Menntaskólinn í Reykjavík

Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn í Reykjavík (often abbreviated MR; official name in English: Reykjavik Junior College) is the oldest gymnasium in Reykjavík, Iceland.

Menntaskólinn í Reykjavík (latína: Schola Reykjavicensis eða Schola Reykjavicana[1]) er framhaldsskóli í miðbæ Reykjavíkur. Áður fyrr kallaður Reykjavíkurskóli, Lærði skólinn eða Latínuskólinn. Hann á sér langa sögu og hafa margir þekktir Íslendingar haft þar viðkomu í gegnum tíðina. Skólinn er bóknámsskóli með bekkjakerfi og býður upp á fjögurra ára nám til stúdentsprófs. Við hann eru tvær meginbrautir, náttúrufræðibraut og málabraut, sem greinast í samtals átta deildir. Nemendafélög:
Framtíðin (elsta nemendafélag á Íslandi)
http://www.facebook.com/framtidin
Skólafélagið
http://www.facebook.com/pages/Sk%C3%B3laf%C3%A9lag-MR/31753370706

Nú styttist í 180 ára afmæli MR 1. október.  Í tilefni þess verða nokkrir áhugaverðir og skemmtilegir viðburðir í afmæli...
22/09/2026

Nú styttist í 180 ára afmæli MR 1. október. Í tilefni þess verða nokkrir áhugaverðir og skemmtilegir viðburðir í afmælisvikunni.

Eftir viku - þriðjudaginn 29. september kl. 20:00 - fáum við til okkar gesti, sem segja okkur sínar sögur úr MR. Ekki missa af þessu kvöldi! 🥰

Sögustund verður á Sal skólans - en einnig verður streymt í kennslustofur á neðri hæð, ef Salurinn fyllist.

Nánari upplýsingar um viðburðinn hér: https://fb.me/e/5iyvRxkQp

Þrír MR-ingar tóku við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við ...
01/09/2026

Þrír MR-ingar tóku við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og/eða íþróttum 👏👏

🌟Við óskum Hávari Daníel Davíðssyni, Hrafnhildi Kjartansdóttur Hördal og Jökli Þór Hilmarssyni Kjerúlf innilega til hamingju með styrkina. Á myndinni eru þau með Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektor HÍ, Háskóli Íslands 🌟

https://hi.is/frettir/taeplega_30_afreksnemar_taka_vid_namsstyrkjum_i_haskola_islands

Í fyrsta sinn í ár var Reykjavíkurmaraþon ekki með aðsetur í Menntaskólanum í Reykjavík, enda voru rásamark og endamark ...
25/08/2026

Í fyrsta sinn í ár var Reykjavíkurmaraþon ekki með aðsetur í Menntaskólanum í Reykjavík, enda voru rásamark og endamark keppninnar færð til að bæta aðgengi og öryggi hlaupara 🏃🏃‍♀️

🥇Menntaskólinn í Reykjavík átti að þessu sinni vinningshafa í hálfmaraþoni, Davíð Frey Magnússon 6.X, en hann var fyrstur Íslendinga í mark í hálfu maraþoni á tímanum 1:10:50.
Innilega til hamingju með þetta mikla afrek Davíð Freyr! 🙂🏆

(📷Mynd fengin af Vísi
https://www.visir.is/g/20262924542d/bein-ut-sending-fra-reykja-vikur-mara-thoninu)

Miðvikudaginn 19. ágúst var Menntaskólinn í Reykjavík settur í 181. sinn í Dómkirkjunni.  Sr. Elínborg Sturludóttir dómk...
21/08/2026

Miðvikudaginn 19. ágúst var Menntaskólinn í Reykjavík settur í 181. sinn í Dómkirkjunni. Sr. Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur tók á móti nemendum og starfsfólki, er þau gengu fylktu liði frá Gamla skóla yfir í Dómkirkjuna. Sr. Elínborg minntist þess að í ár eru 970 ár frá því að Skálholtsbiskupsdæmið var stofnað og kennsla hófst í Skálholtsskóla, en MR á rætur sínar að rekja til hans.

Svo skemmtilega vill til að MR heldur upp á 180 ára afmæli skólans 1. október, en þá fluttist skólinn í nývígt hús við Lækjargötu, og Dómkirkjan heldur einnig upp á 230 ára afmæli í haust, þegar kirkjan var fyrst vígð hér í Reykjavík.

Aðsókn í MR í vor var mjög góð og sóttu fleiri nýnemar um en komust að. 291 nemandi situr nú í 4. bekk (á 1. ári), 243 á náttúrufræðibraut og 48 á málabraut.
Alls verða 800 nemendur við skólann í vetur, nokkuð fleiri en í fyrra (753). 291 í 4. bekk, 261 í 5. bekk, 241 í 6. bekk og 7 nemendur á starfsbraut.

⭐️Við bjóðum nemendur og starfsfólk velkomið aftur til starfa⭐️

🌟🇮🇸Stórkostlegur árangur íslenska liðsins á Ólympíuleikum í stærðfræði! 🇮🇸🌟Úrvalslið MR-inga í liðinu og í þjálfarateymi...
30/07/2026

🌟🇮🇸Stórkostlegur árangur íslenska liðsins á Ólympíuleikum í stærðfræði! 🇮🇸

🌟Úrvalslið MR-inga í liðinu og í þjálfarateyminu. Við erum stolt af ykkur og óskum öllum innilega til hamingju með glæsilega frammistöðu👏🏻

Hér fyrir neðan er áhugaverð umfjöllun um keppnina frá STAK.

https://www.facebook.com/share/1LqdTMowxt/?mibextid=wwXIfr

Metárangur á ólympíuleikunum í stærðfræði

Ísland tók nú þátt í fertugasta-og annað sinn á Ólympíuleikunum í stærðfræði, enda hafa Íslendingar ekki misst af ári frá fyrstu þátttöku 1985. Í ár sendi Ísland keppendurna Daða Logason, Eystein Daða Hjaltason, Jóakim Una Arnaldarson, Magnús Thor Holloway, Matthías Pálmason Skowronski og Patrek Ragnarsson. Þeir unnu sér inn þessi sæti með góðum árangri á stærðfræðikeppni framhaldsskólanna og norrænu stærðfræðikeppninni.

Þessar keppnir, og ólympíuleikarnir sjálfir, eru í fjórum greinum. Algebru, fléttufræði, rúmfræði og talnafræði. Allt eru þetta greinar þar sem hægt er að setja fram krefjandi verkefni sem krefjast skapandi hugsunar og lausnamiðaða hugsun. Þetta er því töluvert frábrugðið stærðfræði sem nemendur kynnast í framhaldsskóla almennt séð, því á þessum keppnum þurfa nemendur að finna frumsamin rök fyrir máli sínu og koma frá sér rökréttum sönnunum á þungum stærðfræðilegum staðhæfingum.

Til að kenna nemendum slíka hugsun eru æfingabúðir á Íslandi fyrir ólympíuleikana, vanalega 4 til 5 vikur í Háskóla Íslands. Þar eru sjálfboðaliðar sem standa fyrir kennslu frá 9 til 16 virka daga. Í ár voru kennararnir Atli Fannar Franklín, Breki Pálsson, Marteinn Þór Harðarson, Matthías Andri Hrafnkelsson og Sigurður Jens Albertsson. Síðustu ár hafa keppendur svo farið til Danmerkur til að æfa sig í nokkra daga með hinum norrænu liðunum, en í ár var Íslandi boðið í Internaional Math Summer Camp (IMSC) í Beijing. Þess vegna var kennslan í Háskóla Íslands aðeins 2 vikur í ár enda eru IMSC eru töluvert lengri og stífari búðir.

IMSC eru þriggja vikna langar búðir haldnar af Beijing Institute of Mathematical Sciences and Applications (BIMSA) ásamt ýmsum ríkisstofnunum í Kína. Þar mættu 58 lið frá 46 löndum, samtals yfir 500 nemendur, til að sitja fyrirlestra, 4 smærri æfingakeppnir og svo eina stóra æfingakeppni í stíl við ólympíuleikana sjálfa. Þess á milli tókst liðunum að fara í ýmsar stuttar ferðir, eins og til dæmis að sjá Kínamúrinn og torg hins himneskra friðar.

Að þessu loknu var lagt í ólympíuleikana sjálfa, sem voru í Sjanghaí í ár. Þar mættu 117 lönd og 666 keppendur, og keppnin tók þátt á tveimur dögum. Þar þreyta nemendur 3 dæmi hvorn dag og hafa til þess 4 og hálfan tíma. Sjö stig fást fyrir leyst dæmi, en hægt er að fá hlutstig fyrir hluta af lausn. Fram að þessu hafði stigamet Íslendinga, samtals stiga allra s*x keppanda, verið 63 stig frá árinu 2006. En í ár tókst liðinu að bæta þetta met ríflega, með 78 stig í heildina. Patrek Ragnarsson fékk einnig bronsmedalíu, og 4 aðrir keppendur heiðursviðurkenningu.

Á næsta ári verða ólympíuleikarnir í Búdapest í Ungverjalandi, svo á enn þá eftir að koma í ljós hvort Íslandi verði aftur boðið í IMSC. En miðað við hvað gekk vel í ár, þá sakar kannski ekki að vona.

Íslenska Ólympíuliðið í efnafræði náði sínum besta árangri í 20 ár í Ólympíukeppni í efnafræði í Tashkent, höfuðborg Úsb...
22/07/2026

Íslenska Ólympíuliðið í efnafræði náði sínum besta árangri í 20 ár í Ólympíukeppni í efnafræði í Tashkent, höfuðborg Úsbekistan fyrr í sumar 🇮🇸🌟

Liðið skipuðu þau Daði Þór Friðriksson úr Flensborg, Jón Oddur Högnason úr MR, Fannar Smári Jóhannsson úr MH og Ása Dagrún Geirsdóttir úr Kvennó.

🥉Fannar hlaut bronsverðlaun og Ása Dagrún viðurkenningu fyrir góðan árangur🌟🌟

Innilega til hamingju með frábæran árangur! 🎉🌸

https://www.facebook.com/share/p/1BaAD8ywgW/?mibextid=wwXIfr

Ólympíuliðið í efnafræði fór í víking í Ólympíukeppnina í efnafræði sem haldnir voru í Tashkent, höfuðborg Úsbekistan fyrir stuttu og uppskáru besta árangur Íslands í keppninni síðan árið 2006.

Liðið skipuðu þau Daði Þór Friðriksson úr Flensborg, Jón Oddur Högnason úr MR, Fannar Smári Jóhannsson úr MH og Ása Dagrún Geirsdóttir úr Kvennó.

Fannar hlaut bronsverðlaun og Ása Dagrún viðurkenningu fyrir góðan árangur. Þetta er besti árangur Íslands í keppninni síðan árið 2006

Liðið hefur æft stíft bæði verklega og bóklega efnafræði í sumar undir traustri handleiðslu Katrínar Lilju Sigurðardóttur, Sigurðar Guðna Gunnarssonar, Þorsteins Hálfdánarsonar og Más Björgvinssonar. Katrín er aðjúnkt í efnafræði við Raunvísindadeild en hún hefur verið yfirþjálfari liðsins um langt árabil. Þorsteinn og Sigurður eru fyrrum keppendur og þeir fylgdu einnig liðinu í keppnina. Ólympíuliðið í efnafræði hefur haft aðstöðu í VR I og II og hefur líkað það vel.

Við óskum liðinu og þjálfurum þeirra hjartanlega til hamingju með frábæran árangur.

MR-ingar tóku þátt í ýmsum Ólympíukeppnum í sumar. 🇮🇸Árangur íslenska liðsins í Ólympíuleikum í líffræði í Vilnius í júl...
20/07/2026

MR-ingar tóku þátt í ýmsum Ólympíukeppnum í sumar.

🇮🇸Árangur íslenska liðsins í Ólympíuleikum í líffræði í Vilnius í júlí, var afar góður🇮🇸⭐️🌟

🥉MR-ingurinn Merkúr Máni Hermannsson vann sín önnur bronsverðlaun á leikunum, en hann er eini Íslendingurinn sem hefur náð þeim árangri🧡
⭐️Einnig hlaut Guðmundur Halldór Ingvarsson heiðursverðlaun (e. merit).

🇮🇸Lið Íslands skipaði: Agnar Helgason (MR), Eden Mayim Gittler (MH), Guðmundur Ingvar Halldórsson (MR) og Merkúr Máni Hermannsson (MR). Auk liðsins fara frá Íslandi lið þjálfara/dómara🇮🇸

Hér að neðan eru myndir frá ferð keppenda til Vilnius í Litháen og frá undirbúningi keppninnar sem fór fram í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands og í Selinu okkar fyrir ofan Hveragerði 🌲🌿🌺
🪻Við óskum ykkur til hamingju með frábæran árangur!🌼

Ráðgáta dagsins.Nú er verið að gera upp F-stofu í gamla skólahúsinu í MR. Á upprunalegu fjölum hússins má finna áletrun ...
10/06/2026

Ráðgáta dagsins.
Nú er verið að gera upp F-stofu í gamla skólahúsinu í MR. Á upprunalegu fjölum hússins má finna áletrun skrifaða með krít. Hvað stendur þarna?

Þegar skólahúsið var reist 1845-1846 voru veggirnir klæddir að innan. Í kringum 1957-1958 var inngangur að aftan stækkaður og þá var klæðning tekin, gluggi og hurð fjarlægð og veggir klæddir að nýju. Annaðhvort er áletrunin frá því að húsið var fyrst reist eða frá breytingunum fyrir um sjötíu árum síðan, en þá var Kristinn Ármannsson rektor.

Síðustu myndirnar tvær sýna hvernig sumir veggir hússins voru kalkmúraðir, en múrinn er lagður á fleti úr reyr. Þetta er í C-stofu, á móti F-stofu, sem snýr út að Lækjargötu.

🇮🇸 Skemmtilegur dagur þegar 195 stúdentar voru brautskráðir frá Menntaskólanum í Reykjavík í 180. skiptið.  Dux scholae ...
31/05/2026

🇮🇸 Skemmtilegur dagur þegar 195 stúdentar voru brautskráðir frá Menntaskólanum í Reykjavík í 180. skiptið.
Dux scholae vorið 2026 er Hugrún Eva Haraldsdóttir úr 6.R með einkunnina 9,81 og semidux er María Líf Ágústsdóttir úr 6.R með einkunnina 9,79 ✨✨
Nýstúdentar fluttu æðisleg tónlistaratriði og 25 ára og 50 ára afmælisstúdentar fluttu kveðjur. Elín Edda fráfarandi Inspector scholae hélt ræðu fyrir hönd nýstúdenta.
Til hamingju við öll! 💙🇮🇸

🏅Rektor afhenti í gær nemendum í valáfanganum fyrirtækjasmiðjan viðurkenningaskírteini fyrir þátttöku í vörumessunni Ung...
06/05/2026

🏅Rektor afhenti í gær nemendum í valáfanganum fyrirtækjasmiðjan viðurkenningaskírteini fyrir þátttöku í vörumessunni Ungir Frumkvöðlar.

📈Nemendur í fyrirtækjasmiðjunni fengu tækifæri til að kynnast heimi nýsköpunar og atvinnulífs með því að þróa eigin vörur og reka lítil fyrirtæki. Markmiðið er að efla sköpunargáfu, sjálfstæði og viðskiptahugsun nemenda.

🗣️Í áfanganum unnu nemendur í hópum þar sem þeir fóru í gengum allt ferlið frá hugmyndavinnu og markaðsrannsókna til hönnunar, framleiðslu og sölu. Hver hópur stofnaði sitt eigið fyrirtæki og kynnti vöruna sína fyrir gesti vörumessunnar sem haldin var í Smáralind. Vörurnar sem nemendur þróuðu voru fjölbreyttar og endurspegluðu áhugasvið þeirra og hugmyndaflug. Meðal þess sem nemendur voru að kynna voru kreatíndrykkur, hárolía og vefsíða þar sem hægt er að selja vörur eða vera með vöruskipti.

Address

Lækjargata 7
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:00 - 15:00
Tuesday 08:00 - 15:00
Wednesday 08:00 - 15:00
Thursday 08:00 - 15:00
Friday 08:00 - 15:00

Telephone

+3545451900

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Menntaskólinn í Reykjavík posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category