Samsýning framhaldskólanna

Samsýning framhaldskólanna

Share

Á Samsýningu framhaldsskólanna gefst nemendum einstakt tækifæri til að sýna almenningi hugmyndir sínar, handverk, hönnun og nýsköpun - og efla tengslanet sitt.

NýMennt á Menntavísindasviði Háskóla Íslands heldur utan um Samsýningu framhaldsskólanna

19/12/2025

Samsýningin hjá NýMennt sendir sínar bestu óskir um gleðileg jól og farsældar á komandi ári. Þökkum ánægjulegt samstarf🥰

02/12/2025

Flott kynning á Samsýningunni í Landinn 30. nóv 2025 á Rúv. Sýningin er enn í fullum gangi og hvetjum við ykkur til að skoða hana. Opið til kl.18 út 4.des 2025.

Photos from Samsýning framhaldskólanna's post 30/11/2025

Opið til kl. 17 í dag í Sögu, hvetjum ykkur til að koma og skoða um 100 glæsilega verk nemenda frá tíu framhaldsskólum landsins.
1.-4. des verður opið frá kl.10-18.

Myndir frá opnun Samsýningarinnar 28. nóv 2025.

Photos from Samsýning framhaldskólanna's post 29/11/2025

Samsýning framhaldsskólanna er opin í Sögu til kl. 17:00 í dag, laugardag, og á morgun, sunnudag frá kl. 10:00-17:00. Verið öll hjartanlega velkomin. Um 100 glæsileg verk nemenda eru á sýningunni og mikil listræn fjölbreytni í þeim👌

Formleg opnun sýningarinnar fór fram í gær, sjá myndir☺️

28/11/2025

Innlit inn í Samsýninguna, allir velkomnir á opnunina í dag kl.13 ☺️

27/11/2025

Verið öll hjartanlega velkomin á formlega opnun Samsýningar framhaldsskólanna kl.13-14 á morgun, föst 28. nóv 2025.
Opið daglega til kl.18 og um helgar kl.10-17. Sýningin stendur til 4. des.

Samsýning framhaldsskólanna er samstarfsverkefni þeirra framhaldsskóla sem taka þátt, NýMennt við Háskóla Íslands, Mennta- og barnamálaráðuneytisins og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.

Photos from Samsýning framhaldskólanna's post 26/11/2025

Uppsetning fyrir Samsýningu framhaldsskólanna 2025 er í fullum gangi ☺️

29/09/2025

📢 Samsýning framhaldsskólanna verður haldin á ný 28. nóvember í Háskóla Íslands! 📢

Við hvetjum kennara og starfsfólk í framhaldsskólum landsins til að skrá skólann sinn og gefa nemendum tækifæri til að sýna almenningi nýsköpunarhugmyndir sínar, sama af hvaða tagi þær eru!💡

19/09/2025

Samsýning framhaldsskólanna verður haldin aftur þann 28. nóvember! 🌱

Eftir nokkurra ára hlé endurvekjum við hina vinsælu Samsýningu framhaldsskólanna. Á Samsýningunni gefst nemendum tækifæri til að sýna almenningi hugmyndir sínar - af hvaða gerð sem þær eru - og efla tengslanet sitt.

Við hvetjum alla framhaldsskóla landsins til að taka þátt og gefa nemendum sínum vettvang til að koma frumlegum hugmyndum og nýsköpun á framfæri ⭐️

Skráning fer fram á vefnum okkar, sjá hlekk í athugasemd 👇

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Saga/Hagatorg 1
Reykjavík
107