01/01/2020
Okkur tókst að breyta bjórmenningunni og þá er kominn tími fyrir breyttar áherslur. Eftir þrotlaust frumkvöðlastarf í heilan áratug, sem hefur skilað fleiri en 30 þúsund útskrifuðum bjórsérfræðingum, mun Bjórskólinn frá og með áramótum eingöngu sinna æðri menntun fyrir fagaðila í veitingageiranum. Markmiðið er að efla alla ráðgjöf og tryggja bestu mögulegu framreiðslu á bjór fyrir neytendur - ekki síst fyrir alla sérfræðingana sem við höfum búið til!
Ef þú átt gilt og ónotað gjafabréf frá 2019 á námskeið skaltu senda okkur póst á [email protected] til að fá það endurgreitt.