 230 hressir krakkar á aldrinum 12–14 ára eru skráðir til leiks og tilbúnir að kafa ofan í leyndardóma vísindanna dagana 10.–12. júní. Háskóli unga fólksins fer nú ...

Skráningar | Háskóli unga fólksins 07/06/2026

NIÐURTALNINGIN ER HAFIN! Á morgun, mánudaginn 8. júní kl. 9:00, verður LOKAÐ fyrir skráningar í Háskóla unga fólksins 2026!

Ertu að missa af? Það eru bókstaflega örfá sæti eftir í stundatöflum B, E, F, L, M og N, stútfullum af lifandi tilraunum, skapandi smiðjum og verklegu vísindafjöri.

Nú er síðasta tækifærið til að skrá 12–14 ára ungmenni (fædd 2012, 2013 og 2014) í alvöru vísindaævintýri í sumar. Þetta verða þrír ógleymanlegir dagar, 10.–12. júní!

* Miðvikudagur 10. júní: Skólasetning kl.13 og þema til kl.16.
* Fimmtudagur og föstudagur: Vísindaupplifun frá kl. 9:00–12:30.
* Föstudagur (lokadagur): Lokahátíð og grillveisla strax í kjölfarið frá kl. 12:30–13:30! Uppblásin leiktæki, pylsur og fjör.

Ekki sofa á þessu því klukkan tifar!

👉 Skráning fer fram hér: https://ung.hi.is/is/skraningar

Háskóli unga fólksins (HUF)

Skráningar | Háskóli unga fólksins

Skráningar | Háskóli unga fólksins 05/06/2026

Um helgina er allra síðasti séns að skrá sig í Háskóla unga fólksins!
Frábær 12–14 ára ungmenni munu takast á við spennandi áskoranir, læra eitthvað alveg nýtt og framandi og kynnast lífinu í HÍ.
Kennslan fer fram 10.–12. júní. Þrír dagar af skemmtilegri dagskrá, vísindaupplifun og nýrri reynslu, þar sem ríkir forvitni, fræði og gleði!
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri! 👉 Skráning fer fram hér

Háskóli unga fólksins (HUF)

Skráningar | Háskóli unga fólksins

STEM og spagettí þemadagur | Háskóli unga fólksins 04/06/2026

Langar þig að prófa að búa til fílatannkrem, kanna leyndardóma ljóss og hljóðs og komast að því hversu hár spagettíturn getur orðið?
Komdu og upplifðu þetta allt í Háskóla unga fólksins! Síðustu sætin eru að fyllast í stundatöflur F og L, sem kafa einmitt ofan í þessar áhugaverðu pælingar og margt fleira.

Þrír dagar, 10.–12. júní, stútfullir af tilraunum, uppgötvunum og vá-augnablikum! Einnig eru örfá sæti laus í stundatöflur B, E, M og N. Ekki missa af – síðustu dagarnir til að skrá sig eru núna í fullum gangi. 👉 https://ung.hi.is/is/skraningar

STEM og spagettí þemadagur | Háskóli unga fólksins Í þessu þema fá nemendur tækifæri til að öðlast innsýn í undraheim svokallaðra STEM-greina. Sérstök áhersla verður lögð á eðlisfræði, verkfræði og efnafræði. Eðlisfræði ljóss og hljóðs. Hver er munurinn á hljóði og ljósi og af hverju getum við heyrt manneskju se...

Námskeið | Háskóli unga fólksins 03/06/2026

Síðasta skráningarvikan og stutt í síðasta séns!

Háskóli unga fólksins nálgast óðfluga og dagarnir líða hratt. Ef þú vilt tryggja þínu ungmenni (12–14 ára) ógleymanlega vísindaupplifun 10-12 júní, þá er ekki eftir neinu að bíða.

Við eigum enn örfá laus pláss í nokkar stundatöflur sem státa meðal annars af þessum námskeiðum:

Endurlífgun: Við förum yfir þessi lífsnauðsynlegu og mikilvægu endurlífgunar atriði á skemmtilegan hátt. Engum mun leiðast!

Íslenskt táknmál: Vissir þú að það er hægt að rappa á táknmáli? Við lærum undirstöðuatriðin í táknmáli.

Félagsráðgjöf og hugarstyrkur: Frábært námskeið til að styrkja sjálfsmyndina, æfa sig í að tjá tilfinningar og tengjast sjálfum sér og öðrum.

Lyfjafræði: Kíktu inn í heim lyfjafræðinnar og prófaðu vinnubrögðin við að framleiða alvöru lyfjaform!

Tölvutækni og forritun: Farið yfir grunnatriðin þar sem þátttakendur byggja upp og þróa sín eigin forrit í gegnum fjörugar þrautir.

Tré, te og tálgun: Alvöru útivistarfjör! Við tálgum í tré, kveikjum varðeld, bökum brauð og lærum um náttúruna með skapandi hætti.

Gervigreindargrúsk – Getur þú unnið tölvuna? Við kíkjum „undir húddið“ á gervigreindinni. Hér þarf enga forritunarkunnáttu, bara forvitni, hugsun og spilagleði!

Eðlisfræði vatnseldflauga: Hannaðu og skjóttu þinni eigin vatnseldflaug í loftið í skemmtilegum vísindatilraunum!

Nánar um námskeiðin hér 👉 https://ung.hi.is/is/namskeid

Tryggðu pláss strax í dag áður en allar töflur fyllast! 👇

🔗 Skráning og nánari upplýsingar hér: https://ung.hi.is/is/skraningar

Háskóli unga fólksins (HUF)

Námskeið | Háskóli unga fólksins Hér fyrir neðan má sjá þau námskeið sem kennd verða í Háskóla unga fólksins dagana 10.–12. júní 2026. Dagskráin er fjölbreytt og gefur þátttakendum kost á að kynnast alls konar ólíkum vísindum á skemmtilegan hátt. Smellið á heiti námskeiðanna til að lesa nánar um þa...

Námskeið | Háskóli unga fólksins 01/06/2026

Síðasta skráningarvikan er runnin upp og allra síðustu forvöð að skrá 12–14 ára krakka í spennandi vísindaupplifun í Háskóla unga fólksins.
Enn eru fáein laus sæti í stundatöflum B, E, F, L, M og N. Fyrstur kemur, fyrstur fær!
Í boði eru fjölbreytt og skemmtileg þemu, námskeið og smiðjur, meðal annars:
• Eðlisfræðilegur þemadagur í Skuggsjá sem er tilraunastofa í
stjarneðlisfræði
• Gervigreindarþema með heimsókn í CCP Games og Vísindagarða
• STEM- og spagettíþema með eðlisfræði, verkfræði og efnafræði í forgrunni
• Tungumálaþema með innsýn í framandi menningarheima og undirstöðuatriði í frönsku, kóresku, spænsku og japönsku
• Afbrotafræði, þar sem skoðaðar eru skýringar á afbrotahegðun og hlutverk refsinga, lögreglu og fangelsa
• Sjúkraþjálfun á verklegum nótum
• Valslöngvusmíði og skotkeppni þar sem nemendur smíða sína eigin og kanna hver kastar lengst
• Íþrótta- og heilsufræði með áhugaverðum mælingum og kannað hvernig líkaminn bregst við
• Kínversk fræði þar sem farið er í menningarheiminn og grunnatriði í mandarín
…og margt fleira!

Kannaðu málið hér 👉 https://ung.hi.is/is/namskeid

Háskóli unga fólksins (HUF)

Námskeið | Háskóli unga fólksins Hér fyrir neðan má sjá þau námskeið sem kennd verða í Háskóla unga fólksins dagana 10.–12. júní 2026. Dagskráin er fjölbreytt og gefur þátttakendum kost á að kynnast alls konar ólíkum vísindum á skemmtilegan hátt. Smellið á heiti námskeiðanna til að lesa nánar um þa...

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Sæmundargata 2
Reykjavík
101