03/09/2026
Gærdagurinn var líflegur og viðburðaríkur hjá unglingadeildinni!
Dagurinn byrjaði á hinni árlegu haustgöngu þar sem hópurinn kom saman til að fagna haustinu, hrista saman hópinn og njóta útiverunnar. Gengið var frá Kaldárseli, upp á Helgafell, um Valaból og endað á því að ganga Búrfellsgjána. ⛰️
Um kvöldið var svo slegið til veislu á Rósaballinu. Þar tóku 10. bekkingar vel á móti nemendum 8. bekkjar, afhentu þeim rós og buðu þá velkomna í unglingadeildina. 🌹🪩