Orkustofnun vill ráða nema í upplýsingafræði í sumarafleysingar 2019 – 100% starf
Um er að ræða afleysingar í stoðþjónustu í viðveruskyldum stöðum bókasafns og skjalasafns, í orlofi starfsmanna.
Verkefnin á bókasafni felast í upplýsingamiðlun og -öflun, og margvíslegri upplýsingaþjónustu við starfsmenn í Orkugarði og nemendur Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna.
Vinna á skjalasafni er við frágang skjalasafns og önnur tilfallandi verkefni.
Við leitum að sjálfstæðum og metnaðargjörnum einstaklingi, sem er tilbúinn að takast á við síbreytileg verkefni í upplýsingasamfélaginu. Frumkvæði og þjónustulund eru æskilegir eiginleikar.
Sendið umsókn með stuttri náms- og starfsferilslýsingu á netfang [email protected]
Katalogos
Katalogos er nemendafélag nemenda í bókasafns- og upplýsingafræði í Háskóla Íslands
Heil og sæl. Skjalastjórn Arion banka er að leita að tveimur sumarstarfsmönnum. Mögulegt er einnig hlutastarf næsta vetur. Hægt er að sækja um hér undir liðnum Sumarstörf 2018. https://www.arionbanki.is/…/storf-hja-b…/auglyst-laus-storf/ Getið líka haft samband við mig á netfangið [email protected]
Störf í boði | Arion banki | Kynntu þér laus störf í boði Störf í boði hjá Arion banka. Starfsfólk Arion banka er kjarninn í starfsemi bankans og kappkostar bankinn að búa vel að starfsfólki sínu. Kynntu þér laus störf í boði
18/08/2016
Life Behind the Stacks: The Secret Apartments of New York Libraries | 6sqft Inside the secret apartments of New York's libraries.
Sæl kæru samnemendur,
Okkur langar til að kynna nýja stjórn sem var kosin á félagsfundinum í gær (þriðjudeginum) og hún er svona:
Formaður: Helga Kristín Guðlaugsdóttir
Varaformaður/ritari: Jóhann Heiðar Árnason
Námsbrautarfulltrúi/vefstjóri: Kristín Friðrikka Jónsdóttir
Námsbrautarfulltrúi/vefstjóri: Solveig Karlsdóttir
Gjaldkeri: Þorbjörg Bergmann
Við hlökkum til að fá að starfa fyrir ykkar hönd í vetur og við erum núna að undirbúa vetrardagskrá með skemmtilegum vísindaferðum, jólaglöggi og annað skemmtilegt
Kær kveðja,
Katalogos.
Ert þú að útskrifast úr Bókasafns- og upplýsingafræði á árinu (feb, júní eða okt)? Eða bara Upplýsingafræði? Eða ertu jafnvel búin að útskrifast áður? Þá er þetta kvöldverður fyrir þig ;) Við ætlum að hittast á skemmtilegum veitingastað 16. júní nk (staðsetning kemur síðar) til að ræða skráningu, sögu lyklunar á Ísland, Dewey-flokka borðbúnað og mögulega að borða góðan mat. Til þess að við getum pantað borð fyrir okkur þurfum við að hafa hugmynd um hversu margir ætla að koma með og því biðjum við um að fólk skrái sig með því að senda póst á [email protected] fyrir kl 14 mánudaginn 8. júní. Vonumst til að sjá sem flesta.
20/11/2014
"Byggjum, tengjum og tökum þátt"
27. nóvember kl. 13:00-17:00 á Grand hóteli
Dagur upplýsingatækninnar (UT-dagurinn) hefur verið haldinn árlega frá
árinu 2006 af stjórnvöldum. Tilgangur dagsins er að fjalla um það sem er
efst á baugi hverju sinni hjá stjórnsýslunni. UT-dagurinn 2014 er
tileinkaður þeim verkefnum sem eru í gangi skv. upplýsingatæknistefnu
stjórnvalda og eru á framkvæmdastigi.
Dagskrá:
13:00-13:15 Setningarávarp:
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra
13:15-13:35 Opin og gegnsæ stjórnsýsla:
Opin gögn - nýsköpun og aukið gegnsæi
Tryggvi Björgvinsson, verkefnisstjóri, Open
Knowledge
13:35-14:15 Skipulag, öryggi og samvirkni:
Landsarkitektúr fyrir opinber kerfi
Hermann Ólason, framkvæmdastjóri
upplýsingatæknisviðs, Tryggingastofnunar
Net- og upplýsingaöryggi - hvað eru stjórnvöld að
gera í málinu?
Sigurður Emil Pálsson, sérfræðingur í
innanríkisráðuneyti
14:15-14:35 Hagræðing, skilvirkni og sjálfbærni:
Rafrænir reikningar um áramót
- mikilvægt skref til hagræðingar með rafrænum
viðskiptum
Hjörtur Þorgilsson, formaður Icepro
14:35-15:00 Kaffihlé
15:00-15:40 Lýðræði:
Virkir og gegnsæir samráðsferlar á netinu
Arnar Pálsson, ráðgjafi Capacent
Öruggar rafrænar undirskriftasafnanir
Halla Björg Baldursdóttir, sviðsstjóri hjá
Þjóðskrá Íslands
15:40-16:20 Þjónusta:
Sjúklingagáttin Vera komin í loftið
Ingi Steinar Ingason, verkefnisstjóri
og Guðrún Auður Harðardóttir, verkefnisstjóri
hjá Embætti Landlæknis
Rafræn fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra
Jóhannes Jónsson, sviðsstjóri þróunarsviðs
ríkisskattstjóra
16:20-16:40 Fjarskipti:
Árangur í fjarskiptum
Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður stjórnar
Fjarskiptasjóðs
Ráðstefnustjóri: Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytissstjóri í
innanríkisráðuneyti
Verð fyrir dagskrá UT-dagsins eftir hádegið:
Félagsmenn Ský: 10.500 kr.
Utanfélagsmenn: 15.900 kr.
Gestum UT-dagsins býðst að taka þátt í fræðslufundi á undan UT-deginum um
upplýsingaöryggi á opinberjum vefjum en gestir þurfa að skrá sig
sérstaklega á hann um leið og skráning á UT-daginn fer fram.
"Upplýsingaöryggi og opinberir vefir"
Fræðslufundur fyrir vefstjóra og aðra sem koma að þróun vefja
27. nóvember 2014, kl. 10:30-12:30 í Hvammi á Grand hóteli
Innanríkisráðuneytið stendur fyrir fræðslufundi í þeim tilgangi að efla
varnir opinberra vefja, ríkis og sveitarfélaga, gegn hvers kyns
tölvuárásum. Tölvuárásir eru stöðugt að aukast og eru nú orðnar alvarleg
ógn við fyrirtæki og opinbera aðila. Því er mikilvægt að þeir sem vinna
við opinbera vefi öðlist skilning á helstu áhættuþáttum og hvernig hægt sé
að bregðast við þeim.
Á fundinum verður fjallað, á einfaldan hátt, um öryggismál, hvað beri að
varast og hvernig hægt sé að auka öryggi vefja. Í vefhandbókinni sem er á
vefnum ut.is er ítarlegt efni um öryggi opinberra vefja og
verður stuðst við það efni.
Meðal þess sem verður tekið fyrir er:
- Hvaða öryggisþætti þarf að hafa í huga við val á vefumsjónarkerfum,
hýsingar- og þjónustuaðilum.
- Stjórnun aðgangs
- Öryggisafritun
- Mikilvægi öryggisprófana á veflausnum
Einnig verður farið yfir sjálfsmat varðandi öryggismál sem vefstjórar geta
framkvæmt sjálfir og fyrirhugaðar mælingar á öryggi opinberra vefja í
næstu könnun, Hvað er spunnið í opinbera vefi 2015? Hvatt er til spurninga
og umræðna á fundinum.
Leiðbeinandi verður Svavar Ingi Hermannsson, sérfræðingur í tölvuöryggi
Fræðslufundurinn er án endurgjalds fyrir ráðstefngesti á UT-degi en gestir
þurfa að skrá sig fyrirfram á fundinn og UT-daginn.
Ef einungis er mætt á fræðslufundinn þarf að greiða inná hann:
Verð fyrir félagsmenn Ský: 5.500 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn: 8.900 kr.
Skráningarform http://www.sky.is/index.php/skraning
UT - vefurinn - Vefur um upplýsingatækni UT-vefurinn - vefur um upplýsingatækni. Efni er varðar upplýsingatækni á vegum hins opinbera gert aðgengilegt fyrir ríkisstofnanir, sveitarfélög, fyrirtæki og almenning í landinu.
Hérna er spennandi auglýsing um starf fyrir útskrifaða nema:
Evrópubankinn nemastaða í 3-6 mánuði með möguleikum á framlengingu.
http://www.ecb.europa.eu/…/jobs/html/vacancydetails.en.html
Kæru nemendur.
Athygli er vakin á uppskeruhátíð meistaranema í Upplýsingafræði við Háskóla Íslands sem haldið verður í stofu 300 á Háskólatorgi föstudaginn 7. nóvember 2014. Á málþinginu munu ústkriftarnemar kynna rannsóknir sínar.
Dagskráin er eftirfarandi:
9:00 – Setning
Dr. Ágústa Pálsdóttir prófessor og formaður námsbrautar í upplýsingafræði flytur ávarp. Kynning á útskriftarnemum og verkefnum þeirra.
Dr. Jóhanna Gunnlaugsdóttir prófessor í upplýsingafræði annast fundarstjórn.
9:20
· Ragna Steinarsdóttir. Bókasafnskerfi á breytingaskeiði : rannsókn á leitarhegðun fræðimanna í Gegni og Leitum
· Elísabet S. Valdimarsdóttir. Samvinna almenningsbókasafna og leikskóla.
· Fany Larota Catunta. En við erum bara venjulegt fólk. Viðhorf og þekking innflytjenda á varðveislu einkaskjalasafna
· Ella María Gunnarsdóttir. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.
Lokaorð og ráðstefnuslit. Dr. Jóhanna Gunnlaugsdóttir prófessor í upplýsingafræði.
25/10/2014
Perfect.
(Source: http://bit.ly/1w0sXwe.)
03/10/2014
http://io9.com/5671047/20-heroic-librarians-who-save-the-world
20 heroic librarians who save the world If information is power, then there's no hero mightier than a librarian. Librarians are superheroes, adventurers, explorers and invaluable guides to other heroes. Here are 20 amazing librarians who save the world every day!
Fyrsti viðburður annarinnar hefur verið stofnaður inn á lokaða Katalogos hópnum!
https://www.facebook.com/groups/358537040946251/
Þeir sem eru að fara í skólann í haust og eiga eftir að borga :
Í dag er síðasti dagur skráningartímabils í Háskóla Íslands og þeir sem greiða skrásetningargjaldið eftir daginn í dag þurfa að greiða aukalega 10.000 krónur, ekki lenda í því! :)
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Address
Háskóli Íslands
Reykjavík