Spænskuskólinn Háblame (talaðu við mig) byrjaði sem tilraunaverkefni í spænskukennslu með það markmið að gera námið skemmtilegra, auðveldara og meira lifandi fyrir nemendur.j Í maí 2012 var fyrsta námskeiðið haldið á sveitakránni Kríunni, rétt fyrir utan Selfoss og tókst það vel að annað námskeið var haldið nokkru seinna. Þar sem viðtökurnar voru það góðar hjá okkar fyrstu nemendum, var ákveðið að prófa að halda námskeið í Reykjavík sem var auglýst í Fréttablaðinu og það námskeið seldist upp á sama degi og blaðið kom út, samtals 40 nemendur í fjórum byrjendakúrsum. Það var svo gaman að kenna nemendum okkar spænsku og sjá áhuga þeirra og gleði í tímum að það var ekki aftur snúið. Spænskuskólinn Háblame var kominn til að vera. Í upphafi var bara boðið uppá byrjendakúrs en þar sem nemendur okkar vildu læra meira og meira, þá var búið til framhaldsnámskeið, spænska tvö, svo þrjú, fjögur og fimm. Núna erum við með einkatima og líka nettíma. Það sem skólinn vildi líka bjóða uppá var sambland af tungumálakennslu, fræðslu um Spán og menningu landsins og ekki síður að kynna matarmenningu spánverja og hina frægu tapasrétti.