21/09/2026
Hvað verður í fóðri búfjár og eldisfisks – eða á disknum þínum – eftir 10 ár? Skordýr. Örþörungar. Einfrumuprótein?
Kannski hljómar það framandi í dag – en nýjar próteinuppsprettur eru þegar orðnar hluti af þróun framtíðar í matvæla- og fóðurframleiðslu.
Á nýju hálfs dags námskeiði Endurmenntunar LBHÍ, Nýprótein og skordýraræktun – framtíð matvæla og fóðurframleiðslu, skoðum við hvað er raunverulega að gerast á þessu spennandi sviði.
🐛 Geta skordýr orðið mikilvæg próteinuppspretta?
♻️ Getum við nýtt hliðarstrauma og vannýtt hráefni betur?
🌱 Hvaða hlutverki gegna nýprótein í sjálfbærari matvælakerfum?
🔬 Og hvernig verða nýjar hugmyndir að raunverulegum matvælum og fóðri?
Gestafyrirlesari er Sumaya Naser El Deen, rannsakandi hjá Wageningen University & Research, sem fjallar um skordýraræktun og nýtingu skordýrapróteins í alþjóðlegu samhengi.
Margrét Geirsdóttir, matvælafræðingur og verkefnastjóri hjá Matís, tekur síðan við og fjallar um rannsóknir og nýsköpun á sviði skordýra-, örþörunga- og einfrumupróteina – allt frá næringargildi og matvælaöryggi til nýtingar vannýttra hráefna.
Og svo förum við að skoða skordýrin 🐛 Í lok námskeiðsins fá þátttakendur að heimsækja skordýraræktunaraðstöðu Landbúnaðarháskóla Íslands og sjá hvernig ræktunin fer fram.
📅 21. október 2026 | kl. 13:00–16:30
📍 Keldnaholt, Reykjavík
💳 Verð: 25.000 kr.
⏰ Opið fyrir skráningar til 20. október
Námskeiðið hentar fólki úr landbúnaði, fiskeldi, matvæla- og fóðurframleiðslu, nýsköpun, rannsóknum og ráðgjöf – og öllum þeim sem eru einfaldlega forvitnir um hvaðan prótein framtíðarinnar munu koma
👉 Skráning og nánari upplýsingar:
https://endurmenntun.lbhi.is/nyprotein/