Dale Carnegie þjálfun

Dale Carnegie þjálfun Dale Carnegie hjálpar einstaklingum og fyrirtækjum að vaxa. Við erum með þér upp brekkuna!

Allt í kringum þig eru einstaklingar sem skara fram úr. Í viðskiptalífinu, íþróttum, fjölmiðlum, skólastarfi, á sviði menningar og lista eða einfaldlega sem sterkir persónuleikar. Fjölmargir þeirra hafa sótt Dale Carnegie‚ námskeiðið og um fimm milljón einstaklingar um heim allan hafa lokið námskeiðinu. Þú getur slegist í hóp þeirra sem eru stöðugt að auka velgengni sína.

FKA á Akureyri stóð fyrir viðburði 22. september sl. á Múlabergi þar sem Jóna Dóra Hólmarsdóttir þjálfari og ráðgjafi hj...
24/09/2026

FKA á Akureyri stóð fyrir viðburði 22. september sl. á Múlabergi þar sem Jóna Dóra Hólmarsdóttir þjálfari og ráðgjafi hjá Dale Carnegie fjallaði um faglega framkomu og samskipti. Mætingin var frábær og húsfyllir.

Þess má geta að Dale Carnegie heldur tvö staðbundin námskeið á Akureyri á næstunni en það er Leiðtogafærni fyrir leiðtoga og stjórnendur og einnig Dale Carnegie námskeiðið sem er fyrir fólk til að ná enn meiri árangri í lífi og starfi.

Kynntu þér Dale Carnegie námskeiðið:
https://island.dale.is/einstaklingar/dale-carnegie-namskeidid/

Allir þjálfarar endurvottaðir!Þjálfarar Dale Carnegie á Íslandi hafa lokið endurvottun og halda réttindum sínum næstu þr...
23/09/2026

Allir þjálfarar endurvottaðir!

Þjálfarar Dale Carnegie á Íslandi hafa lokið endurvottun og halda réttindum sínum næstu þrjú árin.

Af hverju skiptir það máli að Dale Carnegie þjálfarar endurnýi þjálfararéttindi sín á þriggja ára fresti?

Það er ekki bara formsatriði, heldur hluti af því að tryggja gæði, stöðugar umbætur og samræmda upplifun þátttakenda. Gæðakerfi Dale Carnegie krefst þess að þjálfarar fari reglulega í gegnum mat, þróun og uppfærslu á færni sinni. Þetta er eitt af því sem aðgreinir Dale Carnegie frá mörgum öðrum þjálfunaraðilum og skapar raunverulegt samkeppnisforskot.

Þessi áhersla á gæði er jafnframt hluti af ISO 9001 gæðakerfi Dale Carnegie, þar sem bæði námsefni, afhending þjálfunar og þróun þjálfara eru hluti af vottuðum ferlum.

Nýr kafli hjá Dale Carnegie á ÍslandiNTV Promennt hefur keypt rekstur Dale Carnegie á Íslandi og framundan eru spennandi...
11/09/2026

Nýr kafli hjá Dale Carnegie á Íslandi

NTV Promennt hefur keypt rekstur Dale Carnegie á Íslandi og framundan eru spennandi tímar. Dale Carnegie heldur áfram sem sjálfstætt vörumerki og byggir áfram á þeim sterka grunni sem lagður hefur verið á Íslandi í meira en 60 ár.

Samhliða þessum tímamótum erum við flutt í ný húsakynni í Hlíðasmára 9 í Kópavogi og hlökkum til að taka á móti ykkur þar.

Framundan eru ókeypis kynningartímar þar sem þú getur kynnst námskeiðunum okkar, fengið innsýn í aðferðir Dale Carnegie og séð hvort þau henti þér eða þínu barni.

Kynningartímar:

10–15 ára
Sunnudaginn 13. september kl. 16:00–17:00
Foreldrar fylgja börnum.
Skráning fer fram hér: https://www.dale.is/ungtfolk

16–25 ára
Sunnudaginn 13. september kl. 17:00–18:00
Foreldrar fylgja þátttakendum undir 18 ára aldri.
Skráning fer fram hér: https://www.dale.is/ungtfolk

Fullorðnir, 26 ára og eldri
Miðvikudaginn 16. september kl. 20:00–21:00
Skráning fer fram hér: https://www.dale.is/einstaklingar

Staðsetning: Hlíðasmári 9, Kópavogi

Kynningartímarnir eru ókeypis og allir áhugasamir velkomnir.

Nýttu tækifærið og kynntu þér Dale Carnegie. Við hlökkum til að taka á móti þér!

https://www.visir.is/g/20262933531d/ntv-kaupir-dale-carnegie

NTV Promennt hefur keypt rekstur Dale Carnegie á Íslandi. Unnur Magnúsdóttir segir engan missa vinnuna og félögin verði rekin sem eins konar systurfélög undir sama eignarhaldi. Unnur keypti reksturinn árið 2006 en hefur starfað á vegum Dale Carnegie í 25 ár. Hún segir um mikil tímam...

Getur þú verið ósammála á jákvæðan hátt?Hlustaðu á skemmtilegt viðtal við Unni Magnúsdóttur og lærðu samræðutækni sem ge...
24/08/2026

Getur þú verið ósammála á jákvæðan hátt?
Hlustaðu á skemmtilegt viðtal við Unni Magnúsdóttur og lærðu samræðutækni sem getur nýst þér í krefjandi aðstæðum.

Unnur Magnúsdóttir þjálfari hjá Dale Carnegie

Skemmtilegt viðtal við Eyrúnu Linnet um hennar lífssýn og venjur sem hafa sannarlega skapað árangur!
20/08/2026

Skemmtilegt viðtal við Eyrúnu Linnet um hennar lífssýn og venjur sem hafa sannarlega skapað árangur!

„Ég vil meina að bestu stjórnendurnir séu mannlegir. Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra,“ segir Eyrún Linnet, rafmagnsverkfræðingur og frumkvöðull en hún hefur gegnt fjölbreyttum og ábyrgðarmiklum störfum á sínum ferli.

Komdu í fjölskyldufjör laugardaginn 22. ágúst í Smárabíó. Ókeypis 30 mínútna kynning á námskeiðum fyrir ungt fólk og bör...
12/08/2026

Komdu í fjölskyldufjör laugardaginn 22. ágúst í Smárabíó. Ókeypis 30 mínútna kynning á námskeiðum fyrir ungt fólk og börn eldri en 10 ára fá tímakort í leikjasvæði. Síðast bókaðist upp. Skráðu þig núna á

Dale

Hvernig karakter er þú? Taktu prófið!
04/08/2026

Hvernig karakter er þú? Taktu prófið!

Já eða nei?  Getur þú verið ósammála án þess að missa sambandið?Ókeypis örvinnustofa á Teams
04/08/2026

Já eða nei? Getur þú verið ósammála án þess að missa sambandið?
Ókeypis örvinnustofa á Teams

Dale

Getur þú verið ósammála án þess að missa sambandið?Ókeypis örvinnustofa á Teams https://dale.is/vinnustofurÁ Ísland að g...
31/07/2026

Getur þú verið ósammála án þess að missa sambandið?
Ókeypis örvinnustofa á Teams https://dale.is/vinnustofur

Á Ísland að ganga í ESB? Ætti að leyfa sölu bjór í matvöruverslunum? Eru veiðigjöldin hæfileg og hvað með hvalveiðar? Ættum við að herða reglur um nikótínvörur? Eigum við að taka upp veggjöld? Á að fjölga vindmyllugörðum? Hvað með styttingu vinnuvikunar?

Það er enginn skortur á umræðuefnum sem kljúfa þjóðina og margir forðast að ræða einmitt þessi mál hér að ofan. En hvað ef við getum sagt okkar skoðun án þess að missa sambandið?

Á örvinnustofunni - Jákvæð skoðanaskipti - lærir þú hvernig þú getur:
- komið skoðunum þínum á framfæri af festu og virðingu
- verið ósammála án þess að skapa spennu eða átök
- hlustað þannig að aðrir upplifi sig heyrða
- átt krefjandi samræður sem leiða til betri samskipta í stað verri

Hvenær: Þriðjudaginn 18. ágúst kl. 13.00 til 13.30
Fyrir hverja: Alla sem vilja efla samræðutækni sína og stuðla að jákvæðum samskiptum
Hvar: Ör-vinnustofa á Teams
Verð: Ókeypis

Skráning á www.dale.is/vinnustofur

Dale

30/06/2026

Reynsla skiptir máli

Við hvetjum einstaklinga 60 ára og eldri að taka námskeiðin okkar og gera sig þannig enn hæfari á vinnumarkaðinum. Við höfum verið á Íslandi í 60 ár og vitum að reynsla skiptir máli. Pantaðu ókeypis einkaráðgjöf https://island.dale.is/fadu-einkaradgjof og kynntu þér ávinning námskeiðanna eða hringdu í okkur 555 7080

Dale Carnegie hjálpar einstaklingum og fyrirtækjum að vaxa. Við erum með þér upp brekkuna!

Address

Ármúli 11
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 10:00 - 16:00
Tuesday 10:00 - 16:00
Wednesday 10:00 - 16:00
Thursday 10:00 - 16:00
Friday 10:00 - 16:00

Telephone

+3545557080

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Dale Carnegie þjálfun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Dale Carnegie þjálfun:

Shortcuts

Share

Category